Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 3 i>v Fréttir Einn piltanna 1 árásarmálinu var dæmdur á föstudaginn: Fékk árs f angelsi fyrir 30 innbrot á 43 dögum - slapp úr varðhaldi sama dag og dómur gekk Annar piltanna, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald til 5. maí vegna árásar á þrjá unga menn í miðbæn- um aðfaranótt síðastliðins sunnu- dags, var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag. Samtals brotnuðu 13 tennur í munni eins þeirra sem ráðist var á, annar hand- leggsbrotnaði og sá þriðji rifbeins- brotnaði. Umræddur piltur hafði ekki hafið afplánun dóms síns þar sem frestur hans til að áfrýja honum til Hæstaréttar var og er ekki liðinn. Pilturinn var dæmdur fyrir inn- brot í 29 söluturna, myndbandaleig- ur og sendibílastöð þar sem hann meðal annars stal um 900 þúsund krónum, þar af rétt rúmlega 800 þús- und krónum úr tæplega 30 spilaköss- um sem hann sprengdi upp ýmist einn eða í félagi við aðra á tímabilinu 13. janúar síðastliðinn til 24. febrúar. 28. febrúar var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. apríl en Hér- aðsdómur felldi úrskurðinn úr gildi þegar hann dæmdi piltinn í árs fang- elsi óskilorðsbundið á föstudag fyrir fyrmefnd afbrot. Þrátt fyrir að vera aðeins rúmlega 16 ára hefur piltur- inn hlotið tvo skilorðsbundna dóma, samtals 6 mánuði, fyrir sams konar afbrot og ákæru einu sinni verið frestað á hendur honum. Fyrri dóm- ar voru felldir inn í refsingu þá sem honum var gerð. Héraðsdómur tók tillit til ungs ald- urs piltsins og þess að hann játaði brot sín greiðlega. Á móti kom mik- ill fjöldi brota og að andvirði þess sem hann tók var yfir 800 þúsund krónur. Einnig það að hann stundaði brot sín sem um atvinnu væri að ræða. Auk þess að dséma umræddan pilt voru fjórir aðrir ungir menn á aldrinum 19 til 23 ára í fangelsi, einn skilorðsbundið, tveir í 6 mánaða fangelsi óskilorðsbundið og einn í eins árs óskilorðsbundið fangelsi. Álit sérfræöinga: Frelsissvipting og meðferð eræskileg „Það eru alltaf einhverjir einstakl- ingar sem eru ofbeldishneigðir og afbrotagjarnir. Þessir krakkar sem standa í þessu eiga það yflrleitt sam- eiginlegt að hafa alist upp við erfið skilyrði. Fangelsi er ekki alltaf lausnin fyrir þennan hóp,“ segir Guðjón Bjarnason sem fer með barnaverndarmál hjá félagsmála- ráðuneytinu. Hann segir þætti eins og lélegt upp- eldi, tíða flutninga, htið tilfmninga- aúæti og svo framvegis spila stóran þátt í persónumótun þessa hóps. „Þegar kemur að bömum og ungl- ingum, sem oft eru mjög sködduð, hefur verið gripið til neyðarúrræða. Nú síðast var sett á laggirnar lokuð deild í Stóru-Gröf í Skagafirði í snar- hasti. Mönnum hugnast samt ekki að loka unga krakka inni. Það getur þurft að gera það um stuttan tíma en það er neyðarúrræði því lokuð dehd er óvenjulegt umhverfi og hálf- partinn eins og fangelsi," segir Guð- jón. Áskell Örn Kárason, forstjóri Ungl- ingaheimihs ríkisins, segir að sér sýnist engir unghngar á aldrinum 15 til 16 ára þurfa á vistunarúrræði í Stóru-Gröf að halda í dag. Hins vegar sé full ástæða til að hafa í huga að fangelsun unglinga á aldrinum 16 til 18 ára, sem eru fastir í afbrotum, sé oft ekki rétta leiðin. Þau úrræði sem þeim séu nauðsynleg em hins vegar dýr og hæpið að menn séu reiðubún- ir að kosta þeim til. Um sé að ræða ómótaða unglinga sem vanti sjálfs- traust og festu í lífinu. Oft sé best að starfa með þeim á félagslegum gmnni. Frelsissvipting geti verið nauðsynleg en umhverfið, sem bíður þeirra í fangelsi, geti gert iht verra. „Það þarf að ná sambandi við þessa krakka, byggja upp öryggiskennd hjá þeim og kenna þeim að gera hlutina öðruvísi en þau gera,“ segir Áskeh. .