Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1994, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1994, Síða 17
16 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 17 Iþróttir Lillehammer’94 ©» j; 12-27 Feb. 1994 Suður-Afrika med Suður-Afríka á keppendur á vetrarólympíuleikum í fyrsta skipti í 34 ár, eöa frá því landiö var útilokað frá alþjóðlegri keppni árið 1960 vegna aðskilnað- arstefnunnar. Tveir skauta- hlauparar voru sendir þaðan til Lillehammer. Eínnfráisrael ísrael á í fyrsta skipti þátttak- anda á vetrarleikum, en hann er fyrrum Úkraínumaður og keppir í listhlaupi á skaulum. Gáðveðurspá Spáð er hagstæðu veðri fyrir opnunarhátíðina í Lillehammer á laugardaginn, þurru og björtu, og 9-15 stiga frosti. Mikill snjór Það vantar ekki snjó I Lille- hammer, helst að það sé of mikið af honum. Jafnfallinn snjór þar er 1,30 m, aðeins Qórum sentí- metrum frá 42 ára gömlu staðar- meti. Stokkið rneð eldinn Ólympíueldurinn mun birtast á óvenjulegan hátt á opnunarhátíð- inni því skíðastökkvarinn Ole Gunnar Fidjestoel stekkur með hann inn á leikvanginn. VæntingaríNoregí Norðmenn vonast eftir því aö skíöagöngumenn þeírra leiki sama leik og á síðusiu leikum, í Albertville, þegar þeir fengu 5 gullverðlaun, en þjálfari þeirra, Inge Braaten, segir aö aðrir hafi tekið upp þjálfunaraðferðir og áburðamotkun Norömanna og því sé forskot þeirra á þeim svið- um horfið. Harding bíður í viku Næsta þriöjudag, 15. febrúar, mun bandaríska ólympíunefndin ákveða á fundi i Ósló hvort leyfa eigi Tonyu Harding að keppa í Ullehammer, en hún liggur und- ir grun um að hafa lagt á ráðin um árás á keppinaut sinn, Naney Kerrigan. Keppt23.febrúar Keppni í listhlaupí á skautum hefst ekki fyrr en 23. febrúar og þaö er nóg fyrir Bandarílgamenn að tilkynna hverjir keppa fyi-ir þeirra hörid tveimur dögum áður. Alþjóða skautasambandið hafnaði í gær beiðni Bandaríkja- manna um aö Harding og Kerrig- an fengju sinn æfingatímann hvor í Lillehammer fyrir koppn- ina. Kemaan ðttast kulda Nancy Kerrigan vill helst sleppa því að taka þátt í opnunar- hátíðinni vegna kulda en líklegt er aö hún verði valin fánaberi Bandaríkjanna. Verðlag hefur rokið upp úr öllu valdi í Lilléhammer, Það er helst matur og drykkjarvörur sem hafa hækkað auk ieiguherbergja. Herbergi með tvíbreiðu rúmi í eina nótt getur kostaö allt að 40 þúsundum króna. Sameining handknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur 12 ár dregur dilk á eftir sér: Munum ekki líða þetta og drögum menn til ábyrgðar Ægir Már Kárason, DV, Sudumesjunu Handknattleiksdeildir Keflavíkur og Njarðvíkur skulda hátt á sjöttu milljón króna frá þeim tíma er deild- irnar sendu sameiginlega til keppni á íslandsmóti 2. deildar í handknatt- leik keppnistímabilin 1991-1992 og 1992-1993. Skuldin hækkar dag frá degi vegna dráttarvaxta og annars kostnaðar, meðal annars lögfræði- kostnaðar. Mikill órói er nú á suður- nesjum vegna þessa máls og íþrótta- bandalag Suðumesja íhugar aðgerð- ir til aö draga fyrrum stjómarmenn HKN til ábyrgðar vegna skuldarinn- ar. Stærsti hluti skuldarinnar er til- kominn vegna erlendra leikmanna í karla- og kvennaflokki HKN. HKN aflaði tekna vegna erlendu leik- mannanna með því að kaupa ýmsar vörur og selja þær síðan til þess að borga erlendu leikmönnunum. HKN greiddi síðan aldrei fyrir vörurnar samkvæmt heimildum DV. „Munum draga þetta fólk til ábyrgðar" „Vegna