Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
Franskir sjómenn hvattir til aö stilla sig:
Nóg af skemmd
um og meiðslum
- verkfallið framlengt um tvo sólarhringa
Franskir sjómenn á Bretagne-
skaganum ákváðu í gær að fram-
lengja níu daga verkfall sitt sem hef-
ur einkennst af ofbeldisaðgerðum og
kröfðust þess að franska ríkisstjóm-
in kæmi þeim enn frekar til aðstoðar.
Allt að þijú þúsund sjómenn voru
á fundinum þar sem verkfallið var
framlengt um tvo sólarhringa til við-
bótar á meðan viðræður fæm fram -
við stjómvöld um innflutning á er-
lendum fiski og sérstakar ráðstafanir
til handa smábátasjómönnum.
Bretagne-skaginn er stærsta sjáv-
arútvegshérað Frakklands og þar
býr þriðjungur allra fiskimanna
landsins.
Sjómenn í bænum Arachon í suð-
vesturhluta Frakklands ákváðu hins
vegar að mæta aftur til vinnu þótt
þeir hefðu uppi efasemdir um aðstoð
ríkisstjómarinnar.
„Þeir veröa að snúa aftur í vinnu
Edouard Balladur, forsætisráðherra
Frakklands, á í vandræðum með
sjómenn.
til að sjá fjölskyldum sínum far-
borða,“ sagði Richard Lahaye, for-
maður sjómannafélagsins í Arachon,
eftir að samþykkt var að binda enda
á verkfallið með 79 atkvæðum gegn
78.
Herskáir sjómenn háðu harða bar-
daga við lögreglu á meðan á heim-
sókn Edouards BaUadurs forsætis-
ráðherra til Bretagne stóð fyrir helgi.
í þeim átökum kviknaði í sögufrægri
þinghúsbyggingu Bretagne í Rennes,
að því er virðist 'út frá neyðarblysi
sem óeirðaseggir skutu.
Leiðtogar sjómanna hvöttu
herskáa félaga sína aö hætta mót-
mælunum. „Það er komið nóg af
skemmdum og meiöslum," sagði Ro-
land Bochard, foringi sjómanna í
bænum Concarneau, á stormasöm-
um fundinum. „Ég hvet ykkur til að
Sýna Stillingu." Reuter
átaka," sagði Vigdís forseti um leið og hún afhenti tramleiðanda myndarinnar Hússins viö Arbatstræti fyrstu verð-
laun á sjónvarpsmyndahátíðinni í Monte Carlo. Símamynd Bryndis Hóim
Monte Carlo:
Forseti íslands af hend
ir sjónvarpsverðlaun
Bryndís Hólm, DV, Monte Carlo:
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, veitti í gær frönsk-rússnesku
myndinni Húsið við Arbatgötu gull-
verðlaun í flokki menningarlegra
heimildarmynda á hinni frægu sj'ón-
varpshátíð í Monte Carlo. Vigdís er
heiðursgestur hátíöarinnar og for-
maður einnar af fjórum dómnefnd-
um sem velja þar verðlaunahafa úr
ýmsum flokkúm sjónvarpsmynda.
Fransk-rússneska myndin greinir
frá mannlífi í húsi nokkru í Moskvu
í gegnum 75 ára sögu þess. Myndin
þótti lýsa sérstaklega vel því umróti
sem orðið hefur í lífi Rússa frá tímum
rússnesku byltingarinnar.
Silfurverðlaun féllu í hlut myndar-
innar Konur með opin augu sem gerð
er af sjónvarpinu í Bénin í Afríku.
Bronsverðlaun hlaut mynd belgíska
sjónvarpsins, Tilbrigði fegurðar, sem
fjaliar um verk málarans Van Dyck.
