Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Qupperneq 17
16
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994
17
íþróttir
Iþróttir
Áhöfnin á Evu 2. sem kom fyrst i mark í Vestmannaeyjum.
Alþjóðleg siglingakeppni á skútum:
Eva f rá Kef lavík
kom f yrst til Eyja
Á dögunum lauk alþjóölegri sigl-
ingakeppni á skútum og siglinga-
leiöin var Reykjavík-Vestmanna-
eyjar. Þar uröu keppendur aö leysa
ýmsar þrautir og lauk keppninni
með siglingu við Eyjar.
Alls lögðu tíu skútur upp í keppn-
ina en sjö komust alla leiö. Keppt
var með forgjöf, sem ræðst af stærð
skútunnar og seglastærð og var
sigurvergari Sigurður Óli Guðna-
son á skútunni Ör frá Vestmanna-
eyjum. Auk þess var keppt í ýms-
um þrautum þegar komið var til
Eyja. Keppa átti síðasta keppnis-
daginn í siglingu viö Eyjar en sá
hluti keppninnar var felldur niður
vegna veðurs. Skall á algjört logn
þannig að skúturnar komust
hvorki lönd né strönd.
Skúturnar lögöu upp frá Reykja-
vík kl. 13 og kom fyrsta skútan til
Eyja kl. rúmlega 6 á morguninn
eftir. Eva 2 úr Keflavík kom fyrst
í mark en Ör frá Vestmannaeyjum
varð í þriðja sæti en forgjöfin
tryggði henni fyrsta sætið. Askell
Agnarsson, skipstjóri á Evu, sagði
að siglingin til Eyja hefði gengið
mjög vel, góður byr mestallan tím-
ann. Þó lentu þeir í logni þegar
komið var að Þrídröngum vestan
við Eyjar. Ör fékk aftur á móti stöð-
ugan byr. Skipstjórar beggja skút-
anna voru sammála um að aðstæð-
ur hefðu verið eins góðar og á var
kosið.
Þetta er lengsta keppni í siglinu
á stórum skútum sem haldin hefur
verið hér við land en leiðin er um
110 sjómílur. Stefnt er að því að
þessi keppni verði haldin árlega og
á að kynna hana fyrir erlendum
siglingaköppum með það fyrir aug-
um að fá þá til að taka þátt í keppn-
inni á næsta ári.
Siglt inn i Vestmannaeyjahöfn fram hjá Heimakletti.
DV-myndir ÓG
EyjóKur leigður á 12 milUónir
Eyjólfur Sverrisson er að
vonast eftir að skrifa undir
samning við tyrkneska liðið
Beskitas í vikunni. Að sögn
Eyjólfs á aðeins eftir að ganga frá smá-
atriðum en Stuttgart og Beskitas hafa
komist að samkomulagi um eins árs
leigusamning og að honum loknum
fengi Beskitas forkaupsrétt að Eyjólíi.
„Mér skilst að Beskitas greiði Stutt-
gart eins árs leigusamning að upphæð
12 milljónir íslenskra króna. Eftir
hann vilja forráðamenn Beskitas fá
forkaupsrétt á mér. Ég bíð spenntur
eftir að fá þessi mál á hreint en um
leið og það gerist er ég farinn til Istan-
bul til æfmga,“ sagði Eyjólfur Sverris-
son í samtali við DV í gær.
Eyjólfur Sverrisson.
Jack Charlton.
Charlton
hættur?
Nokkrar líkur eru
taldar á því að Jack
Charlton hætti sem
þjálfari írska lands-
hðsins í knattspymu
eftir heimsmeistara-
keppnina. Hann hef-
ur stjórnað Uði íra
frá 1986 með alveg
einstökum árangri.
Alþjóða knatt-
spymusambandið,
FIFA, dæmdi Charl-
ton í eins leiks bann
á HM sem kunnugt
er fyrir að rífast of
harkalega í dómur-
um frá hliðarlín-
unni. Einnig dæmdi
FIFA hann til að
greiða rúmlega millj-
ón króna í sekt. Talið
er að ákvörðun
FIFA, sem Charlton
segir vera hreina
móðgun við sig,
ásamt öðru, verði
þess valdandi að
Charlton hætti. Al-
menningur á írlandi
sýndi álit sitt á
ákvörðun FIFA í
verki. í gær höfðu
safnast rúmlega 10
milljónir króna til
handa Charlton og
hann sagði í gær að
hann myndi gefa all-
ar þessar milljónir til
góðgerðarmála. „Ég
ætla að greiða mina
sekt úr eigin vasa,“
sagði „Gírafíinn í
gær.