tengsla íþróttahreyfingar- innar við þessa aðila sem HKN skuldar hafa bandalögin farið út í það að semja við þá. Síðan, í fram- haldi af því, munum viö draga þetta fólk sem var í stjóm til ábyrgðar," sagði Gunnlaugur Hreinsson, for- maður íþróttabandalags Suðurnesja, í samtah við DV í gærkvöldi. „Við höfum þegar samiö um hluta af skuldunum. íþróttabandalag Suð- umesja og íþróttabandalag Keflavík- ur munu ekki líða það að þetta fólk sem stofnaði til þessara skulda geti gengið burt frá þessu án þess að taka nokkuð á sig. Þessi rekstur var al- gert mgl frá upphafi. Farið var út í það að ná í erlenda leikmenn bæði í karla- og kvennaflokki þegar vitað var að aldrei yrði bolmagn til að greiða kostnaðinn sem því var sam- fara. Þetta var vitað fyrirfram vegna þess að hver leikmaður kostar lág- mark eina og hálfa milljón fyrir eitt tímabil,“ sagði Gunnlaugur Hreins- son í samtali við DV í gærkvöldi. Hinrik Gunnarsson i liði Tindastóls, til hægri, og Brynjar Karl Sigurðsson, Val, stinga saman nefjum í leik liðanna i gærkvöldi. DV-mynd GS 71 klukkustund ffrá Lillehammer Ríkissjónvarpið mun senda út samtals í sjötíu og eina klukku- stund frá vetrarólympíuleikun- um í LUlehammer dagana 12.-27. febrúar og þar af verða fjörutíu og níu tímar í beinni útsendingu. Ef opnunardagurinn, laugar- dagurinn kemur, er undanskil- inn verða beinar sendingar alla dagana og þá jafnan á morgnana eða um og eftir hádegið. Lokaat- höfn leikanna verður þó í beinni útsendingu sunnudagskvöldiö 27. febrúar. Beinar sendingar verða frá keppni í öllum alpagreinum, skíðagöngu, skautahlaupi, skíða- fimi, skíðaskotfimi, skíðastökki og úrslitaleiknum í íshokkí. Opnunarhátíöin á laugardag verður tekin upp og sýnd klukk- an 17 sama dag og þá um kvöldið, klukkan 23:15, verður samantekt áatburðumdagsins. -VS I kvöld 1. deild karla í handbolta: Stjarnan-KR............20.00 FH-Afturelding. ÍR-Þór Valur Víkingur ÍBV - Selfoss,. KA - Haukar • ♦»*♦»*♦♦•«♦• •♦♦••♦••♦►•♦►♦♦*>«>*4 .20.00 .20.00 .20.00 .20.00 .20.30 1. deild kvenna í handbolta: Valur-ÍBV........................18.00 Grótta KR..,,,...................,,...20,00: 2. deild karla í handbolta: IH — HK...... ...«> ■,.,.•.«•«•20,00 Úrvalsdeildin í körfuboita: Snæfell-KR...................20.00 Bikar karla i blaki; ÞrótturR.-ÍS.................18.30 Stjarnan - HK................20.30 Bikar kvenna í blaki: ÍS-KA..................20.00 Syrtir í álinn hjá Valsmönnum - HHöarendaliðið tapaði fyrir spræku liði Tindastóls, 98-103 Valur Tindastóll (44) 98 6-5, 14-14, 25-25, 37-17, (44-56), 56-70, 69-90, 80-91, .91-96, 95-98, 98-103. Stig Vals: Franc Booker 42, Ragn- ar Þ. Jónsson 26, Brynjar K. Sig- urðsson 14, Bragi Magnússon 9, Bérgur Emilsson 5, Björn Sig- tryggsson 2. Stig Tindastóls: Robert Buntic 33, Lárus D. Pálsson 18, Páll Kol- beinsson 17, Ingyar Onnarsson 14. Ómar Sigmarsson 11, Hinrik Gunnarsson 10. 3ja stiga körfúr: Valur 19 (Ragn- ar 8, Booker 7) Tindastóll 10. Vítanýting: Valur 20/17, Tinda- stóll 31/22. