Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994 Neytendur Dæmi um innflutning á blöðum (hagkvæmt) Daily Mirror (150 g) (óhagkvæmt) Sunday Times dkg) Innkaupsverð 23,30 99,00 Fl. og erl. höndlunark. 67,00 215,00 Sölulaun til bóksala 41,70 85,50 Virðisaukaskattur 23,30 48,00 Dreifing og innheimta 34,70 - 57,50 Smásöluverö 190,00 390,00 DV kannar markað erlendra dagblaða hér á landi: Erlend dagblöð hafa hækkað í verði - annar dreifíngaraðilinn hefur breytt verðútreikningnum Nokkuð hefur borið á kvörtunum til neytendasíðunnar þess eðlis að smásöluverð erlendra blaða, eins og t.d. Sunday Times og Sunday Tele- graph, haíi hækkað um hátt í hundr- að krónur eintakið. Tvö fyrirtæki, Hið íslenska Boðfélag og I.B.-Blaða- dreifmg hf., annast útbreiðslu blað- anna hér á landi (hvort fyrir sig er með í kringum 35 titla) og dreifa í bókaverslanir, söluturna, hótel og jafnvel mat- og gjafavöruverslanir strax á útgáfudegi. Einar Guðjónsson hjá Boðfélaginu sagði aðspurður að langflestir sinna titla heföu ekkert hækkað í tvö ár og fullyrti að erlend- is væru erlend dagblöð miklu dýrari. Hjá I.B.-Blaðadreifmgu fengust aðrar upplýsingar. Þyngdin ræður verðinu „Fragtin hækkaöi um 12% þann 1. febrúar síðastliðinn sem varð til þess að við fórum að endurskoða útreikn- inga okkar á smásöluverðinu og gáf- um út nýja verðskrá 1. maí. Áöur reiknuðum við smásöluverð út frá söluverði blaðanna í viðkomandi landi en nú reiknum við það út mið- rVARANLEG~\ | V/ÐGERÐ! | Þessa viðgerð framkvæmir Þú best með PLASTIC PADDING CHEMICAL METAL! Rýrnar ekki, springur ekki Grimmsterkt á 10 mínútum. FYLLIR-UMIR-ÞETTIR að við þyngd blaðanna. Það gefur miklu réttari mynd af því hvað við erum að borga fyrir að fá þau til landsins því í raun höfum við verið að borga með stórum hluta þeirra í langan tíma. Þetta er nokkuð sem átti aö vera löngu búið að reikna út og koma í gegn,“ sagði Guðmundur Sigmundsson, framkvæmdastjóri I.B.-Blaöadreifingar hf. „Sunday Times er t.d. mjög óhag- stætt, tæpt kíló að þyngd og flug- fragtin kostar 215 kr. á blað. Það ætti í raun að kosta 500 krónur en okkur er bara ekki stætt á því að hækka það svo mikið í einu stökki,“ sagöi Guömundur. Aðspurður sagð- ist hann þó að meðaltali fá 20-30 krónur í sinn vasa fyrir hvert blað, þ.e. ef ekki væri mikið um endur- sendingar. Flugleiðir taka hins vegar 50-215 krónur á hvert blaö og er þá innifalinn höndlunarkostnaöur er- lendis. „Við þurfum alltaf að greiða fyrir fragtina, jafnvel þó við fáum 50% blaðanna endursend til okkar. Við verðum að gera ráð fyrir slíkum af- fólium viö verðútreikninginn," sagði Guðmundur. Hann sagði að ef Utið væri á löndin í kring, þar sem fragtin væri miklu ódýrari, væru blöðin á svipuöu verði og stundum dýrari. „Danska BT kostar t.d. 220 kr. hér en 262 kr. í Svíþjóð, Ekstrabladet 220 hér en 244 kr. í Svíþjóð og PoUtiken 240 kr. hér en 244 kr. í Svíþjóð," sagði Guðmundur. Aðspurður hvort hann teldi Flugleiðir nýta sér einokunar- aðstöðuna til að hækka fragtina taldi hann svo ekki vera. „Við höfum átt ágætt samstarf við þá en þeir hafa auðvitað aUtaf tilhneigingu til þess af því að þeir eru einir.