Forkólfar írska
knattspyrnusam-
bandsins mega ekki
til þess hugsa að
Charlton hætti.
Forráðamenn sam-
bandsins hafa lýst
yfir því að allt verði
gert til þess að fá
Charlton til að halda
áfram enda hefur
hann náð einstökum
árangri með írska
landsliðið. Louis
Kilcoyne, sem tekur
við forsetaembætt-
inu hjá írska knatt-
spyrnusambandinu í
þessum mánuði, bíð-
ur spenntur eftir
ákvöröun Charltons
eftir HM: „Það yrði
hræðilegt fyrir Ír-
land ef hann hætti.
Það verður erfitt fyr-
ir mig og enn erfið-
ara fyrir þann sem
tekur hugsanlega við
af honum."
Þess má geta að
Charlton sótti um
stöðu landsliðsþjálf-
ara Englands fyrir
tíu árum en þá gerði
enska knattspymu-
sambandið ekki svo
mikið sem að svara
umsókn hans.
HM-FRÉTTIR
Raducioiu eftirsóttur
Ensku úrvalsdeUdarliðin Tott-
enham og Everton hafa sýnt rúm-
enska sóknarmanninum Florian
Raducioiu mikinn áhuga en þessi
snjalli sóknarmaður hefur sýnt
góða takta með landsliöi Rúmena
á HM. Raducioiu er á mála hjá
AC Milan en hefur ekki náð að
festa sig í liðinu.
Brákaðist á höfuðkúpu
Höfuðkúpa bandariska lands-
liðsmannsins Tap Ramosar brák-
aðist þegar hann fékk þungt oln-
bogaskot í höfuðið frá Leonardo
hinum brasilíska í leik Banda-
ríkjanna og Brasiliu í fyrrakvöid.
Leonardo á yfir höíði sér leik-
bann frá einum leik til þriggja og
verði niöurstaðan 3 leikir spilar
liann ekki meira með á HM.
neimsom Ksmos
Leonardo lieimsótti Ramos á
sjúkrahúsið í gær ásamt forseta
brasilíska knattspyrnusam-
bandsins. íæonardo segir að þetta
hafi litið illa út í sjónvarpinu en
í raun hafi hann ekki gert þetta
af ásettu ráði. Leonardo og Ram-
os spjölluðu saman í 15 mínútur
og varð vel til vina.
Tapaði konunni
Albanskur knattspyrnuáhuga-
maður tapaði konu sinni í veð-
máli um síðustu helgi. Hann veöj-
aði á að Argentínumenn myndu
vinna sigur á Búlgörum í riöla-
keppninni en annað kom á dag-
inn. Sá sem vann veðmálið tók
konuna frá karlinum sem hefur
nú kært máliö til lögregluyfir-
valda í Albaníu.
Escobarritaðibréf
Kólumbíski landsliðsmaöurinn
Escobar sem var drepinn í heima-
landi sínu eftir komu landsliðsins
til Kólumbíu ritaði lesendabréf til
stærsta dagblaðs Kólumbíu deg-
inum áður en hann var drepinn.
Þar sagði hann að þessi útreið
Kólumbíu á HM væri enginn líf-
látsdómur og liðið kæmi reynsl-
unni ríkara til leiks að nýju.
Fékk hjartaslag og lést
43 ára gamall Argentínumaður
lést á heimili sínu á sunnudags-
kvöld. Þetta er ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir að
þegar maðurinn var að fylgjast
með leik Argentinumajma og
Rúmena í sjónvarpinu fékk hann
hjartaslag og lést skömmu síðar.
Maðurinn fékk hjartaslagið þeg-
ar Rúmenhm Hagi skoraði þriöja
mark Rúmena í leiknum og
tryggði sínum mönnum sigurinn.
Olajuwon mætts
Körfuboltasnillingurinn Hake-
em Olajuwon heimsótti landa
sína, Nígeríumenn, á hóteliðfyrir
leik þeirra gegn ítölum í gær og
fyldist síöan með leiknuro.
Oljuwon hefur mikinn áhuga á
knattspyrnu en hann lék á sínum
yngri árum sem markvörður með
háskólaliði í Nígeríu. „Þegar ég
var að alast upp í Nígeríu var
draumur minn aö fá að fylgjast
með heímsmeistarakeppninni og
ég er mjög ánægður að þessi
draumur er nú orðinn að veru-
leika,“ sagði Olajuwon.
