Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 Afmæli Gyða Jóhannsdóttir Gyða Jóhannsdóttir, skólameistari Fósturskólans, Bakkavör 6, Sel- tjamamesi, er flmmtug í dag. Starfsferill Gyða er fædd í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1967, fil. kand.-prófi í uppeldisfræði frá Háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð 1973, og BA-prófi í sálfræði frá Há- skóla íslands 1976. Gyða lauk mast- ersprófi í kennslufræði frá Har- vard-háskólanum í Bandarikjunum (Graduate School of Eduction) 1982, fékk kennsluréttindi frá Háskóla íslands 1986 og stundaði vettvangs- nám fyrir skólastjómendur við end- urmenntunardeild Háskóla íslands 1991. Gyöa var aðstoðarmaður við rannsóknir á vegum Háskóla ís- lands og Max Planck-vísindastofn- unarinnar í Vestur-Berlín 1976-81, stundakennari við Kennaraháskóla íslands 1980-81 og 1982-83 og skóla- meistari Fósturskóla íslands 1980-81 ogfrá 1982. Gyða sat í nefnd 1985-86 sem gerði tillögur um menntun starfsfólks á skóladagheimilum og þeirra sem vinna við uppeldisstörf önnur en kennslu. Hún var í nefnd til að end- urskoða lög um Fósturskóla íslands 1988 og í samstarfsnefnd um uppeld- ismenntun 1991. Gyöa hefur setið í samstarfsnefnd háskólastigsins frá 1991. Fjölskylda Gyða giftist 29.9.1984 seinni manni sínum, Hauki Viktorssyni, f. 21.5. 1935, arkitekt. Foreldrar hans: Vikt- or A. Kristjánsson, f. 19.7.1898, lát- inn, rafvirkjameistari, og Friðfinna Hrólfsdóttir, f. 2.4.1909, húsfreyja í Reykjavík. Fyrri maður Gyðu var Helgi H. Jónsson fréttamaður. Þau skildu 1976. Foreldrar hans: Jón Helgason, f. 27.5.1914, d. 4.7.1981, rithöfundur og ritstjóri, og Margrét Pétursdóttir, f. 20.10.1915, húsmóð- ir. Synir Gyðu og Helga: Jóhann Ámi Helgason, f. 11.9.1971, háskólanemi; Jón Ari Helgason, f. 22.10.1973, há- skólanemi. Systir Gyðu: Helga Jóhannsdóttir, f. 28.12.1935, maki Jón Marinó Sam- sonarson íslenskufræðingur. Þau eiga fjórar dætur, Heiðbrá, Svölu, Hildi Eir og Sigrúnu Drífu. Foreldrar Gyðu: Jóhann Sæ- mundsson, f. 19.5.1905, d. 6.6.1955, læknir, prófessor og ráðherra, og Sigríöur Thorsteinsson, f. 6.2.1908, húsfreyja í Reykjavík. Ætt Meðal systkina Jóhanns má nefna Halldór, föður Þórðar á Dagverðará; Guðmund, föður Hjalta dómkirkju- prests, og Oddfríði, móður Guð- mundar Ingólfssonar píanóleikara. Jóhann var sonur Sæmundar hreppstjóra að Elliða í Staðarsveit, Sigurðssonar, b. í Hólakoti, Jóns- sonar. Móðir Jóhanns var Stefanía, systir Þuríðar, móður Jónatans tón- skálds og Sigurðar, söngvara Ólafs- sona. Bróðir Stefaníu var Vigfús, faðir Erlings söngvara. Stefarúa var dóttir Jóns, b. á Elliða, Jónssonar, og Jóhönnu Vigfúsdóttur. Sigríður er dóttir Áma Thqr- steinsson, tónskálds, sonar Áma Thorsteinsson landfógeta, bróður Steingríms skálds og rektors, afa Gunnars Aðalsteins sem hér er skrifað um í dag. Árni og Steingrím- ur vom synir Bjarna, amtmanns á Gyða Jóhannsdóttir. Arnarstapa, Þorsteinssonar, ogÞór- unnar Hannesdóttur biskups, Finnssonar. Móðir Árna tónskálds var Sofia Kristjana Hannesdóttir kaupmanns, Johnsen. Móðir Sigrið- ar var Helga Einarsdóttir, systir Páls borgarstjóra og Jórunnar, ömmu Jómnnar Viðar og Þuríðar Pálsdóttim söngkonu. Gyðaeraðheiman. Til hamingju með afmælið 27. apríl 80 ára 50ára Isgerður Kristjánsdóttir, Jökulgrunni 14, Reykjavík. Ester Sveinsdóttir, Hjúkmnarheirailinu Eir, Reykja- vík. 75 ára Sæmundur Einarsson, Rauöalæk 35, Reykjavík. 