Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Page 28
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994.
l
stórskemmt eftir bruna
„Húsið er töluvert mikið skemmt,
aðallega herbergi og forstofa á að-
alhæðinni. Auk þess ui'ðu á því
töluverðar reyk- og vatnsskemmd-
ir. Þaö var búið að vinna að endur-
byggingu þess í 3 ár og því verki
lauk í gær. Við ætluðum að opna
þaö á sunnudaginn. Maður trúir
því ekki að þetta hafi gerst. Ég fór
sjálf úr húsinu um klukkan 12 í
gærkvöldi og gekk þá frá öllu eins
vel og nokkur kostur var og sá
ekkert athugavert. Maður situr
bara og er að reyna að átta sig á
hlutunum,“ segir Sigríður Sigurð-
ardóttir,: safnvörður Byggðasafns
Skagfirðinga í Glaumbæ.
Eldur kom upp í svoköiluðu Ás-
húsi í byggðasafhinu í morgun og
leikur grunur á að kviknað hafi í
út-frá rafmagni. Vegfarandi varð
var við eldinn um klukkan 5 og var
slökkvilið komið á staðinn
skömmu síðar. Tókst slökkviliði að
Áshús fyrír brunann. DV-mynd SS
ráöa niðurlögum eldsins um klukk-
an 7.
Húsið, sem er 90 fermetra timbur-
hús að grunnfleti; hæð á hlöðnum
kjallara og með tvilyftu risi, yar
byggt árið 1883 til 1886 og stóð í Ási
í Hegranesi. Á sínum tima var það
stærsta timburhús sinnar tegundar
í sveitinni og mikið menntasetur.
Gengið hafði verið frá bruna-
vörnum en hins vegar var ekki um
beintengingu reykskynjara við
slökkvistöö að ræða. Segir Sigriöur
að hugað verði að þvi nú en í þessu
í notkun á sunnudag
tilviki hefði skortur á þvi ekki kom-
ið að sök þar sem eldurinn upp-
götvaðist fljótt.
Ákveðið haföi verið að nýta húsið
undir kaöisölu og aðkomu að
byggðasafninu, auk þess sem sýn-
ingarsalir áttu að vera á efri hæð-
inni. Sigríöur segir að búið hafi
verið að koma einhverju af munum
fyrir í húsinu og ekki sé vitaö um
skeramdir á þeim.
„Þeir þurfa ekki að vera ónýtir
en þetta eru hlutir sem við þurfum
að atliuga. Það er alveg ófióst hvað
tjónið er mikið á húsinu en búið
var að leggja gífurlega mikið í
framkvæmdirnar. Þaö var svoköll-
uð viðgerðartrygging á húsinu og
ég vona að þaö sé hægt að hæta
tjónið og þetta sé hægt að laga. Ég
á samt von á því að það slói í bak-
seglin Menn voru búnir að leggja
mikið á sig," segir Sigríður.
Hlakka til að
hitta son minn
- segirDianValur
„ Mér líður betur nú. Þetta er fram-
för. Ég hlakka til að hitta son minn
en ég hef ékki nóg þrek til að hitta
hann nú um helgina. Ég vona samt
að ég geti gengið um næstu helgi og
hitt hann þá. Ég er ánægður með
þetta samkomulag og er þakklátur
kirkjunni að koma að málinu. Það
er betra að prestar vinni að þessu en
sýslumaður,“ sagði Dian Valur
Dentchev í samtali við DV skömmu
eftir að Ijóst varð að lögfræðingar
hans og fyrrum eiginkonu hans
höföu náö samkomulagi um um-
gengnisrétt hans viö son sinn.
Pétur Gunnlaugsson, lögfræðingur
Dians, og Einar Gautur Steingríms-
son, lögmaður fyrrum eiginkonu
Dians, komust að samkomulagi í gær
um umgengnisrétt Dians við son
sinn. í kjölfarið ákvað Dian að hætta
í hungurverkfalli eftir að hafa neitaö
sér um mat frá 15. maí eða í 49 daga.