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristján Möfler, mjög göðir. Áhorfendur: um 200. Maður leiksins: Robert Buntie, Tindastóli. „Þetta var geysilega mikilvægur sigur og við erum nú búnir að hirða 8 stig af þeim 12 sem við höfum með því að vinna liðin í B-riðlinum. Við erum með sama stiga- fjölda og Skallagrímur sem er að berjast um sæti í úrslitakeppninni. Þetta sýnir hversu miklu sterkari A-riðilhnn er. Við fórum að tefja leikinn of snemma og slaka á og það gengur ekki á móti leikmanni eins og Booker. Liðið okkar er það ungt og óreynt að það má ekki við því að slaka neitt á,“ sagði Páll Kolbeinsson, leikmaður Tindastóls, eftir að Stólamir höfðu borið sigurorð af Vcd, 98-103, í mjög skemmtileg- um leik að Hlíðarenda í gær. Stólamir virtust vera að búnir tryggja sér ömggan sigur þegar þeir náðu mest 21 stigs forskoti og átta mínútur eftir en Franc Booker var á öðru máli. Hann rað- aði niður hverri þriggja stiga körfunni á fætur annarri og á fimm mínútum höfðu Valsmenn nær unnið þennan mun upp. Síðustu tvær mínútumar vom mjög spennandi en hinir ungu leikmenn Tinda- stóls héldu haus og þáttur Páls á vítalín- unni vó mjög þungt. Það er óhætt að segja að hittni leik- manna utan þriggja stiga línunnar hafi verið góð. Valsmenn gerðu hvorki fleiri né færri en 19 slíkar og Stólamir 10. Mun- urinn á liöunum var hins vegar í fráköst- unum og þar má segja að leikurinn hafi unnist. Leikmenn Tindastóls vom nær einráðir gegn smávöxnum leikmönnum Vals og þessir hlutir vega þungt í körfu- knattleik. Booker og Ragnar Þór Jónsson voru að vanda í lykilhlutverkum í hði Vals og skoruðu bróðurpartinn af stigum liðsins. Valsmen sitja því sem fastast í botnsæti úrvalsdeildarinnar og verða að taka sig verulega á ef ekki á illa að fara. Lið Tindastóls á framtíðina fyrir sér enda flestir leikmenn liðsins ungir að árum og stórefnilegir og verður gaman að fylgjast með þessu liði á næstunni. Króat- inn Robert Buntic var mjög ömggur undir körfunni, Páll spilaði sína menn uppi með glæsibrag og þeir Hinrik Gunnarsson, Lárus Pálsson og Ingvar Ormarsson sýndu góð tilþrif. -GH Fjölmennifylgir íslensku keppendunum Fararstjórar, þjálfarar og að- stoðarmenn íslensku keppend- anna á vetrarólympíuleikunum í Lillehammer verða 9 talsins eða nær helmingl fleiri en keppend- urnir. Aðeins 2 þeirra fara þó á leikana frá íslandi en hinir 7 em búsettir í Noregi og Svíþjóð. Sigurður Einarsson fararstjóri og Sigurveig Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari fóru utan í morgun. Svein Bye, þjálfari alpaliðsins, er búsettur í Noregi, sem og aðstoðar- fólkið Anna Björk Bjamadóttir og Ólafur Bjömsson og Sigríður Jón- asdóttir, sem er ólympískur tengil- iður liðsins. Bo Eriksson, þjálfari göngumannanna, Hans Anders Is- aksson, aðstoðarmaður hans, og Hans Ottoson, aðstoöarmaður alp- aliðsþjálfarans, eru búsettir í Sví- þjóð. Islensku keppendumir fimm em við æfingar í Noregi, Svíþjóð og Austurríki en safnast síðan saman í Lillehammer. -VS Amarog Bjarki Gunnlaugssyn- ir léku báðir með varaliði Fey- enoord gegn varaliöi Ajax í hol- 1 ensku knattspyrnunni í gær- kvöldi. Amar lék fyrri hálíleik- inn og Bjarki þann síðari og áttu þeir báðir ágætan leik. Ajax sigr- aöi á heimavelli sinum, 3-0. : Þjálfaii Feyenoord hefur sagt að hann vilji hafa þá tvíbura áfram hjá liðinu en líklegast er að þeir verði leigðir til liðs í Belg- íu eða Hollandi. Arnar og Bjarki sögðu í samtaliyvið DV í gær- kvöldi að jæim þætti það freist- andi að fara til Belgíu. -SK/-EE Holiandi Stjarnan slapp með skrekkinn Ósigurinn gegn Víkingi í undanúrslitum bikarkeppninnar um síðustu helgi virtist sitja í Stjömustúlkum er þær mættu Haukum í 1. deild kvenna í handknattleik í gærkvöldi. Stjaman vann þó nauman sigur, 18-17, eftir