Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
Viðskipti
Enn hækkar
bensínið
Slægð ýsa lækkaði aö meðaltali
í verði í gær eftir hátt meðalverð
sl. fostudag. Þá fór kílóið á 242
krónur á Fiskmarkaði Suður-
nesja.
Verðbréfaþing íslands hefur
tekið að sér útreikning á nokkr-
um vísitölum. Þingvísitala hluta-
bréfa lækkaði verulega í gær og
er 1,3% lægri en um sl. mánaða-
mót.
Vetrarhörkur í Bandaríkjunum
halda áfram að hækka bensínið.
Á fóstudag var 95 oktana bensín
í Rotterdam að nálgast 150 dollara
tonnið.
Frá því á miövikudag í síðustu
viku hefur gengi dollars verið að
hækka.
Dow Jones vísitalan í New York
hefur venö á niðurleið að und-
anfornu. Á einni viku hefur talan
lækkað um 2,4%. -bjb
Vaki-fiskeldiskerfi hf. í sókn:
Auka á veltu
!
um 64 prósent
Vaki-fiskeldiskerfi hf. hlaut nýlega
nýsköpunarverðlaun Útflutnings-
ráðs íslands og Rannsóknarráðs rík-
isins. Þykir fyrirtækið dæmi um
hugmynd sem orðiö hefur að arð-
bærri söluvöru þar sem markaðs- og
þróunarstarf hefur tekist mjög vel.
Vaki framleiðir þrenns konar fisk-
og seiðateljara en hugmynd að telj-
ara til nota í fiskeldiskerum kviknaði
í Háskólanum árið 1985. Ári síðar var
fyrirtækið stofnað og framleiðsla
hófst 2 árum síðar. Fyrsta árið var
veltan 12 milljónir króna en í ár er
stefnt að sölu á teljurum fyrir allt
að 100 milljónir króna. Frá veltu síð-
asta árs upp á 61 milljón króna er
aukningin milli ára því um 64 pró-
sent.
Fyrst hóf Vaki framleiðslu á raf-
væddum teljara sem notaður hefur
verið í fiskeldiskerum og -kvíum.
Næst tók við tækið Kvíomass, sem
mælir lífmassa í fiskeldiskerum, og
getur áætlað þyngd og stærö fisk-
anna. Það tæki var þróað í samvinnu
við stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi,
Marine Harvest, og var hluti af Eu-
Vaki-fiskeldiskerfi hf.
— velta í milljónum króna
1988-1994-
100
Hermann Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Vaka, virðir fyrir sér
Kvíomass lifmassamæli ásamt ein-
um starfsmanni, Rúnari Indriðasyni
rafeindavirkja. Alls starfa 6 manns
hjá Vaka auk þess sem 15 undirverk-
takar koma að framleiðslunni á
ýmsum stigum hennar.
DV-mynd Brynjar Gauti
reka, þróunaráætlun Evrópulanda.
Þá hefur Vaki framleitt árteljara,
þ.e. fiskateljara til nota í lax- og sil-
ungsveiðiám sem einnig getur áætl-
að þyngd fiska. Sú þróun hefur verið
í samstarfi við Veiðimálastofnun og
er teljarinn, nefndur Árvaki, þegar
kominn í notkun á nokkrum stöðum
á landinu.
Um 98% framleiðslu Vaka hefur
farið til útflutnings. Viðskiptamenn
eru í 19 löndum víðs vegar um heim,
aðallega í Noregi og Skotlandi.
Stefnt að hlutafjáraukningu
„Við markaðskönnun greindum
við þörfina fyrir vitneskju um líf-
massa, þ.e. fjölda og þyngd fisk-
anna,“ segir Hermann Kristjánsson,
rafmagnsverkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Vaka, í samtali við DV
en hann var eini nemandinn sem tók
þátt í stofnun Vaka og hefur verið
framkvæmdastjóri frá upphafi. Her-
mann á 13% hlut í Vaka en stærsti
eignaraöili er Þróunarfélag íslands
með 33% hlut. Aðrir hluthafar eru
32 talsins með 5% eöa minni hiut
hver. Hlutaféð er alls um 20 milljónir
og eigið fé 15 milljónir króna. Að
sögn Hermanns er stefnt að auknu
hlutafé í kjölfar áætlana um aukna
sölu á þessu ári.
Eins og áður sagði er framleiðslan
aðallega flutt út. Vaki hefur þó átt
gott samstarf við innlend laxeldisfyr-
irtæki um þróun og aöstaða einkum
fengist hjá íslandslaxi hf. á Suður-
nesjum.
„Þróunin hefur verið markaðs-
tengd hjá okkur þar sem áhersla er
lögð á hvaða þörf er fyrir framleiðsl-
una. Við leitum að vandamálum og
notum tækniþekkingu okkar til að
leysa þau,“ segir Hermann.
Frá 1988 hefur velta Vaka aukist
jafnt og þétt ef árið 1992 er undan-
skilið. Þá var slæmt árferði í fiskeldi
í heiminum. Þróunina má sjá nánar
á meðfylgjandi grafi.
Vaki hefur verið með 3 tæki í fram-
leiðslu. Aðspurður segir Hermann
að góðir möguleikar gefist á fleiri
afurðum, bæði tengdir fiskeldi og
umhverfismarkaði. „Með vorinu
hugum við að nýjum vörum sem
veröa að vera tilbúnar á markað eft-
ir 2 ár. Með Árvaka gefast möguleik-
ar á svokölluðum umhverfismarkaði
þar sem sömu tækni er beitt á nýjum
markaði. Sem dæmi um möguleika
eru áform Bandaríkjamanna um að
vemda Atlantshafslaxinn. Þar
myndast þörf á alls konar mælitækj-
um og Árvakinn er okkar inngöngu-
leið,“ segir Hermann.
