Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
7
Fréttir
- Ráðning þín á sínum tíma mælt-
ist misjafnlega fyrir. Þú varst þjóð-
garðsvörður og ekki álitinn heppi-
legur til ábyrgðarstarfa sem út-
varpsstjóri af þeim sökum. Varstu
yfir höfuð hæfur í starfið?
„Ég kom að þessu starfi með
ákveðnar hugmyndir og taldi mig
litillega kunnugan íslenskri mexm-
ingu. Sá bakgrunnur hefur hvorki
rýmað né vaxið.“
- Á síðasta ári lét Hrafn Gunn-
laugsson dagskrárstjóri ýmis orð
falla um ríkissjónvarpið í umræðu-'
þætti - í kjölfar þess sagðir þú hon-
um upp. Nú hefur aðstoðarmaður
þinn gert svipað á öðrum vett-
vangi. Þú hefur rekið tvo menn á
tæpu ári fyrir að segja skoðanir sín-
ar. Er þetta ekki aðför að tjáningar-
frelsi?
„Nei. Ég hef gert grein fyrir
Hrafnsmálinu og minni á að í kjöl-
far þess ákváðum við að koma á
griðum, það er kjarnaatriði.
Spurningin um málfrelsið og Art-
húr Björgvin Bollason er fjarska-
lega einföld. Hann skrifar í raun
opinbert bréf á bréfsefni ríkisút-
varpsins með skírskotun til síns
starfs og tengsla við útvarpsstjóra
og sendir það embættismanni sem
sjálfur er með embættistitil. Það
skilur hver einasti maður sem eitt-
hvað vill skilja - þetta var í nafni
ríkisútvarpsins. Bréfið er þannig
að orðfæri að ég gat fyrir mitt leyti
undir engum kringumstæðum
tekið ábyrgð á því eða staöfest það
með þögn eða ákúrum eða neinu
því um líku. Ég visaði því á bug
með því að segja honum upp. Þetta
hefur ekkert með málfrelsi að
gera. Maður sem gegnir opinberri
stöðu er bundinn og getur ekki í
nafni hennar látið móðan mása
um hvað sem er, hvar sem er og
hvenær sem er. Hann gat skrifað
bréf eða blaðagrein, annaö er
„Ráðherra minntist ekki einu
orði á að Arthúr Björgvin ætti að
víkja úr starfi. Ég sé ekki betur en
að stjómarandstaðan, einkum Ól-
afur Ragnar Grímsson, sé að búa
til mál á hendur forsætisráðherra
og búa til samsæriskenningar.
Hefði ráðherrann ýjað að þessu við
mig hefði ég vísast ekki getað látið
manninn fara. Það held ég að hljóti
að skiljast að þá hefði ég í rauninni
staðið frammi fyrir því hvort ég
ætti að fara að hlýðnast slíkri ráð-
leggingu eða skipun - það hefði ég
ekki getað.“
- Á sínum tíma sagði menntamála-
ráðherra að hann væri ekki viss um
að þú værir sá sami og hann réði.
Hvernig tókstu þeim ummælum?
„Á milh okkar Ólafs G. Einars-
sonar hefur verið hin prýðilegasta
sátt og vinfengi bæði fyrr og síðar.
Þaö má vel vera að við þekkjum
ekki hvor annan út í hörgul. Hann
kynntist mér sem embættismanni
á Þingvöllum og ég get ekki annað
en staðfest aö það fer hið besta á
með okkur.“
- Samdóma álit fulltrúa þriggja
flokka á Stöð 2 á sunnúdag var
m.a. að þú ráðir ekki við starf þitt
og stofnunin sé í upplausn. Eftir
þetta og það sem á undan er geng-
ið; hefur þú hugleitt að segja af þér?
„Ég horfði á þennan þátt og satt
að segja fannst mér stillingin sem
þar sveif yfir vötnum ekki gefa mér
tilefni til að taka mikið mark á því
sem þarna var sagt. Ég hef heldur
ekki hugsað mér að gera það. Þama
æptu menn hver upp í annan og
ég ætla ekki að fara aö herma það
sem þar var sagt. Ég veit vel að
ríkisútvarpið stendur á krossgöt-
um. Við eigum von á nýjum út-
varpslögum, væntanlega á næstu
mánuðum eða missertun. Ég ætla
að bíða rólegur eftir þeim útvarps-
lögum og vona að aðrir geri shkt
Útvarpsstjóri segir Davíð Oddsson ekki hafa lagt að sér að reka Arthúr Björgvin Bollason:
Eg hefði ekki getað
hlýtt skipun ráðhevra
að koma fram í nafni stofnunar-
innar. Það fylgir vandi vegsemd
hverri."
- Eftir brottrekstur Hrafns töldu
margir að menntamálaráðherra
hefði niðurlægt þig með þvi að end-
urráða hann á ný og þá í æðri stöðu.
Hvað viltu segja um það og þann
starfsanda sem hefur ríkt í stofnun-
inni eftir þetta?