að hafa haft yfir í leik- hléi, 8-6. Mörk Stjörnunnar: Una 4, Guðný 4, Ragnheiður 3, Helga 2, Ásta 1, Hmnd 1, Herdís 1, Margrét 1, Þuríður 1. Mörk Hauka: Kristin 7, Harpa 5, Ragn- heiður 3, Rúna 2. Systurnar gerðu 14 mörk Víkingur vann Fram, 23-19, í Víkinni í gær- kvöldi. Systumar Guðríöur, Díana og Haf- dís Guöjónsdætur gerðu 14 af mörkum Fram í leiknum. Mörk Víkings: Inga Lára 7, Halla 4, Hulda 3, Heiða 3, Hanna 2, Matthildur 2, Svava S. 1, Heiðrún 1. Guðríður var markahæst hjá Fram með 8 mörk. -BL/-HS Stuttar fréttir Jimmy Nicholl verður líklega næsti ' þjálfari noröur írska landsliðsins í knattspymu, en Chris NichoU, Bryan Hamilton, Gerry Armstrong og Terry Neill hafa einnig komið til greina. Færeyingar fá Grikki í heim- sókn þann 7. september, í fyrsta leik sínum í 8. riðli Evrópukeppni landsliða í knattspymu. Leilgum I riðli islands í Evrópu- keppninni í knattspyrnu verður ekki raðað niður fyrr en 12. mars, en þá funda fulltrúar þjóðanna / fimm í Sviss. Ásgeir Elíasson landsliðsþjálfari og Eggert Magn- ússon, formaður KSI, fara utan fyrir íslands hönd. FluttafWembley? Enska knattspyrnusambandið íhugar að flytja alla landsleiki yfir á Old Trafford í Manchester ef vallaryfirvöld á Wembley lækka ekki ieigu sína. Howard Wilkinson, fram- kvæmdastjóri enska knatt- spymuliðsíns Leeds, framlengir væntanlega samning sinn við fé- lagið i kvöld til 1. júlí 1997. Southampton keypti Southampton festi í gær kaup á Craig Maskell, sóknarmanni frá Swindon, og var kaupverðið 200 þúsund pund. Þá fengu Þorvaldur Örlygsson og félagar hans í Stoke hösstyrk i gær en þá keypti félag- iðvarnarmanninnJohnClarkfrá Dundee Utd. í Skotlandi. Kevin Keegan, stjóri Newcastle, er aö svipast um eftir sterkum varnarmanni og hefur hann leit- að á meginland Evrópu. Keegan hefur boðið 750 þúsund pund í Van Gobbel, sem leikur með Fey- enoord, og þá hefur hann auga- stað á Philippe Albert, leikmanni Anderlecht. UmpartilJapans? Svíinn Anders Limpar, ; sem leikur með Arsenal, hefur verið orðaður við félag í hinni nýju jap- önsku atvinnumannadeild. Limpar fékk tilboð í fyrra en þá ; neitaði ; Geprge; Graham, stjóri Arsenal, honum um sölu en nú virðist vera komiö annað hljóö í strokkinn. Arsenalvillffiinto Arsenal hefur mikinn áhuga á að fá Scott Minto. 21 árs gamlan varnarmann frá Charlton, til liðs við sig. Georgc Graham sér Minto sem arftaka Nigel Winterburn í stöðu vinstri bakvarðar. Minto er í 21 árs liði Englands og þykir framtíðarlandsliðsmaður. Tvönýí4.deild Tvö ný lið liafa bæst við 4. deild- ina í knattspyrnu og þar verða þvi 32 lið en ekki 30 eins og sagt var frá í DV á dögunum. Nýju lið- in eru GoUklúbbur Grindavíkur og UMF Ökkiinn úr Reykjavík. sem vann í utandeildakeppninni í fyrra. Iþróttir Ralph Harding, fyrrum þing- maður í Bandarikjunum, er að stofna Asíudeild í körfuknattleik, sem hann vonast til að keppi viö NBA-deildina um vinsffildir í framtíðinni. Deildin byrjar í haust með sex liðum, frá Kína, Taiwan, Japan, Hong Kong, FiIIippseyj um og Suður-Kóreu, og verða fjórir bandarískir leik- menn í hveiju liöi. _vs/GH Reynt að trafla vítaskyttur með nektarmyndum Ungir körfuknattleiksunnendur á Sauðárkróki hafa reynt nýjar aðferðir undanfarið til að koma í veg fyrir góða nýtingu andstæðinga Tindastóls í vítaskotum. Þegar andstæðingarnir fara á vitalínuna hefja þeir nektar- myndir á loft á bak við körfuspjaldið og