„Velferðarþjónustan hér á landi á undir högg að sækja. Ráðuneytið hefur verið að hamra á því að þessi mál verði tekin föstum tökum. Það þarf aukna ráðgjöf og það þarf að ná th þessara ungmenna áður en þau verða skemmd," segir Guðjón. -PP sakaferill árásai 16 ára piltur í gæsluva í tvö ár. Ákæran ið, biiþjófnað og . Desember 1992: Héraðsdómur frestar ákæru á hej vargefln út á hendur honum fyrirjj réttindaleysi við akstur. | Maí 1993: Héraðsdómur dæmir piltinn í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi í 3 ár vegna þjófnaðar og nytjastuldár. Desember 1993: , Héraðsdómur dæmir piltinn í 6 tnánaöa skilorösbundið fangelsi í 3 ár vegna þjófnaðar og nytjastuldar, Dómurinn frá því í maí er jafnframt dæmdur með. v - 13. jan. - 24. feb. 1994: ^ Á þessum tíma braust pilturinn'-inft á'29-stöðum. Hann braut upp fjölda spilakassa og haföi upp úr krafsinu rúmlega 800 þúsund, ýmist einn eða í félagi viö annan eða aðra. Einnig var stoliö skiþtimynt. guliúrum, tóbaki. sjónaukum, sælgæti og fleiru. 28. febrúar 1994: Héraösdómur úrskuröar piltinh ísýokallaða síbrotagæslu til 29. apríl. vegna fjölda afbrota. 22. apríl 1994: Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir piltinn í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi og fellir úr gildi gæsluvarðhald hans í leiðinni. „Tillit er tekið til ungs aldurs ákærða viö ákvörðun réfsingar og þess að hann hefur játað brot sín greiölega. Á móti kemur mikill fjöldi brota ogaö ándvirði þess sem ákærði tók... Ákærði hefur stundaö brot sín sem um atvinnu værir að ræða,“ segirí dómnum. Fyrri dómar voru felldir inn í refsingu þá sem honum var gerð. ■--- 24. apríl 1994: |g| - ' Pilturinn á þátt í árás seön ef-tii rannsóknar hjá RLR. í árásinni voru 13 tennur slegnar úreinu fórnarlambanna með meitli, annaö handleggsbrotnaðl og það þriðja rifbeinsbrotnaði. Pilturinn var úrskurðaður í gæstuvarðhald til 5. maí. 16 ára piltur Hefurekki hlotið dóm fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Hefur hins vegar komið við sögu lögreglu vegna innbrota í fyrra og er þetta fyrsta mál hans á þeésu ári. 15 ára piltur Hefur komiö viö sögú lögreglu fjórum sinnum á þessu ári, meðal annars vegna árásar á mann við söluturn í Breiðholti. Samkvæmt upþlýsingum DV átti hann ekki þátt í líkamsárásinni í því tilviki heldur þeir sem voru handteknir með honum. Hjn málin eru þjófnaöamál, tékkafals og innbrot. DV Innbrotaqenqi upprætt Rannsóknarlögreglan í sam- vinnu við rannsóknardeild lögregl- unnar í Hafnarfirði handtók á mánudag fimm þrettán th íjórtán ára pilta sem viðurkenndu innbrot í sex mannlaus einbýlishús. Innbrotin áttu sér stað á seinustu þrem vikum og var skartgripum, gjaldeyri, hljómtækjum, mynd- bandstækjum og fleiru stolið. Þýfið er mestallt komið í leitirnar. Piltunum var sleppt eftir yfir- heyrslur en enginn þeirra hefur komið áður við sögu