Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 UtLönd Annar dagur kosninga allra kynþátta í Suður-Aíríku: Níu særðust í tilræði við Jóhannesarborg Gamalt fólk og sjúklingar í Suður-Afríku flykktust á kjörstaði i gær á fyrsta degi kosninganna og þeir sem ekki komust hjálparlaust nutu góðrar aðstoðar vina sinna. Símamynd Reuter Níu menn að minnsta kosti særð- ust þegar bílasprengja skók brottfar- arsal fyrir millilandaflug á Jan Smuts ílugvellinum við Jóhannesar- borg í Suður-Afríku í morgun, að sögn lögreglu. Einn hlaut alvarleg sár. „Bílasprengja sprakk við brottfar- arsalinn fyrir millilandaflug klukk- an 7.15. Þaö sást til hvíts manns leggja hvítri Peugeot-bifreið og hlaupa síðan í burtu,“ sagði Braam Loots, framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins sem rekur flugvölhnn. Lögreglan lokaði flugvellinum og voru farþegar og starfsmenn fluttir burt úr flugstöðvarbyggingunni eftir sprenginguna, á öörum degi kosning- anna með þátttöku allra kynþátta. Flugvél frá svissneska flugfélaginu Swissair var nýlent þegar sprenging- in varð og voru farþegar hennar að taka við farangri sínum. „Við vorum að ná í farangurinn okkar þegar við heyrðum sprenging- una. Mikiö ryk þyrlaðist upp en allir héldu ró sinni,“ sagði Rainer Be- hrens sem kom meö vélinni frá Ziirich. Sprengjutilræði sem hvítum hægrisinnum hefur verið kennt um urðu 21 manni að bana og særöu tugi í Jóhannesarborg og Pretoríu dagana fyrir kosningarnar. Tveir helstu leiðtogar blökku- manna í Suður-Afríku, þeir Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðar- ráðsins, og Desmond Tutu erkibisk- up greiddu atkvæði í fyrsta sinn á ævinni í morgun. Mandela sagði aö með þessu væri draumur hans að rætast. „Þetta er ógleymanlegt tækifæri, þegar vonir þær og draumar sem við höfum alið í brjósti í áratugi verða að veruleika. Við erum að ganga inn í nýtt tímabil vonar, sátta og þjóðar- uppbyggingar," sagði Mandela. Tutu erkibiskup tók nokkur spor á kjörstað í morgun og sagðist hlakka til að sjá nýja Suður-Afríku þar sem svartir og hvítir leiddust hönd í hönd. Að sögn háttsettra embættis- manna Sameinuðu þjóðanna hafa Bosníu-Serbar að mestu farið að kröfum NATO um að hafa sig á brott frá bænum Gorazde og því þótti ekki ástæða til að gera alvöru úr hótunum NATO um að gera loftárásir en frest- urinn sem Serbum var gefmn rann út snemma í morgun. NATO segist ætla aö fylgjast vel með ferðum Serba í dag og passa upp á að þeir verði farnir með öll þunga- vopn sín í 20 km fjarlægð frá bænum. „Við munum vera í viðbragsstöðu og fylgjast náið með ferðum Serba. „Þetta er ótrúlegur dagur fyrir okkur öll. Ég á við okkur öll, svarta Og hvíta,“ sagði TutU. Reuter Brugðist verður hart við ef þeir ráð- ast inn í Gorazde á ný eða önnur frið- arsvæði Bosniu-Hersegóvínu," sagði talsmaður NATO. Starfsmenn SÞ fluttu 90 særða og slasaða íbúa frá Gorazde í gær og þar með er tala þeirra sem íluttir hafa verið á brott komin í 299 en brott- flutningur hefur staðið yfir í þrjá daga. Bandaríkjamenn og Rússar segjast ætla að vinna hörðum höndum að því að fá stríðandi