Alþýðublaðið - 25.04.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 25.04.1967, Blaðsíða 3
KONSTANTÍN FANGI í HðLLINNI I TATOI? Aþenu 24. apríl (NTB-Reuter). — Konstantín konungur mun bráð- lega stjórna fundi í hinni nýju stjórn, sem mynduff var eftir bylt- inguna í Grikklandi, aff því er Konstantín Kolias forsætisráðherra skýrði frá í kvöld. Hinn ungi konungur hefur ekki gefiff ncina opin bera yfirlýsingu um afstöðu sína til byltingarinnar síðan hún var gerff, en ityja stjórnn segir konung styðja byltingarmenn. Talsmaður stjórnarinnar neit- aði því í dag, að konungur væri í stofufangeisi. Kolias forsætisráðherra sagði í formlegri yfiriýsingu sem lesin var upp í útvarpinu í Aþenu að lífið í landinu væri komið í eðli- legt horf á ný. Hann sagði aö mál allra þeirra sem handteknir hefðu verið yrði rannsakað ítarlega og sagði að allir þeir sem hafðir væru í haldi sættu góðri meðférð og væru við góða heilsu. □ Valdatöku mótmælt Frá Vínarborg berast þær frétt- ir að um 400 Grikkir og austur- rískir sósíalistar hafi í dag geng- ið um götur borgarinnar og hróp- að „Burtu með fasistana frá Grikklandi" og „Niður með ein- ræðisherrann Ko(nstantín“. Ekki kom til átaka. Kaupmannahafnarblaðið „Poli- tiken‘“ hermdi í dag að um 50 Grikkir búsettir í Kaupmanna- höfn hefðu komið á fót andspyrnu hreyfingu til að samræma mót- mæli við stjórnir NATO-landa vegna byltingarinnar í Grikk- landi. Foringi hópsins er Georg Mavroganis, sem var starfsmaður gríska sendiráðsins í Kaupmanna- höfn þar til byltingin var gerð. Hermenn voru enn á verði á mikilvægustu stöðum í Aþenu í dag, en verzlanir, kaffihús og veit ingahús voru opin eins og venju- lega. Ekki virtist vera neinn sér- stakur viðbúnaður við konungs- höllirja í Tatoi, sem er 24 km frá höfuðborginni. Konungur hcfur dvalizt þar síðan byltingin var gerð. □ Langur affdragrandi Vitað er að konungur hefur sýnt herforingjunum töluverðan mót- Framhald á 15. siðu. Konstantín konungur og Anna María drottning. Viljð reka Grikkland úr NATO A Norðurlöndum hafa ver- ið bornar fram kröfur um að Grikkland verði rekið úr NATO vegna valdatöku hers- ins. Formaður utanríkisnefnd- ar norska Stórþingsins, Bent Roiseland, segir í blaðavið- tali, að ef Grikkland verði rekið- úr NATO kunni það að treysta einræðisstjórniná í sessi. Við vitum, að meiri- hluti grísku þjóðarinnar er lilynntur lýðræði og það eru þessi öfl sem við verðum að styrkja, sagði 'hann. Per Borten forsætisráð- herra og John Lyng utan- ríkisráðherra hafa rætt á- standið í Grikklandi eftir herbyltinguna og utanrikis- Framhald á 15. síðu. Mjölskemmur í Vestmanna- eyjum skemmast í eldi Vestmannaeyjum, ES-SJO í fyrrinótt kom upp mikill eld- ur í tveim mjölskemmum Fiski- mjölsverksmiffju Vestmannaeyja og brann önnur þeirra til kaldra kola. Þarna eyðilögðust um 900 Jónína Guffjónsdóttir. Hafdis Sigurbjörnsdóttir Félagsfundur Kven- félags Alþýðuflokksins Kvcnfélas: Alþý^uílokkBins í væntanlegar alþingiskosningar. Reykjavík heldur félagsfund í Sýnd verður kvikmynd frá kvöld 25. apríl í Ingólfskaffi Skaftafellssýslu. Félagskonur niffri. Jónína Guðjónsdóttir og' eru livattar til að fjölmenna og Hafdís Sigurbjörnsdóttir ræffa mæta stundvíslega. - Stjórnin. tonn af mjöli og er tjóniff talið nema tugum milljóna. Eldurinn kom upp milli kl. 3 og 4 um nóttina og urðu menn fyrst varir vi'ð ,hann rétt fyrir kl. 4. Var þegar kallað (á slökkviliðið og kom það strax á vettvang með báða slökkviliðsbíla sína. Einnig tók lóðsinn þátt í slökkvistarfinu og var dælt úr honum, en skemmurn- ar voru staðsettar rétt við hafn- arbakkann. Drengur fyrir bíl Rvík, SJÓ I gærmorgun varff 9 ára gamall drengur fyrir vörubifreið á Þúfu- barði í Hafnarfirffi. Drengurinn var á Ieiff í skólann, er þetta gerö- ist. Við ákeyrsluna lærbrotnaði drengurinn og var fluttur á spit- ala í Reykjavík. Önnur skemman var úr timbri með járnklæðningu og brann hún til kaldra kola. Hin er aftur á móti steinsteypt og stendur því enn uppi, nema hvað þakið er fallið. Álitið er að eldurinn hafi komið upp í trésmíðaverkstæði, sem er til húsa ^ annarri skemm- unni. Mjölið er geymt á trépöll- um, sem lyft var upp á bílana og komst eldurinn inn á milli þess- ara palla^og gerði það slökkvi- starfinu erfitt fyrir. Má segja, að skemmurnar hafi orðið svo til al- elda á svipstundu. Sunnanátt var og tókst að verja nærliggjandi hús, en það voru m.a. vinnslustöð og vélsmiðja frá Magna, en það var aðeins vindáttinni að þakka, því ef um austaanátt hefði verið að ræða, nfátti búast við að vél- smiðjan hefði einnig orðið eldin- um að bráð. Mest varð tjónið á mjölinu, en einnig skemmdust nokkur tæki í skemmunum og ýmislegt fleira. Mjölið var aðallega af loðnu. Rauk enn úr rústunum um miðj- an daginn í gær og voru slökkvi- liðsmenn að störfum eitthvað fram eftir degi. Hvert viljið þér fara ? Ferðamannatekjur aukast um 15% Nefnið staðinn. Við flytjum yður, fljótast og þœgilegast. Hafið samband við ferðaskrifstofurnar cða PA.IV AMBRICAIV Hafnarstrrcti 19 — simi 10275 Árið 1966 keyptu bankarnir gjaldeyri af erlendum ferðamönn um fyrir kr. 94 miljónir 513 þús und, en það er rétt liðlega 15% aukning frá árinu á undan. Með aleyðsla á hvern ferðamann ér þó nokkru minni 1966 en árið áð ur, þannig að aukningin stafar al gjörlega af auknum ferðamanna straumi. Séu fargjöld og fríhafnar sala talin með gjajdeyristekjum af ferðamönnum má gera ráð fyr ir því að þær hafi samtals numið um 324 milljónum króna. Frá þessu segir í ársskýrslu Ferðamálaráðs, en ferðamálaráð- stefna verður haldin að Hótel Borg í Reykjavík á fimmtudag og föstudag og hefst ráðstefnan kl. 10 árdegis. Verða á ráðstefnunni rædd ýmis máj, sem snerta ferða mál og skyld efni, t.d. náttúru vernd móttaka erlendra ferða- manna, samgöngumál og mögu- Ieikar íslands sem ferðamanna lands. 25. apríl 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.