-bjb
Rússar svíkja loforð
- um minni álíramleiðslu
Þegar álmörkuðum var lokað á
föstudag var staðgreiðsluverö áls um
1290 dollarar tonniö. Verðið var kom-
ið í tæpa 1300 dollara en lækkaði
þegar vestræn álframleiðsluríki til-
kynntu 350 þúsund tonna samdrátt í
framleiðslu í stað 500 þúsunda eins
og samkomulag þeirra hljóöaöi. Þá
hafa þijár stórar verksmiðjur í Rúss-
landi tfikynnt að ekkert verði dregið
úr framleiðslu hjá þeim. Þetta gerir
það að verkum að ál mun ekki hækka
í verði á næstunni.
Gott ýsuverð
Tveir togarar seldu afla sinn í
Þýskalandi í síðustu viku, aðallega
karfa. Þetta voru Engey RE og Skafti
SK. Meðalverð skipanna tveggja var
um 130 krónur kílóið sem þykir á-
gætt. Aflaverðmætið var um 26 millj-
ónir króna.
I Englandi seldust um 200 tonn úr
gámum fyrir 35 milljónir króna. Gott
verð fékkst fyrir þorsk og ýsu. Á fisk-
mörkuðunum hér heima gerðist það
helst að kíló af slægðri ýsu var selt
á 242 krónur að meðaltali á Fisk-
markaði Suðumesja sl. föstudag.
Þetta er hæsta verð sem sést hefur
eftir sjómannaverkfallið. Meðalverð
á þorski og ýsu hækkaði milli vikna,
mestáýsu. -bjb
Ennhækka
skinninlKaup-
mannahöfn
Uppboð á minka- og refaskinn-
um hófst í Kaupmannahöfh á
sunnudag og lýkur í dag, þriðju-
dag. Alls er búist við að um 30
þúsund skinn frá íslenskum loö-
dýrabændum seljist á uppboðinu.
Ekki var ljóst í gær hvað fengist
haföi fyrir islensku skinnin en
almennt höföu refaskinn hækkað
í verði um 35% frá uppboðinu i
desember sl. Verð á minkaskinn-
ura hefur verið um 40% hærra
síðan þá.
Ástæðan fyrir þessum verð-
hækkunum er eínkum aukin eft-
irspum eftir skinnum frá Norð-
urlöndum, Eystrasaltsrikjunum
og Rússlandi. Vetrarhörkur hafa
ríkt á þessum slóðum og eru
kaupendur þaðan íjölmennir á
uppboðinu í Kaupmannahöfn.
Mikilviðskipti
meðspariskír-
teini ríkisins
Útboð fór fram í gær á tveimur
fiokkum spariskírteina ríkis-
sjóös, 5 og 10 ára skírteinum.
Meðalávöxtun var örlitið lægri
en í síðasta útboði í janúar eða
innan viö 5% ogflesturo tilboðum
tekið. 22 tilboöum var tekið í 5
ára skírteini fyrir 1122 milljónir
króna og 8 tílboðum var tekiö í
10 ára skírteini upp á 391 mifijón
króna.
Ástæðan fyrir mikilli þátttöku
í útboðinu nú er einkum innlausn
á stórum flokki spariskírteina nk.
fimmtudag.
Alumaxdregur
úrálframleidslu
Fyrirtækið Alumax, sem sýnt
hefur áhuga á byggingu álvers á
Keilisnesi, hefur ákveöið að
draga úr framleiðslu álverk-
smiðja fyrirtækisins sem nemur
um 40 þúsund tonnum á ári.
Heildarsamdrátturinn í álfram-
leiðslu Alumax verður um 146
þúsund tonn á ári. Draga á úr
framleiðslunni í áföngum og mun
niöurskurðurinn taka að fullu
gildi 31. mars nk.
Skuldabréffyrir
króna árið 1993
Heildarútgáfa skuldabréfa i al-
mennum útboðum, stundum
nefnd markaösskuldabréf, nam á
síöasta ári 109,6 mifijörðum
króna. Af því nam útgáfa skamm-
timabréfa í formi ríkisvíxla 75,2
milljörðum. Þetta kemur fram í
fréttabréfi Landsbréfa hf.
Abnenn útboð skuldabréfa til
tveggja ára eða lengri tíma námu
34,4 milljöröum króna á síöasta
ári. Eins og áður voru skuldabréf
gefin út af ríkissjóði mest áber-
andi eða fyrir 26,3 milljaröa.
Ritfyrirstjórn-
endur fyrirtækja
Framtíðarsýn hf. hóf útgáfu
ritraðar um síðustu áramót með
efni sem tengist stjómun og
rekstri fyrirtækja. Ritröðin er
unnin í samvinnu við Viðskipta-
fræðistofnun Háskólans og rit-
stjóri er Runólfúr Smáii Stein-
þórsson lektor.
Alls á að gefa út átta rit og eru
tvö þegar komin út. Annað nefn-
ist Leiðir í gæðastjómun og er
eftir Runólf Smára. Hitt heitir
Samskiptastjómun. Höfundur
þess er Þórir Einarsson. Þriðja
ritið er væntanlegt í mars nk. og
fjallar um áætlanagerð fyrir-
tækja.
-bjb