Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Side 13
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994 13 Burðarásar með betlistaf „Nú hefur ríkisstjórnin ákveöið hundr- uð milljóna aðstoð við þessa ágætu menn án þess að séð verði að almenn- ingur á Vestíjörðum hafi verið spurður álits á slíkum ölmusum.. „Ætla má að vestfirskum almenningi hefði komið betur ef reynt hefði verið að laga grundvöll sjávarplássanna með kvótatilfærslum," segir sá sem hér skrifar vestan af fjörðum. Enn á ný eru forsvarsmenn fisk- vinnslu og útgerðar, og nú á Vest- fjörðum, farnir af stað með betlistaf til ríkisvaldsins að heija út fé til bjargar illa komnum fyrirtækjum sem í þessu tilfelli eru oftar en ekki burðarásar atvinnulífsins á viö- komandi stöðum. Forsvarsmenn umræddra fyrir- tækja og sveitarfélaga hafa verið óþreytandi við að útskýra fyrir fólki hvað úrskeiðis hefur farið og ber þar fyrst að telja hreint skelfi- legt kvótakerfi, kolvitlausa gengis- skráningu, verðfall á erlendum mörkuðum, voðalega vaxtastefnu og stjórnvaldsaðferðir án þess að þær sé tíundaðar nánar. Enginn af þessum forsvarsmönnum minnist á illa rekin fyrirtæki, illa grundaða og fljótfærnislega ákvarðanatöku og enginn talar um að yfirbygging fyrirtækjanna sé of mikil. Nei, það er ríkið og aftur ríkið sem er að keyra þetta allt til andskotans. Nú hefur ríkisstjórnin ákveðið hundruð milljóna aðstoð við þessa ágætu menn, án þess aö séð verði að almenningur á Vestfjöröum hafi verið spurður álits á slíkum ölmus- um enda vestfirskur almenningur ekki vanur þvi að vera ölmusuþeg- ar á framfæri ríkisins og hefur reynslan af því þegar ríkið hefur vaiið úr fyrirtæki til að reisa þau úr öskustónni verið ansi döpur og vart til eftirbreytni fallin. Pólitískar hafvillur Stjórnmálamenn sem fara þá leið í vinsældaöflun að ausa reglulega heilum og hálfum milljörðum, í það að bjarga fyrirtækjarekendum hér og þar úr skítnum, hljóta að vera komnir í verulegar pólitískar haf- villur og ættu aö reyna nýjar að- ferðir við að ná landi heldur en sértækar vinareddingar. Núver- andi ríkisstjórn eyddi reyndar fyrsta starfsári sínu í að gagnrýna slíkt þótt hún hafi sjálf verið á kafi í slíkum aðgerðum síðan. Kjallaririn Guðmundur Sigurðsson bifreiðarstjóri Ætla má að vestfirskum almenn- ingi heföi komið betur ef reynt hefði verið að laga grundvöll sjáv- arplássanna með kvótatilfærslum til Vestfjarða í gegnum hagræðing- arsjóð eða með hverri annarri þeirri leið er heppileg væri. Þess bæri þó að gæta að stóru skuldugu fyrirtækin fengju ekki til sín allan umráðarétt yfir slíkum kvóta, vel mætti hugsa sér að sveitarfélögin hefðu hönd í bagga með útdeilingu á svoleiðis bjargráðakvóta en auð- vitað er það engin endanleg lausn vegna dæma um aö sömu menn stjórni bæði sveitarfélögunum og viðkomandi fyrirtækjum. Dreifing ölmusunnar Þaö eru mörg dæmi um að betra hefði verið að veita nýjum aðOum eðlilega fyrirgreiðslu til atvinnu- reksturs heldur en að vera að púkka upp á ónýt fyrirtæki, eins og virðist eiga aö gera nú. Það er skrítið að þau fyrirtæki i sjávarút- vegi og fiskvinnslu sem best ganga skuli geta þrifist undir þessum kringumstæðum því ljóst má vera að sama ríkisstjómin hlýtur að setja vel reknum fyrirtækjum starfsramma jafnt sem hinum verr reknu. Þó er nú hvað hlálegast að vanda- málið viö dreifingu ölmusunnar skuli vera það að Byggðastofnun skuli ekki vera þess umkomin að skipa fulltrúa í framfærslunefnd þá er meta skal hverjir skuli fá mikla ölmusu, hverjir htla og hverjir alls enga, reyndar hafa þær raddir heyrst að þegar sé búið að ákveöa alla skiptingu ölmusunnar og að jafnvel þeir sem mest muni úr býtum bera séu hönnuðir að þeirri skiptingu. Guðmundur Sigurðsson Og hver kennir öðrum Ekki ósjaldan þeytast stjóm- málamenn okkar um landið og kynna helstu baráttumál sín, hver um sig. Helstu baráttumál stjórn- arandstöðu eru að venju þau að komast sem fyrst í ráðherrastól, enda má nú segja að sumir hveijir séu fyrir löngu farnir að líta á hann sem hluta af sjálfum þeim, sem þeir séu bornir til og með eilífan erfðarétt. Það er því ekki óalgengt að þeir sem hveiju sinni eru í stjórnarandstöðunni geri að fund- arefni eitthvað í þessa veru: „Ráð- þrota ríkisstjórn - breytinga er þörf.