lögreglu. -PP Kostnaður við tannviðgerð fómarlambs allt að 800 þúsund: Sjaldnast tekst að innheimta bætur - segir JónSteinarGunnlaugssonlögmaður „Það þyrfti sérstök lög th að gera ríkið ábyrgt fyrir því að einstakling- ar standi skh á skaðabótum, sem þeir eru dæmdir til að greiða fyrir dómstólum, og þau lög hafa ekki ver- ið sett. Mönnum þykir í sjálfu sér ekkert eðlilegra að ábyrgjast shkar greiðslur heldur en hvaða aðrar greiðslur. Menn verða náttúrlega fyrir skakkaföhum af ýmsum ástæö- um,“ segir Jón Steinar Gunnlaugs- son lögmaður. Tannlæknir sem DV ræddi við tel- ur víst að kostnaður mannsins, sem varð fyrir því að 13 tennur í honum brotnuðu í þegar hann fékk meith framan í sig í átökunum, sem fjallað er um á síðunni, verði á bhinu 400 til 800 þúsund. Ef málið fer fyrir dóm má ætla aö lögð verði fram krafa á hendur þeim sem ohi áverkunum að hann greiði þann kostnað. Jón Steinar segir að í fæstum til- fellum takist þeim sem séu dæmdar bæturnar að innheimta þær. „Þeir sem valda öðrum tjóni með líkamsárásum eru yfirleitt ekki burðarásar í samfélaginu og það eru yfirleitt eignalausir menn, geri ég ráð fyrir, og ekki borgunarmenn fyrir einu eða neinu og því oft tómt mál að ná að innheimta það hjá þeim. Það hefur ekki verið gerð nein könnun á þessu en yfirleitt verða því menn að sitja uppi með sinn skaða sjálfir," segir JónSteinar. -pp Hinn pilturinn, sem situr í gæslu- varðhaldi vegna líkamsárásarinnar, hefur nokkrum sinnum komið við sögu lögreglu vegna svipaðra mála og jafnaldri hans en hvorugur þeirra hefur átt aðild að líkamsárásarmál- um svo vitað sé. Þriðji pilturinn sem átti aðild að málinu er aðeins 15 ára gamall og hefur þegar komiö 4 sinn- um við sögu lögreglu á þessu ári. Fyrir nokkrum vikum kom hann við sögu RLR vegna líkamsárásarmáls sem átti sér stað í Breiðholti þar sem nokkrir ungir phtar réðust að starfs- manni í söluturni sem reyndi að koma í veg fyrir innbrot í söluturn- inn. Samkvæmt upplýsingum DV er phturinn ekki talinn eiga þátt að árá- sinni í því tilviki heldur einungis innbrotinu. Þess má geta að skaðabótakröfur á hendur piltinum, einum eða í félagi við aðra, námu á aðra milljón króna. -PP Bernard Granotier. Bahál-bmninn: Frakkinn á skrá interpol Rannsóknarlögregla ríkisins lýsir eftir Bernard Granotier, 48 ára frönskum ríkisborgara, bú- settum hér á landi, í tengslum við brunami í húsnæði Bahá’ía við Álfahakka aðfaranótt laugar- dags. Samkvæmt upplýsingum RLR er Bernard frönskumælandi en getur gert sig skhjanlegan á ís- lensku. Hann er 182 sm á hæð, dökkhærður og síðast vitaö um feröir hans á föstudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum DV var leitað upplýsinga um Bern- ard hjá Interpol og gáfu þær til- efni th þess að lýst var eftir hon- umhérálandi. -pp Ferðayfirvöld: Upplýsingaskrif- stofaíJapan Borgarráð ætlar að halda áfram að reka upplýsinga- og landkynn- ingarskrifstofu í Tokyo í Japan i samvinnu við Ferðamálaráð ís- lands en að undanförnu hafa is- lensk ferðamálayfirvöld staðiöað markaðsátaki þar í landi. Gert er ráð fyrir að borgaryfir-: völd veiti 1,5 miUjóna króna auk- aljárveitingu til reksturs skrif- stofunnar á þessu ári gegn þriggja tnihjóna króna framlagi Ferðamálaráðs. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.