Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 5 Fréttir KEA tapaði tæpum háKum milljarði á tveimur árum Bækistöðvar Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri. Félagið hefur tapað miklum fjárhæðum síðustu tvö árin. Eigendur Kaupfélags Eyíirðinga eru ekki yfir sig hrifnir af afkomu fyrirtækisins og dótturfyrirtækja þess á síðasta ári, enda tapið veru- legt. Aðalfundur félagsins var hald- inn um helgina á Akureyri og þar kom fram að tap KEA og hlutdeild félagsins í tapi dótturfyrirtækjanna nam á síðasta ári 247 milljónum króna. Árið 1992 var þetta tap upp á 217 milljónir þannig að á tveimur árum hefur KEA verið að tapa um 425 milljónum króna. Verulegur hluti af tapi síðasta árs er vegna hlut- deildar KEA í tapi dótturfélaganna, t.d. var hlutur KEA í tapi vatnsút- flutningsfyrirtækisins AKVA 135 milljónir. Framtíð þess fyrirtækis er mjög í deiglunni og veltur í raun og veru alfarið á því hvemig til tekst með hlutaíjárútboð í Bandaríkjunum sem stendur yfir þessa dagana. 700 milljónir I fjármagnskostnað Magnús Gauti Gautason kaupfé- lagsstjóri segir varðandi rekstur móðurfélagsins, sem tapaöi 51 millj- ón króna á síðasta ári, að í rauninni sé verslunin eini þátturinn í rekstr- inum sem skili betri afkomu en áð- ur. Hins vegar eru aðrir þættir sem vega geysilega þungt þegar afkomu- tölur KEA eru skoðaðar og þá ekki síst fj ármagnskostnaður. Fjár- magnskostnaður KEA umfram fiár- magnstekjur á síðasta ári nam 339 milljónum króna, 332 milljónum króna árið 1992 og því hátt í 700 millj- ónum á tveimur síðustu árum. „Þetta er auðvitað nfiög íþyngjandi fyrir reksturinn en vextir hafa verið allt of háir hér á landi. Þeir hafa sem betur fer farið lækkandi og ef tekst að halda vöxtunum niðri mun það hjálpa okkur verulega. Við höfum líka lækkað skuldir á undanfomum áram“. AKVA stórt vandamál Annað stórt vandamál er vatnsút- flutningurinn sem rekinn hefur ver- iö með bullandi tapi. Hlutdeild KEA í tapi AKVA á síðasta ári er upp á 135 milljónir króna. Forsvarsmenn KEA segja að AKVA hafi veriö í markaðsátaki með vatnið í Bandaríkjunum og í þaö hafi verið eytt miklum peningiun þótt það hafi ekki skilað árangri í sölu enn sem komið er a.m.k. Það hafi hins vegar skilað þeim árangri að vönunerkið er orðið nokkuð þekkt á Boston- svæðinu og þar hafi skapast við- skiptasambönd. Það sé svo spuming- in hvemig tekst að vinna úr því. En þetta kosti peninga og hvort þeir verði fyrir hendi eigi eftir að koma í ljós. Um þessar mundir stendur yfir í Badaríkjunum hlutafiárútboð í vatnsútflutningnum og em boðin hlutabréf að nafnvirði 4-6 milljónir dollarar eða á bilinu 300-400 milljón- ir króna og þaö mun skýrast eftir rúman mánuð hvemig til tekst. Um það er rætt innan fyrirtækisins að gangi þetta hlutafiárútboð ekki upp leggist vatnsútflutningurinn endan- lega af og öll frekari áform í þá vem. Magnús Gauti segist hins vegar vera bjartsýnn á að útboðið gangi vel en vissulega sé engin trygging fyrir því enn sem komið er. Staðan geysisterk • En KEA hefur tapað peningum á fleiri dótturfyrirtaekjum og á síðasta ári var t.d. tap af Útgeröarfélagi Dal- víkinga 25 milljónir, af Dagsprenti Fréttaljós Gylfi Kristjánsson 21 milljón og af Hótel KEA15 milljón- ir, svo eitthvað sé nefnt, og þetta er aðeins hlutur KE A í tapi þessara fyr- irtækja. Á sama tíma er KEA að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum og gerði það t.d. á síðasta ári fyrir 157 milljónir króna. Þar ber langhæst kaup á 111 milljóna króna hlutafé í Hafnar- stræti 87-89 hf., sem er fyrirtæki um rekstur Hótels KE A, og er þar reynd- ar að verulegu leyti um hreytingu á skuld í hlutafé