“ Nú eru þessir stjórnmálamenn okkar yfirleitt öngvir hálfvitar, en þeir virðast líta á þegnana almennt sem undirmáls á þvi sviði. Þeir gera sér nefnilega í hugarlund að hægt sé að telja okkur trú um að sú óáran sem gengur yfir okkur, ef um einhverja óáran er að ræða, sé eitthvert fyrirbæri sem hafi myndast allt í einu. Þeir vilja telja okkur trú um að þeir sjálfir hafi hvergi komið þar nærri. Þeir eru eins og pörupiltarnir sem kenna öörum um strákapörin. En við vit- um bara betur. KjaUaiinn Benedikt Gunnarsson framkvæmdastjóri Stundarhagsmunir ofar öllu Við vitum vel að fiskstofnarnir við landið hrundu ekki á einni nóttu, við vitum að þetta er þróun áraraða og að þar eiga margir þeirra sem nú eru í stjómarand- stöðu ekki lítinn hlut að máli, þeir sem hafa sett stundarhagsmuni of- ar öllu öðru til þess eins að stand- ast sem lengst valdabaráttuna. Við vitum líka að landbúnaðurinn hef- ur heldur ekki hrunið eins og hendi væri veifað, þetta er afleiðing af áratuga vitlausri byggðastefnu. ís- lenskur landbúnaður er nú að miklu leyti í rúst þar sem þar hefur flest leikið lausum hala allt of lengi. Bændur hafa getað sett á eftir því sem hey voru fyrir hendi. Þeir voru öruggir með það að fá fullt verð fyrir afurðir sínar. Verðið sem við ennþá greiðum fyrir þær afurðir er svo hátt að ótilneyddir mundu landsmenn ekki líta við þeim, þrátt fyrir allar niðurgreiðslur og aðrar hundakúnstir, sem er heldur ekk- ert nema önnur aðferð til að seilast í vasa skattborgaranna. Markaðs- hyggja í landbúnaði hefur ekki átt upp á pallborðið hjá ráöamönn- um. Austur af almannafé Það sama hefur verið að gerast í sjávarútvegi, þar hefur verið ausið ómældum fjármunum í útgerðir og fiskvinnslufyrirtæki á stöðum þár sem hefur verið vita vonlaust að halda uppi rekstri. Mörg þessara fyrirtækja eru nú farin, eða að fara, á hausinn þrátt fyrir allan þennan austur af almannafé og er aö vísu vonum seinna, en þrátt fyrir það er ennþá verið að halda uppi von- lausum stöðum þar sem augljós- lega er ekkert framundan annaö en gjaldþrot og vonleysi. Það er aðeins verið að lengja þann gálga- frest sem augljóslega blasir við. Benedikt Gunnarsson „Þeir gera sér nefnilega í hugarlund að hægt sé að telja okkur trú um að sú óáran sem gengur yfir okkur... sé eitt- hvert fyrirbæri sem hafi myndast allt íeinu.“ Ahrif veiða á stofnstærð hrognkelsa ræðstekkiaf veiðum „Eins og þessar veiðar hafa verið stundaðar til þessa er ekki líklegt að þær hafi úrslita- áhrif á við- komu hrogn- kelsastofna. vWálmur Þor- Orsök þess- *‘elnsson liskHræð- ara miklu ingur' sveiflna í hrognkelsagengd er að finna í einhverjum umhverfis- þáttum frekar en í veiðunum sjálfum. Grásleppan og rauðmag- inn koma ekki inn i þær veiöar sem að þeim beínast fyrr en þau eru kynþroska og ganga á hrygn- ingarsvæði til hrygningar. Of- veiöi sem stafar af of mikilli sókn í ókynþroska fisk er því ekki til staðar í grásleppuveiðunum sjálf- um. Þegar grásleppan er kotnin yfir viss stærðarmörk verða nátt- úruleg affoll mjög há eftir hrygn- ingu. Náttúruleg dauösfóll eftir hrygningu eru mun áhrifameiri en veiðarnar. Ýmislegt bendir til þess að áður en veiðar hófust á grásleppu að einhverju ráði hafi miklar sveifl- ur komið fram í þeim litlu veiðum sem stundaðar voru. Bjarni Sæ- mundsson segir t.d. að algjört grásleppuleysi hafi verið viö Faxaflóa og Breiðaijörð um alda- mótin síðustu. Ýmsar athuganir hafa sýnt að talsvert af þeirri grá- sleppu sem veiðist hafi náö að hrygna að einhverju leyti. Mikið verður vart við hrognkelsaseiði á grunnslóð og geta menn séð þau í þarabrúskum sem festast í net- um. Töluvert sést af þessum seið- um, t.d. í Faxafióa, þrátt fyrir það mikla veiðiálag sem þar er.“ Enginn vandi aðofveiða grásleppu „Það er hægt að of- veiða grá- sleppu. Það hefur sýnt sig að menn hafa hreinsað upp svæði þar sem grá- sleppuveiðar hafa verið vM***»t. stundaðar tfl margra ára, síöan hefur orðiö geipileg fjölgun neta á þessum svaeðum sem hefur leitt það af sér að ekki hefur fengist þar grá- sleppa. Þetta sannar að um of- veiði er aö ræða þar sem grá- sleppan er staðbundinn fiskur. Heildarveiðin tvö síðustu ár tal- ar sínu máli þegar litið er til fiölg- unar neta i sjó undanfarin sjö ár. Fyrir Noröurlandi eru svæði sem ekkert hafa gefið af sér eftir að sókn með fjölgun neta jóksL Það eru mörg svæði í dag sem ekkert gefa af sér vegna þessa. Varðandi samkeppni sels og manns um veiðina er Ijóst að hún er talsverð en ég er ekki á þeirri skoöun að selurinn éti jafhmikiö og við veiðum. Dragnótaveiöar eru örugglega til skaða, sérstaklega þar sem fer- ið er með dragnótina alveg upp í jQöru." Guöni Ásgrímsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.