„Ég benti á að ráðherra hafði
vald og fullan rétt til að gera það
sem hann gerði. Ég sem embættis-
maður beygði mig fyrir því. Ég
hafði vald til að leika fyrri leikinn
en hann vald til að leika síðari leik-
inn. Ef einhveijir kusu að kalla það
niðurlægingu eðá htilsvirðingu þá
þeir um það. Ég er ekkert afskap-
lega hvumpinn frammi fyrir slíku.
Ég gerði mitt besta til að koma á
friði, Hrafn lika og ég veit ekki
betur en að það hafi tekist í aðalatr-
iðum.“
- Þú réðst Arthúr Björgvin án
stöðuheimildar og þetta gagnrýndi
ráðherra. Varstu að setja Arthúr
til höfuðs Hrafni?
„Á tjárhagsáætlun ríkisútvarps-
ins 1993 er gert ráð fyrir þessu
verkefni. Hann var ekki ráðinn til
frambúðarstarfs heldur í rauninni
sem verktaki til eins árs. Hann
heldur auðvitað þeirri ráðningu til
mánaðamóta mars/apríl. Ég var
búinn að hafa þá hugmynd að ráða
mann mér til aðstoðar við að skoða
skipulag stofnunarinnar og dag-
skrána. Þetta var á engan hátt
hugsað einum eða neinum til höf-
uðs.“
- Arthúr segist hafa sagt þér efiiis-
lega frá margnefndu bréfi til for-
manns stéttarsambands bænda á
mánudag í siðustu viku og þú ekki
gert við það athugasemdir. Á
fimmtudag, eftir fund með forsæt-
isráðherra, tilkynnir þú honum um
uppsögnina. Hvers vegna gafstu
ekki í skyn strax á mánudag að
bréfið væri óviðeigandi?
„Það er ekki rétt að mér hafi ver-
Yfirheyrsla
Óttar Sveinsson
ið kynnt efni þessa bréfs. Arthúr
Björgvin sagði mér á mánudag að
hann hefði skrifað Hauki Halldórs-
syni. Efni bréfsins rakti hann ekki
og þaðan af síður umbúnað eða
orðfæri. Mér var ekki sagt neitt um
að bréfið væri ekki undir eigin
nafni Arthúrs. Ég tók þessu svo að
hann væri að tala um einkamál.
Mér var því ekki kunnugt um bréf-
ið í þess eiginlegu mynd fyrr en á
miðvikudagskvöld. Ég hugleiddi þá
strax um kvöldið að ég ætti ekki
annarra kosta völ en að segja
manninum upp. Ég hins vegar
flýtti mér ekkert að lýsa því yfir. Á
fimmtudagsmorgni var ég í önnum
og komst ekki til að sinna þessu
máli þó ég væri með þessa ákvörð-
un sem ég tók kvöldið áður. Mér
finnst það fjarstæða af honum Art-
húri Björgvin að vera að nota
svona og ég ætla ekki að yera að
nota slíkt frekar en hann. Ég vissi
ekkert um þetta bréf fyrr en klukk-
an fimm síðdegis á miðvikudag. Ef
hann ætlar eitthvað að togast á um
það verður hann að gera það einn.“
- Arthúr Björgvin hefur sagt að
hann hafi fengið orðin „pólitísk
herkví“ að láni úr samtali við þig
þegar þú ræddir um andrúmsloftið
hjá Sjónvarpinu.
„Við höfum skrafað margt og það
má vel vera að ég hafi sagt eitthvaö
þessu líkt. Hitt er annað að eitt er
að skrafa saman undir fjögur augu
og annað er að hlaupa með þaö á
opinberan vettvang. Ég minnist
þess alls ekki að hafa notað þetta
orðatiltæki um stofnunina."
- Mátti alls ekki á neinn hátt skilja
það á Davið Oddssyni þegar þú hitt-
ir hann skömmu eftir hádegi á
fimmtudag að hann teldi að þú ætt-
ir að segja Arthúri Björgvini upp?
hið sama og við fáum að afgreiða
mál hér án uppnáms.“
- Burtséð frá öllu uppnámi og
taugatitringi, verður þú ekki að
taka mið af þverpólitisku viðhorfi?
„Ég er náttúrlega afskaplega
óánægður yfir þessu máh og
hnugginn yfir því að þetta bréf
skyldi verða ritað og sent. En ég
get ekki séð að neitt hafi gerst þessa
dagana sem gefur mér tilefni til að
endurskoða setu mína hér. Ég ætla
að bíða og sjá hverju fram vindur.
Staða ríkisútvarpsins verður skoð-
uð í ljósi þeirra laga og vissulega
endurskoðað þegar þar að kemur.
Það er snöggtum merkilegra mál
og tilefni til endurskoðunar heldur
en þetta.
- Finnst þér stóllinn þinn ekkert
vera farinn að hitna?
„Nei, mér liður ágætlega í stóln-
um. í dag hef ég fengið upphring-
ingar og bréf frá fjölda manna sem
hvetja mig til að sitja sem fastast."
IRROW