Læknar skoðuðu Dian í gær og fékk
hann þegar einhverja næringu þar
sem hann var orðinn mjög máttfar-
inn.
„Hann hefur fengið eðlilegan um-
gengnisrétt við bamið. Síöan munu
kirkjan og starfsmenn hennar ann-
ast milligöngu um framkvæmdina
en félagsmála- og barnaverndaryfir-
völd koma þar hvergi nærri. Þetta
samkomulag tekur gildi strax eða að
minnsta kosti um leið og Dian hefur
þrek til að framfylgja því. Hann vill
ekki láta son sinn sjá sig í því ástandi
sem hann er í núna.
Rétt er að taka fram að dómsmála-
ráðuneytið átti engan þátt að sam-
komulaginu og breytti í engu fyrri
úrskurði sínum í máhnu. Lögmaður
barnsmóður Dians taldi og, líkt og
talsmenn ráðuneytisins, ekki mögu-
legt fyrir ráðuneytið að breyta fyrri
úrskurði sínum.
Karvel Pálmason:
Greiddiatkvædi
meðstjórnarand-
stöðunni
„Þetta er mjög sérkennileg af-
greiðsla. Við sjálfstæðismenn vorum
með tillögu um Elínu Ölmu Arthúrs-
dóttur sem hefur starfað innan
stjórnar Byggðastofnunar og er öll-
um hnútum kunnug,“ sagði Matthías
Bjamason í samtali við DV.
Stjóm Byggðastofnunar ákvað í
gær að skipa Ægi Hafberg, sparisjóðs-
stjóra á Flateyri, sem fulltrúa Byggða-
stofnunar í svokallaða Vestfjarða-
nefhd sem á að miðla þeim 300 milij-
ónum sem ákveðið hefur verið að
veita inn í vestfirskt atvinnulíf.
Stjómin samþykkti skipun Ægis með
4 atkvæðum gegn 3. Karvel Pálmason,
fuiltrúi Alþýðuflokksins í stjóminni,
myndaði meirihluta ásamt fufltrúum
stjómarandstöðunnar.
Veðrið hefur leikið við landsmenn upp á síðkastið. Fjöldi manna hefur sótt sundstaðina og að venju hefur fjöldi
gesta komið í Bláa lónið síðustu daga og nú eru gestir að nálgast 50 þúsund i ár. Mest hafa komið 1200 manns
á einum degi. Þessa mynd tók Ægir Már fyrir DV í blíðviðrinu i lóninu í gær.
Deilumar í Kópavogi:
Mjög sérkennilegt
- segirlngibjörgSólrún
„Mér finnst mjög sérkennilegt að
þessir flokkar skuli ekki ná saman
um sameiginlegt kjör í nefndir og ráð
því að reynsla mín úr Reykjavík er
sú að minnihlutinn hafi samflot um
slíkt kjör. Mér skilst að þeir telji sig
ekki þurfa á Kvennalistanum að
halda og vilji ekki gefa neitt eftir af
sínu til að koma Kvennalistanum í
nefndir og ráð en það þarf að líta á
sanngimissjónarmið. Það kemur
dagur eftir þennan dag og þá getur
vel verið að menn þurfi á því að halda
að ákveðinnar sanngirni og samn-
ingsvflja sé gætt,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri um
það að Kvennalistinn fái engan fufl-
trúa í nefndir í Kópavogi.
Séekkilausnina
„Eins og sakir standa sé ég ekki
lausnina á þessu máli. Það er mikfl-
vægt að menn setjist niður og ræði
saman um hefldarlausn á þessu máli
öllu og almennar könnunarviðræður
hafa verið í undirbúningi, “ segir
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra um tregðu Rússa til að selja
fisk hér á landi.
LOKI
Síðan hvenær taldist Karvel
til stjórnarliða?
Veðriðámorgun:
Hlýjast aust-
anlands
Fremur hæg suðvestanátt.
Skýjað suðvestan- og vestanlands
en bjartviðri í öðrum landshlut-
um. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast aust-
anlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
QFenner
Reimar og reimskífur
í*<*uls€*n
SuAurtandsbraut 10. S. 680489.