reyna með þvi að trufla einbeitingu þeirra sem vitaskotin fram- kvæma. Ekki er vitað hvort vítanýtingu andstæðinga Tindastóls hefur hrakað vegna uppátækja peyjanna á Króknum. -SK/-DV-mynd GS NBA-deildin í körfuknattleik 1 nótt: Dallas með tak á Minnesota - fjórði sigur botnliösins á sama liði Dallas Mavericks er langneðst í NBA-deildinni í körfuknattleik en samt vann hðið í nótt sinn fjórða sig- ur á Minnesota í vetur, í fimm viður- eignum liðanna. Dallas hefur aðeins unnið einn leik gegn öðru liði í vet- ur! Jamal Mashburn og Jimmy Jack- son skoruðu 24 stig hvor fyrir Dallas en Doug West 24 fyrir Minnesota. Úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Cleveland - New Jersey ,.112-104 Dallas - Minnesota ..108-105 (eftir framiengingu) Milwaukee - Houston San Antonio - Washington Denver - Utah ..106-98 „110-90 .. 95-96 LA Clippers - Chicago .. 89-118 LA Lakers - Phoenix .107-104 Portland - Sacramento .124-100 Robinson sterkur gegn Washington David Robinson var í miklu stuði með San Antonio því hann skoraði 31 stig, tók 14 fráköst, átti 10 stoð- sendingar og varði 7 skot, þegar Uð hans vann sinn áttunda leik í röð. Michael Adams skoraði 25 stig fyrir Washington. Jeff Malone skoraði sigurkörfu Utah í Denver 12 sekúndum fyrir leikslok. Karl Malone skoraði 24 stig fyrir Utah en Rodney Rogers 23 fyrir Denver. Scottie Pippen og Horace Grant gerðu 22 stig hvor fyrir Chicago sem vann Clippers í níunda skiptið í röð. Danny Manning skoraði 22 stig fyrir Clippers. Eric Murdock skoraöi 28 stig og átti 12 stoðsendingar fyrir Mil- waukee en Hakeem Olajuwon skor- aði 27 stig fyrir Houston. Mark Price skoraði 26 stig fyrir Cleveland en Kenny Anderson 22 fyrir New Jersey. Clyde Drexler skoraði 21 stig fyrir Portland en Wayman Tisdale 26 fyrir Sacramento. Enn tapar Phoenix fyrir Lakers Lakers vann Phoenix í þriðja sinn í jafnmörgum leikjum í vetur. Sedale Threatt skoraði 26 stig fyrir Lakers og Vlade Divac skoraði 19, tók 15 frá- köst og varði 7 skot. A.C. Green skor- aði 28 stig fyrir Phoenix og Cedric Cebalios22. -VS Bikarúrslitaleikirnir færðir? Handknattleikssamband íslands hefur óskað eftir því að bikarúrslita- leikirnir, sem fram áttu að fara 20. febrúar, verði færðir tál, kvennaleik- ur ÍBV og Víkings til 19. febrúar en karlaleikur FH og KA til 5. mars. Ástæðan er sú að Ríkisútvarpið getur ekki sýnt báða leikina beint á upp- haflegri dagsetningu vegna vetrar- ólympíuleikaniia í Lillehammer. KA og FH eru ekki sátt við þessa breyt- ingu og fulltrúar félaganna funda með stjóm HSÍ í dag. -VS David Platt skoraðl fyrir Sampd- oria í gærkvöldi. úr bikarnum Blackbum Rovers, sem er eina hðið í dag sem ógnað getur veldi Manchoster United í ensku úr- valsdeildinni, mátti i gærkvöldi bíta í það eldsúra epli að falla ut úr ensku bikarkeppninni. Blackbum mætti 1. deildar liði Charlton og tapaði á heimavelh sínum, 0 1. Charlton er því komiö í 8-liða úrslitin. Sampdoria vann Parma Sampdoria vann í gærkvöldi sig- ur í fyrri leik sinum gegn Parma i undanúrslitum i ítölsku bikar- keppninnar. Lokatölur 2-1. Faustino Asprilla kom Parma yfir á 31, minútu en þeir Attilio Lombardo og David PJatt tryggðu Sampdoria sigur með tveimur mörkum á jafn mörgum mínút- um í síðari hálfleik. • St.Johnstone vann Motherwell á heimavelli, 2-1, í skosku úrvals- deildinnl í gærkvöldi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.