Vigdís og Albert prins, ríkisarfi
Mónakó, voru á sunnudagskvöld við-
stödd sérstaka hátíðarfrumsýningu,
ásamt mörgum þekktum andlitum
úr heimi sjónvarps, á nýrri fransk-
ítalskri stórmynd um ævi konungs-
ins Karlamagnúsar. Að sýningu lok-
inni lýsti prinsinn formlega yfir opn-
un Monte Carlo sjónvarpshátíðar-
innar sem nú er haldin í 34. sinn. Þaö
fór vel á með forsetanum og prinsin-
um sem vöktu mikla athygli gesta
frumsýningarinnar.
„Þetta er í annað sinn sem ég kem
hingað til Mónakó. Það hefur verið
ánægjulegt að kynnast furstafjöl-
skyldunni. Þetta er afskaplega ljúft
fólk og blátt áfram. Albert prins er
oft í forsvari fyrir menningarlegar
ráðstefnur í Mónakó og það má
margt af Mónakóbúum læra á þessu
sviði. Við höfum hentugar aðstæður
til slíkra viðburða sem þyrfti að
skipuleggja betur og nýta til aö laða
að þúsundir manna til landsins eins
og þeir gera,“ sagði Vigdís Finnboga-
dóttir í samtali við blaðamann DV.
Alls tóku 75 framleiðendur frá 5
heimsálfum þátt í keppni alþjóðlegu
útvarps- og sjónvarpsakademíunnar
sem stendur að þeim verölaunum
sem Vigdís forseti veitti. Engir ís-
lenskir framleiðendur taka í ár þátt
í keppninni um besta sjónvarpsefhið
en til Monte Carlo eru þó mættir
fulltrúar beggja íslensku sjónvarps-
stöðvanna til að festa kaup á mynd-
efni fyrir íslenskan markað.
Utlönd
umaðFoster
hafi verið myrtur
Bents-
en/ íjármála-
ráðherra
Bandarikj-
anna, sagði um
helgina aö eng
ar sannanir
væru fyrir því
að Vincent
Foster, aðstoðarmaður Clintons
forseta, heföi verið myrtur.
Foster fannst látinn í almenn-
ingsgarði í Washington í júlí í
fyrra og var úrskurðað aö hann
hefði svipt sig lifi. Nýlega hafa
' þó komið fram efasemdir um aö
rannsóknin hafi verið nógu góö.
Byssa fannst í hendi Fosters og
aö sögn lögreglu voru geröar
rannsókxúr á henni. Embættis-
menn sögðu fyrir skömmu að
ekki væri öruggt að byssan hefðí
veriö skoðuö.
Milljónerarí
Færeyjum
þurrkaðirút
Enginn Færeyingur hafði
meira en eina milljón danskra
króna í árslaun árið 1992 en það
samsvarar um tíu miUiónum ís-
lenskra króna. Fjöldi milljóna-
mæringa, í dönskum krónum tal-
ið, féll því úr 38 áriö 1991 í núll.
Þetta kemur fram í gögnum
sem færeyska hagstofan hefur
sent frá sér um skattskyldar tekj-
ur fyrir árið 1992.
Stór hluti milljóneranna fyrr-
verandi þénuðu þetta árið milli
átta hundruð þúsund og eina
miUjón danskar krónur og fjölg-
aði þessum hópi milli ára úr 32
1991 í 60 1992.
Stærstur hluti Færeyinga var
hins vegar með milli 75 þúsund
og 250 þúsund danskar krónur í
skattskyldar tekíur.
Danirmisiiota
svefnlyfmestá
Danir misnota tauga- og svefh-
lyf manna mest meðal Norður-
landabúa ogtil að bæta gráu ofan
á svart hafa þeir ekki í nein hús
að venda til aö fá aöstoð við að
kasta af sér oki lyfjamisnotkun-
arinnar.