Yekiniósáttur
Hinn frábæri framherji Níger-
íumanna Rashidi Yekini sagði í
viðtali eftir leikinn að hann væri
og hefði alltaf veriö mjög ósáttur
við Westerhof þjálfara. „Mér lík-
ar ekki við hann og honum ekki
við mig,“ sagði Yekini en hann
gagnrýndi Westerhof bæði fyrir
hvernig Iiann slillti upp liðinu og
hvernig hami lagði leíkiim upp.
Jón til
Mexíkó
Jón Þ. Sveinsson leikur ekki
meira með 1. deildar hði FH í
knattspyrnu á þessu keppnis-
tímabili.
Jón hélt af landi brott í gær en
hann er á leið til Mexíkó þar sem
hann ætlar að spila innanhúss-
knattspyrnu með mexíkönsku fé-
lagi næstu mánuðina. Jón var í
námi í Bandaríkjunum á síðasta
ári og þar kynntist hann þjálfara
sem nú er við stjórnvölinn hjá
félagsliði í Mexíkó sem fékk hann
til aö koma út. Jón hefur leikið 5
af 7 leikjum FH í 1. dehdinni í
stöðu varnar- og miðjumanns.
8. umferö i
Trópí-
deildinni
hefst í
kvold ou
lýkur síðan
annað
kvold Spá-
maður uin-
ferðarinn-
ar er Pétur Ormslev, fyrrum
landsliðsmaður og leikmaður
með Fram um árabil. Pétur var
um hríö atvinnuknattspyrnu-
maður hjá þýska hðinu Fortuna
Dusseldorf.
Valur - Breiðabltk 1-1
Bæöin liðin hafa verið í vandræð-
um á mótinu. Næstu leikir fyrír
Breiðabhk eru að mínu mati
hreinir úrshtaleikir fyrir þá upp
á framhaldið. Þetta verður bar-
áttuleikur þar sem ekkert verður
gefið eftir.
Stjarnan - FH 2-2
Gengi Stjörnunnar hefur verið
nokkuö köflótt til þessa. Liðið
verður að fara að gera eitthvað
til að rétta úr kútnum. FH-liðinu
hefur vegnað vel og leggur tölu-
vert í sölurnar fyrir aö halda
áfram á sömu braut.
Fram - ÍBV 3-1
í þessum leik á heimavöllurinn
eftir að vega þungt og ráða úrslit-
um að mínu mati. Bæöi hðin
þurfa nauðsynlega á stigum að
halda en það er mín tilfinning að
Framarar vinni sigur í fjörugum
leík.
ÍA-ÍBK 2-0
Skagamenn eru erfiðir heim að
sækja og sýnast lfldegri gegn
Keflvíkingum sem mæta i leikinn
með nýjan þjálfara. Ég held að
Keflvíkingar verði stór biti fyrir
Skagamenn.
Þór-KR 0-1
Þetta verðtir jafn leikur sent gæti
fariö á báða vegu. KR-íngar verða
að vinna til að dragast ekki aftur
úr toppliðunum. Þórsarar gefa
ekkert eftir og í raun verður þetta
mjög tvísýnn leikur. :;;
Búlgaría tryggði sér í fyrsta skipti sæti í 8-liða úrslitum á heimsmeistaramóti í knattspyrnu í gærkvöldi þegar liðið lagði Mexíkó að velli eftir framlengdan leik og
vitaspyrnukeppni. Fögnuður leikmanna liðsins var mikill þegar sigurinn var í höfn en Búlgarar mæta Þjóðverjum í 8-liða úrslitum. Mikill fögnuður braust að vonum út
í Sofiu, höfuðuborg Búlgaríu, í nótt og var fólk enn að dansa sigurdansinn á götum borgarinnar snemma í morgun. Simamynd Reuter
Tímamót í Búlgaríu
Búlgaría 18-liða úrslit 1 fyrsta skipti eftir sigur gegn Mexíkó í vítakeppni. ítalir áfram
Landslið Búlgaríu tryggði sér í gær-
kvöldi þátttökurétt í 8-liða úrslitum
HM í knattspyrnu með sigri á Mexíkó
eftir vítaspyrnukeppni. Þetta er í
fyrsta skipti sem Búlgarar ná svo langt
í keppninni en þeir mæta heimsmeist-
urum Þjóðverja í 8-liða úrshtunum.
Leikurinn var æsispennandi, einum
leikmanni úr hvoru liði var sýnt rautt
spjald í síðari hálfleik og framlengja
varð leikinn. Ekkert var skorað í fram-
lengingunni og vítaspymukeppnin var
söguleg. Mihaylov, markvörður Biilg-
ara, varði tvær vítaspyrnur og Campos
í marki Mexíkó eina. Þegar upp var
staðið sigraði Búlgaría 3-1 í vítakeppn-
inni og 4-2 samanlagt.