70 ára Indiana Björg lllfarsdóttir, Heiðarvegi 48, Vestmannaeyjum. Sigrún Magnúsdóttir, Skólabraut 5, Seltjamamesi. KarlSölvason, Álftamýri 42, Reykjavík. Sigurlaugur Þorkelsson, Hávallagötu 22, Reykjavik. Ingvar Gunnarsson, Hh'öarendavegi4A, Eskifirði, Jón K. Þorláksson, Urðarvegi 27, ísafirði. Ingunn Ragnarsdóttir, bókari þjá Heilsugteslunni í _ Reykjavík, Kóngsbakka 5, Reykjavík. Eiginmaðurlng- unnarerMár Óskar Óskarsson verktaki. Þauhjóninveröa aðheimanáaf- mælisdaginn. Þórhildur Sigurðardóttir, Auðbrekku 6, Húsavik. Guðrún Friðbjörnsdóttir, Neshaga 10, Reykjavík. Ebba Gunnarsdóttir, Neshaga 7, Reykjavik. Kristín Kristjánsdóttir, Hlíðarási 1A, Mosfellsbæ. Kristín er að heiman á afmælisdag- mn. 60 ára Reynir Brynjólfsson, Hafnargötu 28, Vatnsleysustrand- arhreppi. Bjami Matthiasson, Digranesheiði 33, Seltjamamesi. ÞórðurThorarensen Gunnars- son, Teigi, Eyjafjarðarsveit. 40ára Ran nveig Sturlaugsdóttir, Víöigrund 20, Akranesi. Þormar Andrésson, Noröurgarði 20, Hvolhreppi. Böðvar Öm Sigurjónsson, Læknisbústaö, Blönduósi. Gunnar Aðalsteinn Thorsteinson Gunnar Aðalsteinn Thorsteinson, bóndi og tamningamaður, að Amar- stöðum í Eyjafjarðarsveit er fimm- tugurídag. Starfsferill Gunnar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og í Þverholti í Álfta- neshreppi. Hann lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri 1962 og tamninga- prófi 1975 og er nú bóndi að Amar- stöðum. Fjölskylda Eiginkona Gunnars er Valgerður Kristín Eiríksdóttir, f. 1.3.1941, hús- freyja. Hún er dóttir Eiríks Elias- sonar og Jómnnar Hrólfsdóttur að Eyvindarstöðum í Eyjafjarðarsveit. Böm Gunnars Aðalsteins frá fyrra hjónabandi em Hrefna, f. 30.11.1968,, húsmóðir í Reykjavík, í sambýli með Pétri Viðarssyni verslunar- manni; Sigríður Perla, f. 1.12.1970, afgreiðslustúlka í Reykjavík. Móðir þeirra er Snæbjörg R. Bjartmars- dóttir frá Mælifelli í Skagafirði. Albróðir Gunnars er Birgir, b. á Brún í Hmnamannahreppi, kvænt- ur Margréti Böðvarsdóttur frá Syðra-Seli og eiga þau fjögur böm. Hálfbræður Gunnars em Stein- Gunnar Aðalsteinn Thorsteinson. grímur, prentari í Reykjavík, og Axel og Halldór, fyrrv. bændur í Álftárósi á Mýrum, nú búsettir í Reykjavík. Foreldrar Gunnars voru Axel Thorsteinson, f. 5.3.1895, d. 3.12. 1984, fréttamaður og rithöfundur í Reykjavík, og Sigríður Þorgeirsdótt- ir,f. 21.9.1909, d. 26.1.1965. Gunnar tekur á móti gestum í Skeifunni í Breiðholtshverfi á Ak- ureyri, föstudaginn 28.4. nk. Hlíf Matthíasdóttir Hlíf Matthíasdóttir, Hæðargarði 40, Reykjavík, er níutíu og fimm ára í dag. Starfsferill Hlíf er fædd í Haukadal í Dýra- firði. Hún fluttist 15 ára gömul með foreldmm sínum til Reykjavíkur. Hlif lauk kvennaskólanámi í höfúð- borginm. Hún stvmdaði nám í Hús- mæðraskólanum í Soro í Dan- mörku. Hlíf fór með föður sínum til Bandaríkjanna ogdvaldi í New York í eitt ár, 1918-19, en hann var þá erindreki Fiskifélags íslands. Eftir heimkomuna starfaði hún við versl- unar- og þjónustustörf en 25 ára að aldri fór Hlíf til náms í húsmæðra- skóla í Danmörku eins og fyrr er getið. Eftir námið gekk hún í hjóna- band og var heimilið í Reykjavík fyrstu árin en í Borgamesi frá 1935. Þar bjuggu Hlíf og eiginmaður hennar, Ólafur Magnússon skip- stjóri, í þrettán ár en hann stjómaði aflaskipinu Eldborg. Þau fluttu síð- an aftur til Reykjavíkur og í nokkur ár rak Hlíf kafiistofu á Vesturgöt- unni ásamt annarri konu. Síðustu starfsár sín vann hún við af- greiðslustörf. Fjölskylda Hlif giftist 2.10.1926 Ólafi Gísla Magnússyni, f. 23.9.1893, d. 24.3. 