aö ræða. Þeir sem ekki þekkja til þess hversu mikið veldi KEA er gætu ætlað að slíkur hallarekstur, eins og verið hefur undanfarin ár, stefni fyr- irtækinu í voða. Stáðan um síðustu áramót var hins vegar þannig, þrátt fyrir miklar skuldir, að sjóðir og eig- ið fé námu 2,3 milljörðum króna og eiginfiárhlutfall var 32%. í kvótabraskið? í sjávarútvegskafla ársskýrslu KEA kemur fram að ætlunin er að halda uppi tekjum togara félagsins með því að veiöa aðrar tegundir en þorsk og selja í gámum erlendis, sé það hagkvæmt. Á sama tíma verði fengin utanaðkomandi skip til að veiöa þorsk fyrir frystihús félagsins gegn því að leggja til hluta af kvóta. Munu margir hafa orðið undrandi á þeim tíðindum að KEA sé að fara í kvótabraskið svokallaða. Kaupfé- lagssfiórinn vill hins vegar kalla þetta viðskipti en ekki brask. Eftirlaun forstjóranna Þótt menn hafi ekki haft hátt um það er urgur í sumum vegna eftir- launaskuldbindingar KEA en sú skuldbinding nemur um 75 milljón- um króna. Hér er um að ræða samn- inga við Jakob Frímannsson, fyrr- verandi kaupfélagssfióra, ekkju Vals Arnþórssonar og Magnús Gauta Gautason, núverandi kaupfélags- sfióra. Menn hafa ekki hátt um þenn- an samning en það er ljóst af tali DV viö kaupfélagsmenn að þeir „skilja þetta ekki alveg" allir og finnst vera hálfgerð „SÍS-lykt“ af þessu eins og einn þeirra orðaði það. Bati á næsta leiti? Mönnum blandast ekki hugur um að staða KEA er sterk þrátt fyrir erfiðan rekstur undanfarin ár. Mikil hagræðing hefur átt sér stað innan fyrirtækisins og verður henni haldið áfram. Margir eru bjartsýnir á að reksturinn muni lagast verulega á árinu þótt þess sé e.t.v. ekki aö vænta að fyrirtækið skili hagnaði alveg strax. Hversu fljótt batinn komi velti ekki síst á því að það takist að lækka skuldir og vaxtakostnað og leysa vandamál vatnsútflutningsins. Og sem dæmi um það hversu mikil áhrif gott gengi KEA hefur á atvinnulífið á Akureyri og í nágrannabyggðum má nefna í lokin að starfsmenn KEA á síðasta ári voru rúmlega 900 talsins og á þriðja hundrað í dótturfyrir- tækjunum. 60 milljóna tap hjá Kaupfélagi Héraðsbúa: Kaupfélagsstjórinn „í leyfi“ „Ég er bara þreyttur enda er ég búinn að vera í þessu í tuttugu ár,“ sagði Jörundur Ragnarsson, kaupfé- lagssfióri hjá Kaupfélagi Héraðsbúa, í samtah við DV en hann hefur feng- ið eins árs frí frá störfum frá 1. maí að eigin ósk. Á aðalfundi kaupfélagsins um helg- ina kom fram að það var rekið með 60 milljóna króna tapi á síðasta ári. Bjöm Ágústsson, sem hefur verið fulltrúi í kaupfélaginu, tekur við af Jörundi, a.m.k. fyrst um sinn. „Kaupfélagið hefur ekki upp í vexti og áfóll út af Sambandinu komu okk- ur illa. Það voru 28 milljónir króna afskrifaðar vegna nauðasamninga og gjaldþrots Sambandsins. Annað er að mestu vegna fiármagnskostnaðar og samdráttar í landbúnaði,“ sagði Jón Krisfiánsson sfiómarmaður við DV. Jón sagði að það mundi koma í ljós á næstmini hvemig sfiómin tæki á því máh sem varðar ráðningu kaupfélagssfióra til frambúðar. -Ótt C3 Ö >o U Fyrsta Power Macintosh- tólvan kom meb þyrlu í Apple-umbobib 14.3. '94. L táar u 3- O c u ce Power Macintosh 7100/66 8 Mb vinnsluminni 250 Mb harðdiskur 17" Apple Multiscan-litaskjár Stórt hnappaborð Grunnverð: 557.900,- kr. Tilboðsverð: 414.000,- kr. stgr. Tilboðsverð án VSK: 332.536,- kr. stgr. 'U I &H Power Macintosh 6100/60 8 Mb vinnsluminni 160 Mb harðdiskur 14" Apple AV-litaskjár Lítið ímappaborð Grunnverð: 341.600,- kr. Tilboðsverð: 266.000,- kr. stgr. Tilboðsverð án VSK: 213.655,- kr. stgr. Apple-umboðið M. :i 21. Sími: 91-62 48 00 Fax: 91-6248 18

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.