Búlgaría
Mexíkó
(1) (1) 4
(1) (1) 2
1-0 Stoichkov (7.)
1-1 Garcia (18.)
Vítaspyrnukeppni
2-1 Boncho Genchev
3-1 Daniel Borimirov
3- 2 Claudio Suarez
4- 2 Yordan Lechkov
Baggio bjargaði ítölum
ítalir sýndu ótrúlega seiglu með því að
bera sigurorð af Afríkumeisturum Níg-
eríu í gær, 2-1. Roberto Baggio reyndist
hetja ítalanna. Hann jafnaði metin
skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma og
tryggði Itölum svo sigur með marki úr
vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks
framlengingarinnar.
„Við vorum aðeins tveimur mínútum
frá þvi að slá þetta frábæra lið ítala út
úr keppni. Við gerðum okkar besta en
heppnin var ekki á okkar bandi,“, sagði
Clemens Westerhof, hinn hollenski
þjálfari Nígeríumanna, eftir leikinn,
mjög svo stoltur yfir frammistöðu sinna
manna.
„Fyrir keppnina sagði ég að við vær-
um komnir hingað til að koma á óvart
og ég held að svo hafi verið," sagði West-
erhof sem stjórnaði sínum síðasta leik
með Nígeríumönnum en hann hefur
þjálfað landslið þeirra undanfarin 5 ár.
„Ég var búinn að ákveða að hætta með
liðið eftir keppnina og þessi 5 ár hafa
verið góður tími. Eg er stoltur yfir því
að hafa fengið tækifæri til að þjálfa
landsliö Nígeríu þennan tíma. Núna
ætla ég að fagna afmæli konu minnar
og fara með 12 ára son minn í Disney-
world,“ sagði Westerhof.
Italía
Nígería
0-1 Amunike (26.)
0-1 R. Baggio (89.)
2-1 R. Baggio (102.)
(0) (1) 2
(1) (1) 1
Leikið að Hlíðarenda
Leikur Vals og Breiðabliks í
Trópí-dehdinni í knattspyrnu fer
fram að Hhðarenda klukkan 20 í
kvöld.
Leika átti á Laugardalsvehi
samkvæmt mótabók KSÍ.
Skagamenn hafa ákveðið að efha tii hópferðar á leik IA og IBV í Trópí-deildinni
sem fram fer í Vestmannaeyjum á mánudaginn. Þeim sem áhuga hafa á að fara í
þessa ferð er bent á að hafa samband við skrifstofu knattspymudeildar ÍA sem fyrst
í síma 93-13311. KR-ingar verða meö hópferð til Akureyrar á morgun kl. 15.30. Skrán-
ing er í síma 27181 og einnig hjá Eiríki á Greifanum í síma 22077. KR-ingar veröa
einnig með hópferð á bikarleikinn um miðjan mánuðinn gegn Akurnesingum.
Evrópumót í goKi
Evrópumót unghnga 19-21 árs í
golfi fer fram í Danmörku dagana
6.-10. júli. Sveit íslands skipa:
Þóröur Ólafsson GL, Sigurpáll
Sveinsson GA, Vilhjálmur Ingi-
bergsson NK, Öm Amarson GA,
Tryggvi Pétursson GR, Tómas
Jónsson GKJ.
Magnús genginn í FH
Magnús Ámason, markvörður
Hauka undanfarin fjögur ár, er geng-
inn í raðir FH-inga og mun verja
mark hðsins í 1. deildinni í hand-
knattleik á næstu leiktíð. Magnús,
sem gekk th liðs við Hauka fyrir fjór-
um árum frá FH, tekur stöðu Berg-
sveins Bergsveinssonar landshðs-
markvarðar sem á dögunum fór frá
FH th Aftureldingar.
„Þetta var erfið ákvörðun en
kannski eðlileg og ég taldi betri kost
að fara til FH en vera áfram í Hauk-
um. Ég hef átt mjög góðan tíma hjá
Haukum, sérstaklega á síðasta
keppnistímabhi, en nú tekur við
spennandi tími hjá mínu gamla fé-
lagi. Það var ekkert endhega á dag-
skrá að skipta aftur yfir í FH. Ég sá
ekkert fram á það aö Bergsveinn
væri á förum í bráð en þegar leitað
var th mín ákvað ég að skipta að vel
athuguðu máh,“ sagði Magnús Árna-
son við DV í gær.