“ Fragtin hefur hækkað „Flutningsgjaldið sem við höfum tekið fyrir blöðin hefur verið í ís- lenskum krónum en okkar ílutnings- gjöld eru skráð í erlendri mynt svo með hækkun á fragtinni er fyrst og fremst verið að taka tiUit til gengis- breytinga á síðustu tveimur árum en fragtin hefur ekki hækkaö í langan tíma,“ sagði Amgeir Lúðvíksson, forstöðumaður fragtdeUdar Flug- leiöa, í samtati við DV. Aðspurður sagði hann að vel mætti vera aö fragtin erlendis væri lægri. „En ég held að þá sé verið aö flytja þetta í miklu meira magni en við gerum. Við erum með margar og ilrralí,, y ITríbimr „Það er nú svolítið sérstakt að vera staddur í Reykjavík klukkan þrjú siðdeg- is og lesa þar Financial Times sem kom út í Frankfurt klukkan tíu um morguninn. Það hlýtur að kosta eitthvað," sagði einn viðmælandi blaðsins. DV-mynd GVA smáar sendingar sem er frekar óhag- kvæmt fyrir alla aðUa. Við teljum okkur veita þarna alveg sérstaka þjónustu því við flytjum blöðin sem farangur, ekki sem fragt, sem gerir aUa afgreiðslu mjög auðvelda og ein- falda og heldur um leið niðri kostn- aði. Þannig þarf ekki að fara með þetta í gegnum einhverja flutnings- miðlara og aUs kyns pappírsútgáfu. Við teljum þetta því mjög hagkvæmt og sjáum ekki ástæðu til að lækka verðið,“ sagði Arngeir. Hann sagði megnið af erlendu blööunum koma með morgunvél frá Kaupmannahöfn sem lendir á hádegi í Keflavík. Því væru blöðin yfirleitt komin í verslan- ir seinni partinn sama dag. Sértilboð og afsláttur: Fjarðarkaup Tilboðin gilda til fóstudags. Þarfæst kínakál á 125 kr. kg, jarð- arber, 250 g, á 125 kr., samloku- kex, 300 g, á 89 kr., stór hrísp. á 109 kr., Libero á 795 kr., Up & Go á 645 kr., afa- og polobohr á 898 kr., vinnuskyrtur á 842 kr., kindainnralæri á 975 kr., rauð- vínsi. lambalæri á 669 kr. kg, djúpkrydd. lambahr. á 669 kr. kg og Tork pappír, 2 rúliur, á 498 kr. 10-11 Tilboðin gilda tU þriðjudags. Þar fæst BKI lúxuskaffi, 500 g, á 198 kr„ Pampers á 798 kr„ EgUs appelsín, 'h 1, á 48 kr„ Kim's kart.fl., 250 g, á 198 kr„ KEA grill- pylsur á 588 kr. (kynning um helg.), 4 maísstönglar á 189 kr. og LU Prince kremkex á 69 kr. Bónus Tilboðin gilda til flmmtudags. Þar fæst frá Kjarnafæði: skinka á 759 kr. kg, beikon á 659 kr. kg, bjúgu á 299 kr. kg, grillsn. á 679 kr. kg og sænsk pylsa/beikon- pylsa á 292 kr. kg. Einnig Asda mýk.efhi, 21, á 79 kr„ Asda upp- þv.lögur, 500 ral, á 24 kr„ nektar- inur á 97 kr. kg, Frón Heima er best kex á 55 kr„ Ömmu flatk. á 29 kr„ SvaU, 6 stk„ á 89 kr„ Emm- ess ísstaur, 7 stk„ á 197 kr„ Siríus rjómasúkkui., 4x100 g, borgar 3 en færð 4, Rosti skálasett, 3 stk„ á 259 kr„ After eight, 200 g, á 179 kr. og HM tilboð: 6x2 i kók, leður- bolti, HM blaðið á 1.399 kr. 10% afsl, af öUu kjöti og 5% 5% afsl af uppvigtuðum ostum. Garðakaup Tilboðin giida tU laugardags. Þar fást tómatar á 59 kr. kg, Garðabæjar griiUeggir á 499 kr. kg, svínarifjast. á 449 kr. kg, kjúklingar á 597 kr. kg, Amo kornflex, 1 kg, á 269 kr. kg, plóm- ur í öskju á 129 kr. kg og rauð og græn paprika á 399 kr. kg. Afmæl- istilboð Kötlu, 10% afsl. af öilum vörum. Kjöt og fisk- ur TUboðin giida til mánudags. Þar fæst lambalæri á 488 kr. kg, lambahr. á 478 kr. kg, svínahn. á 689 kr. kg, svínasíða á 395 kr. kg, kínverskar súpur, 39 g, á 39 kr„ ananassneiðar, 227 g, á 35 kr„ EstreUa skrúfur, 90 g, á 115 kr„ Royal Oak grUlkol, 4U kg, á 298 kr. og 2% kg á 175 kr. F&A Tiiboðin gilda til miðviku- dags. Verð miðast við stað- greiðslu. Þar fæst Mömmupizza á 319 kr„ Fairy Excel Plus upp- þv.lögur, 500 ml, á 105 kr„ Jaffa appels.þykkni, 31, á 299 kr„ Mars, Snickers, Twix og Bounty á 39 kr„ jakkafót (uliarbl.) á 9.950 kr. og regnhlífarkerra á 1.690 kr. Hagkaup Tilboðin gilda til miðviku- dags. Þar fást grillhamb. (2x150 g) á 189 kr„ vatnsmel. á 79 kr. kg, mangó á 59 kr. stk„ avocado á 69 kr. stk„ Heinz tómatsósa, 794 g, á 119 kr„ Myllu hamb.brauð, 2 stk„ á 29 kr„ Veno kex, 3 teg„ á 129 kr„ Sun Quick appels.þykkni, 840 ml, á 269 kr„ Silhouette dömub., 2 teg„ á 199 kr„ Kim’s kart.flög- ur, 2 teg. 175 g, á 189 kr„ tómatar á 79 kr. kg, ananas á 79 kr. stk„ Jonagold epU á 79 kr. kg og Shop Rite griffkol, 4% kg, á 229 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.