fylkingar í Bosníu til að setjast að samningaborði. Stuttarfréttir i>v Fáninnniður Hinn gamli apartheid-fáni Suð- ur-Afríku var tekinn niður í nótt og nýr þjóðfáni dreginn aö húni. Löngeinokunáenda Hvítir memi i Suður-Afríku sátu einir að völdum í 124.934 daga, eða 342 ár. EngirilRrandar Svartur töfralæknir lýsti því yfir að engir iilir andar ógnuðu kosningunum i Suður-Afríku. Deiors skammasi sín Jacques Del- ors, forseti framkvæmda- stjórnar Evr- ópusambands- ins, sagöist skammast sín fyrir vanmátt sambandsins við að stilla til friðar í Bosniu. Barisf íKigali Harðir bardagar milli uppreisn- armanna og stjórnarhermanna brutust út í Kigali, höfuðborg Rúanda. Clinton og Kina Clinton forseti ætlar'að standa við hótun sína um að takmarka aðgang Kina að Bandarikjamark- aði verði mannréttindi ekki auk- in. JeHsín afflýsir Jeltsín Rússlandsforseti lét undan þjóðernissinnum og aflýsti heræfingum með Ameríkönum. Hata bidlar Tsutomu Hata. nýkjör i inn forsætis- ráðherra Jap- ans, biðlaði tii sósíalista- flokksins um að yfirgefa ekki ríkisstjómina og koma þannig í veg fyrir ringul- reið. Ífelum Hundruð Haítíbúa eru i felum vegna morða hermanna á borg- urum. - Nixon kvaddur Þúsundir aðdáenda Nixons létu úrhelli ekki aftra sér ffá því aö bíða klukkustundum saman eftir að votta honum hinstu virðingu. NeiviðESB Norskir sjávarútvegsmenn eru á móti aðild Noregs að ESB. 12 slösuðust Tólf manns slösuöust þegar lest fór út af sporinu í Alvsjö í Svíþjóð í gær. Hluti af rammanum um Ópiö sem var stoliö af Norska þjóð- listasafninu fannst í Noregj í gær. Móðir Husseins látin Móðir Hus- seins Jórdaníu- konungs, Zein al-Sharaf, lést í gær. Hún studdi son sinn dyggilega þeg- arkonungdóm- urinn var í hættu í pólitíska óeirðum í Jórd- aníu á sjötta áratugnum. Sameinast Tvenn róttæk samtök í ísrael, sem vinna gegn aröbum, ætla að sameinast 21ársfangelsi Einn mesti fjöldamorðingi í Noregi, Roger Haglund, fékk 21 ársfangelsi. Reuter, ntb Adalfundur Aöalfundur Samtaka gegn astma og ofnæmi verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 28. apríl, kl. 20.30 í Múlabæ, Ármúla 34, 3. hæð. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundastörf og önnur mál. Kaffiveitingar. Félagar hvattir til að fjölmenna. Stjórn Samtaka gegn astma og ofnæmi SKOKK Skokknámskeið Námsflokka Reykjavíkur hefjast á ný 2. maí nk. og standa fram að Reykjavíkurmaraþoninu í lok ágúst. Námskeið- ið verður haldið á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. í boði verða byrjendanámskeið (kl. 19.00-20.30) og framhalds- námskeið (kl. 17.00-19.00). Á námskeiðunum verður boðið upp á þrekmælingar, æfingaáætlanir, upphitun, teygjur, fyrirlestra og þrekleikfimi. Kennari: Jakob Bragi Hannesson. Aðsetur er í Miðbæjarskólanum að Fríkirkjuvegi 1. Upplýsingar og innritun verður til 2. maí á skrifstofu Námsflokka Reykjavíkur, s. 12992 og 14106. Þátttökugjald er kr. 8.000. Reuter Starfsmenn SÞ fluttu 90 særða og slasaða íbúa frá Gorazde í gær. Simamynd Reuter Serbar sagðir á brott frá Gorazde

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.