Að sögn blaðsins Det Fri Aktu-
elt eru milli 100 þúsund og 300
þúsund Danír háöir tauga- og
svefnlyfjum. En þótt misnotkun
lyfjanna hafi dregist saman um
20 til 25 prósent á undanfórnum
fimmtán árum hefur þeim sem
misnota lyfin ekki fækkað heldur
þvert á mótL
Castrokennir
CIAum langan
Fidel Castro
Kúbuleiötogi
segist ekki hafa
uppi nein
áíönn um að
setjast í helgan
stein og hann
kennir banda-
rísku leyni-
þjónustunni, CIA, um að hann
hafi verið svona lengi við völd þar
sem henni hafi mistekist aö koma
honum fyrir kattarnef. Nú eru
liðin rúm 35 ár frá því Castro
komst til valda.
Castro sagði þetta í urafangs-
miklu viötali við bandaríska
tímaritiö Vanity Fair og þar sagð-
ist hann ennfremur vera skiin-
ingsríkur á öll framþjáhöld Clint-
ons Bandaríkjaforseta. Slíkt væri
dyggð sums staöar í Rómönsku
AmeríkU. Heuter, Ritzau
Solzhenítzyn
við heimferð
Rússneski
rithöiundurinn
Alexander
Solzhenítsyn,
sem liefur ver-
iö í útlegð frá
heimalandinu í
tuttugu ár, seg-
ist búast við
harðri andstöðu við heimferð
sína. Hann gerir jafnvel ráö fyrir
að lífi hans veröi ógnaö af mönn-
um sem gráta hvemig fór fyrir
kommúnismanum í Rússlandi.
Solzhenítsyn sagði í viðtali við
timaritið New Yorker að hann
hefði lokið höfundarstarfi sínu
og hann ætlaði heim til að upp-
fylla skyldur sinar við Rússland
en ekki til að verða áberandi í
sjjómmálalífi landsins.
HenningCarlsen
gevirmyndum
bók Hamsuns
Danski kvikmyndaleikstjórinn
Henning Carlsen ætlar að heija
tökur á nýrri mynd eftir sögu
norska rithöfundarins Knuts
H|msuns, Pan, í júlí í sumar.
Sagan segir frá ástum i meinum
og er ráðgert að frumsýna mynd-
ina í ágúst á næsta ári.
Carlsen geröi á sínum tíma
mynd eftir annarri bóks Ham-
suns, Suiti, og hlaut mikið lof fyr-
ir. Danska kvikmyndastofnunin
veitt 18 milljónir króna til gerðar
Pan. Heildarkostnaðurinn við
gerð hennar verður hins vegar
um 250 miUjónir íslenskra króna.
Norsk Hydro
dregur úrál-
framleiðslusinni
Norska iðnfyrirtækið Norsk
Hydro hefur ákveðið að minnka
ársframleiðslu sina á áli um sjö-
tíu þúsund tonn. Samdrátturinn
er til bráöabirgða en ákvörðunin
um hann var tekin eftir að helstu
álframleiðendur heims ákváöu
að reyna aö stemma stigu við of-
framboöi á heimsmörkuðum.
Umframíramleiðslan hefur leitt
til mikils verðfalls á álmörkuðum
en með samdrættinum er vonast
til að verðlag fari hækkandi á ný.
Samdrátturinn i álframleiðslu
Norsk Hydro gengur í gildi um
mánaöamótin mars og apríl. í til-
kynningu frá fyrirtækinu er ekki
sagt hversu mikið aörir framieiö-
endur ætla að draga saman segl-
gangurínorsku
Gro Hariem
Brundtland,
forsætisráö-
heina Noregs,
getur verið
ánægð með
nýjustu efna-
hagstölur frá
norsku hag-
stofunni en þær benda greinilega
til þess aö uppgangur sé í norsku
efhahagslífi eftir langvinnasta
samdráttarskeið frá lokum
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Fram til þessa hefur vöxturinn
helst verið í fjárfestingum í olíu-
iönaði en nú eru einkaneysla og
fjárfestingar á fastalandinu á
góðri leið með að verða meiri,
segir í skýrslu hagstofunnar.
Fjárhagur fyrirtækja og heim-
ila 1 Noregi hefúr smám saman
farið batnandi að undanfórnu eft-
ir áföll i lánamálum á miðjum
níunda áratugnum,
Reuter, Ritzau, NTB