Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1994, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994
5
Fréttir
Jón Steinar um málarekstur vegna verklagsreglna tryggingafélaganna:
Oheppilegt en eðlilegar
skýringar á drættinum
- aöalatriðið að bætur fáist samkvæmt réttum mælikvarða
„Þaö eru að hluta til eðlilegar skýr-
ingar á þeim langa tíma sem það tek-'
ur að afgreiða þessi mál í saman-
burði við opinber mál. Það er nú
reynt við Héraðsdóm Reykjavíkur
að hraða opinberu málunum og það
er í sjálfu sér til fyrirmyndar. Hins
vegar er það alveg rétt að mörg þess-
ara slysamála hafa tekið mjög langan
tíma,“ segir Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttarlögmaður.
Frá því snemma á árinu 1992 hafa
einstaklingar rekið mál á hendur
tryggingafélögunum. Ástæðan er sú
að í nóvember 1991 tóku tryggingafé-
lögin upp nýjar verklagsreglur sem
kveða á um uppgjör bóta vegna lík-
amstjóns. Ef bótaþegi sættir sig hins
vegar ekki við þessa afgreiðslu svara
tryggingafélögin því til að hann skuh
bíða í 3 ár og sanna síðan að hann
hafi orðið fyrir því tjóni sem örorku-
tjónsútreikningar segja til um. Þegar
hafa nokkrir dómar gengið í málum
sem þessum og hafa flestir þeirra
fallið tjónþolum í vil.
Rekstur einkamála gengur þannig
fyrir sig að gefin er út stefna og mál-
ið þingfest í kjölfarið. Að því búnu
fær stefndi um tveggja mánaða frest
til að skrifa greinargerð um máhð.
Síðan fer máhð um þremur mánuð-
um eftir þingfestingu í úthlutun til
dómara. Þá er ekkert að vanbúnaði
að reka máhð og flytja það og dæma
það.
„í þessum málaflokki hafa vátrygg-
ingafélögin mótmælt því aö hefö-
bundið örorkumat sé nægilega góöur
mælikvarði á fjárhagslegt tjón. Þá
hafa þau beðið um dómkvaðningu
matsmanna, sem eru lögfræðingur
og læknir, til að meta örorku tjón-
þola og afleiðingar fyrir vinnuhæfni
hans. Það er óneitanlega þannig að
mál taka langan tíma ef matsmenn
eru kvaddir til. Þetta hefur verið
mýgrútur af málum, sami hópur sem
hefur verið dómkvaddur í þetta og
það hefur tekið marga mánuði að fá
slíkar matsgerðir. Fyrst og fremst
hefur þetta tafið málsmeðferðina,“
segir Jón Steinar.
Hann segir að auðvitað sé þessi
dráttur óheppilegur en þetta sé
ásættanlegt því verið sé að reka mál-
in eftir settum reglum. „Aðalatriðið
fyrir tjónþolann er að fá sínar bætm-
ákveðnar samkvæmt réttum mæh-
kvarða en vissulega er bagalegt ef
það tekur allt of langan tíma. Þetta
er þó kannski ekki jafn langur frest-
ur og við efra stigið ef dómum er
áfrýjað. Þá byrjar nú fyrst biötími
sem fer í ekki neitt. Vegna þess að
éftir að mál er tilbúið í Hæstarétti
líður hálft þriðja ár þar til það fæst
flutt," segir Jón Steinar.
-PP
Fjöldi manns var i góðu veðri í Skálafelli um helgina og mynduðust stund-
um biðraðir við skíðalyfturnar. DV-mynd ÞÖK
Sakamál þriggja útlendinga afgreidd á 2-3 vikmn:
Gæsluvardhaldstími og
þjóðerni skipta máli
- segir Friðgeir Bjömsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur
„Við reynum aö taka tillit til þess
að þegar útlendingar eiga í hlut eru
þeir hér yfirleitt á hótelum og ekki í
sínu heimalandi. Þess vegna er reynt
að hraða afgreiðslu þeirra mála.
Einnig ber að lita til þess að gæslu-
varðhald Hohendingsins, sem var
dæmdur fyrir skömmu, rann út
sama dag. Yfirleitt er reynt að dæma
í málum áður en gæsluvarðhald
rennur út. Þá skiptir ekki máli hvort
um er að ræða útlendinga eða íslend-
inga. Ef það tekst ekki þarf annað
hvort að framlengja gæsluvarðhald-
ið, setja sakboming í farbann eða
sleppa honum," segir Friðgeir
Bjömsson, dómstjóri Héraðsdóms
Reykjavikur.
Nýverið hefur Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmt í málum þriggja
útlendinga sem hafa verið teknir
með fikniefni. Athygli vekur að að-
eins hafa liðið um tvær til þrjár vik-
ur frá þvi þeir hafa verið handteknir
þar til dómur gengur í máh þeirra. í
að minnsta kosti tveimur málanna
gekk dómur sama dag og málin vom
þingfest.
Friðgeir segir einnig að það auð-
veldi mjög meöferð þessara mála að
hægt sé að ganga aö sakbomingum
vísum á einum stað. Oft þurfi að leita
að ákærðum mönniun úti um aht
land til að færa þá fyrir dóminn.
-PP
FYRIRTÆKIASALAN
\/A DCI A Síðumúli 15 • PállBergsson
VAKjLA Simi812262 • Fax812539
Skyndibitastaður
í Kringlunni 8-12 til sölu af
sérstökum ástæðum.
Gott tækifæri fyrir matargerðarfólk.
Upplýsingar á skrifstofu okkar,
Síðumúla 15, á skrifstofutíma.
markt
TOPP 40
I HVERRI VIKU
íslenski listinn er birtur í DV á hverjum fimmtudegi og á
fimmtudagskvöldum á milli kl. 20 og 23 kynnir Jón Axel
Ólafsson stöðu laganna á Bylgjunni og greinir frá sög-
um á bakviö athyglisveröa flytjendur og
lög þeirra. Á Bylgjunni, laugardaga milli
kl. 16 og 19 er staöa laganha 40 svo t.'
'5
kynnt á ný og þau endurflutt. y
60TT UTVARPI
/. Bylgjunnar c _
YFirumsjón og handrit eru I hóndum Ágústs Héóinssonar, framkvaemd I hóndum starfsföiks DV en tæknivinnsla fyrir Otvarp
er unnin af Þorsteinl Asgeirssyni.