1961, skipstjóra. Foreldrar hans: Magnús Kristjánsson, f. 21.9.1858, d. 9.10.1931, bóndi og skipstjóri í Sellátrum og síðar Bíldudal, og kona hans, Sigrún Ólafsdóttir, f. 10.3. 1855, d. 10.11.1930, þósmóðir frá Auðkúlu í Arnarfirði. Börn Hlífar og Ólafs: Matthías, f. 30.9.1927, málarameistari; Marsibil, f. 11.3.1929, húsmóðir; Sigrún, f. 30.8.1930, húsmóðir; Roy, f. 2.8.1933, skipstjóri; Ólöf Alda, f. 17.11.1940, húsmóðir. Synir Ólafs og fyrri eigin- konu hans, Guðrúnar Halldórsdótt- ur, f. 16.5.1894, d. 8.9.1921: Svavar, f. 7.8.1919, klæðskerameistari; Gunnar, f. 20.7.1921, skipstjóri. Hlíf átti þrettán systkin og komust tíuþeirraálegg. Foreldrar Hlífar: Matthías Ólafs- son, f. 25.5.1857 í Haukadal í Dýra- firði, d. 8.2.1942 í Reykjavík, faktor og alþingismaður, og Marsibil Ól- afsdóttir, f. 4.9.1869, d. 24.7.1964, húsfreyja. Hlif Matthíasdóttir. Ætt Bróðir Matthíasar var Jóhannes Ólafsson alþingismaður. Matthias var sonur Ólafs, bónda í Haukadal, Jónssonar, bónda í Haukadal, Ólafs- sonar, og konu hans, Ingibjargar Jónsdóttur, bónda og hreppstjóra í Stapadal, Bjarnasonár. Marsibil var dóttir Ólafs, skip- stjóra á Þingeyri, Péturssonar, og konu hans, Þórdísar Ólafsdóttur. Hlif verður að heiman. Jón Guðmundsson Jón Guðmundsson, plötu- og ketil- smiður, til heimilis að Björk, Skaga- braut 8, Akranesi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Jón fæddist á Barðastöðum í Stað- arsveit á Snæfellsnesi og ólst þar upp. Hann gekk í barnaskóla að Ölkeldu í Staðarsveit en flutti fjórt- án ára með foreldrum sínum í Hveragerði. Þar lauk hann gagn- fræðaskólanámi en hóf síðan nám í plötu- og ketilsmíði hjá Landssmiðj- unni 1961 og lauk sveinsprófi 1965. Jón starfaði síðan við ýmsar jám- smiðjur í Reykjavík en flutti svo þaðan og upp á Akranes 1974. Þar var hann túsjósá vertiðarbátum um nokkurra ára skeið en starfar nú hjá Vélaverkstæði Haraldar Böðvarssonarhf. Jón hefur starfaö mikið fyrir Sveinaféla málmiðnaðarmanna á Akranesi. Hann situr í sveinsprófa- nefnd stálsmíða og er nú formaður Starfsmannafélags HB hf. Fjölskylda Jón kvæntist 24.7.1965 Ölmu Garðarsdóttur, f. 7.1.1946, meðferð- arfulltrúa. Hún er dóttir Garðars Sigurpálssonar, fyrrv. útgerðar- manns í Hrísey, og Óskar Halldórs- dótturhúsmóður. Böm Jóns og Ölmu era Garðar Jónsson, f. 21.1.1966, búsettur á Akranesi en sambýliskona hans er Ólína I. Gunnarsdóttir og eiga þau tvo syni; Herdís Jónsdóttir, f. 4.4. 1969, húsmóðir á Akranesi en sam- býlismaður hennar er Sigurgeir R. Sigurðsson og eiga þau tvö böm; Ósk Jónsdóttir, f. 4.4.1969, húsmóð- ir á Akranesi en sambýlismaöur hennar er Torfi S. Einarsson og eiga þau tvær dætur; Guðmundur Þór Jónsson, f. 29.10.1976, nemi á Akra- nesi. Systkin Jóns eru Klara Guð- mundsdóttir, f. 13.4.1947, verslunar- maður í Hveragerði; Páll Amar Guðmundsson, f. 3.8.1950, prentari í Grundahverfi á Kjalamesi; Sigríö- ur Ó. Guðmundsdóttir, f. 22.4.1952, húsmóðir I Hveragerði. Foreldrar Jóns eru Guðmundur Pálsson, f. 27.12.1908, fyrrv. bóndi og verkamaður, og Herdís Jónsdótt- ir, f. 3.6.1910, ljósmóðir. Jón Guðmundsson. Guðmundur er sonur hjónanna Páls Guðmundssonar og Helgu Jón- asdóttur frá Helgafelli sem bjuggu í Höskuldsey á Breiöafirði. Herdís er dóttir Jóns Guðmunds- sonar, kennara og bónda, og konu hans, Sigríðar Ó. Andrésdóttur, er bjuggu lengst af á Hellu í Beruvík í Breiðavíkurhreppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.