Alþýðublaðið - 27.04.1967, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 27. apríl 1967 •- 48. árg. 93 tbl. ; — VERÐ 7 KR.
Ástandið i Grikklandi:
Konstantín talar
Papandreou yngri
is’egra stjómarhátta, sagði Konst-
antín konungur.
fyrir rétt
Svipmynd frá upphafi utanríkisráðherrafundarins í fyrradag.
RAÐHERRAFUNDINUM LOKIÐ
Næsti fundur í Finnlandi í ágúst
Utanríkisrá(Sherrafiindi Norður
landa lauk í gær og lialda erlendu
láðherrarnir utan í dag ásaBit
fylgdarliði sínu, Inema T<i/.'(,ten
Nilson utanríkisráðherra Svíþjóð
ar sem »fór strax í gær sökum
anna. Voru mörg mál rædd á fund
inum og er gerð grein fyrir Jieim
í fréttatilkynningu frá utanríkis
ráðuneytinu, sem hér fer á eftir:
HLnn árlegi vorfundur útanríkis
ráðherra Noröurlanda var haldinn
í Reykjavík da'gana 25. og 26. apríl
1967.
Ráðherrarnir ræddu ástandið í
alþjóðamálum. Lýstu þeir stuðn
ingi sínum við friðarviðleitni U
Thants, forstjóra Sameinuðu þjóð
| Fengu vatn
fyrir viskí
HELSINGFORS, 26. apríl
(NTB-FNB) — Óheppnir
whiskyncytendur í Finn-
landi fá greiddar skaðabæt-
ur þar sem whiskyflöskur
er þeir keyptu reyndust hafa
að geyma vcnjulegt vatn, að
því er ALKO, finnska á-
fengiseinkasalan, skýrði frá
í dag.
ALKO segir að rannsókn
hafi leitt í ljós að vatnið í
flöskunum sé ekki frá Hels-
ingfors eða Uleáborg þar
sem flöskurnar voru seldar.
Því sé ekki hægt að segja
'ákveðið um hvernig í þessu
liggur, en framleiðendunum
hafi verið skýrt frá málinu.
anna í Vi&tnammálinu og létu í
ljós von sína um, að sú viðleitni
stuðli að samningagrundvelli um
friðsamlega lausn deilunnar, í
samræmi við hagsmuni og óskir
hinnar vietnömsku þjóðar.
Að því er varðar ástand mála
í Evrópu lýstu ráðherrarnir stuðn
ingi við viðleitnina til frekari frið
samlegra samskipta og samvinnu
milli landanna í Vestur- og Austur
Evrópu, jafnt milli einstakra ríkja
innbyrðis og fleiri ríkja saman.
Ráðherrarnir lögðu áherzlu á
mikilvægi Sameinuðu þjóðanna
sem alþjóðlegrar samstprfsstofn
unar. Friðargæzlustarf Sþ hefur
meginþýðingu, og áríðandi er, að
það sé aukið og eflt. Það er mik
ilvægt, að þau ríki, sem enn hafa
ekki innt af hendi frjáls framlög
til lausnar á fjárhagsvanda Sþ
geri það hið skjótasta.
Ráðherrarnir voru sammála um;
að það væri mjög þýðingarmikið,
að 18 ríkja nefndin nái einingu
um samning um takmörkun á dreif
ingu kjarnorkuvopna, þegar hún
hefur störf að nýju í Genf hinn 9.
maí. Þeir lýstu þeirri von sinni, að
sá samvinnuvilji sem nauðsynleg
ur er, yrði sýndur af öllum aðil
um, þannig að sem flestar þjóðir
yrðu aðilar að samningnum. Slík
ur samningur myndi stuðla að bætt
um ihorfum á árangri á sviði ann
arra afvopnunarmála. Undirstrik
að var mikilvægi almennrar beit
ingar öryggisreglna Alþjóðakjarn
orkumálastofnunarinnar í sam-
bandi við eftirlit með banni gegn
útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Ráðherrarnir kynntu sér
skýrslu hinnar norrænu tækni- og
vísindanefndar á sviði jarð-
skjálftafræðilegra athugana og
voru sammála um, að áfram
skyldi haldið starfinu í þá átt
að kanna möguleikana á framlagi
Norðurlanda til lausnar á eftirlits
vandamálinu. Yrði það gert í
tengslum við ráðgerðan samning
um algert bann við kjarnorkutil
raunum, með því að setja á stofn
á Norðurlöndum athugunarstöðvar
með neðanjarðarhræringum. Með
Framliald á 15. síðu.
AÞENU, 28. apríl (NTB Reuter)
— Konstantín konungur sat í dag
fund með hinni nýju stjórn Grikk
Iands og sagði að hann vonaði að
fljótlega yrði aftur horfið til þing
ræðislegrar. stjórnar. Hinn 26
ára gamli konungur, sem mun
hafa veitt hinni nýju lierforingja
stjórn mótspyrnu, sneri aftur til
Aþenu í morgun frá höll sinni
skammt frá borginni.
— Grikkland hefur að undan-
förnu gengið gegnum miklar
þrengingar, sagði konungur. Graf-
ið hefur verið undan lýðræðisleg-
um stofnunum. Þjóðin, konung-
dæmið, heraflin, dómsyfirvöld —
öll hafa orðið fyrir árásum. En
fyrst og fremst hafi hinir sönnu
liagsmunir þjóðarinnar beðið
hnekki, sagði hann.
Hann bætti því við, að hann
væri þess fullviss, að stjómin og
þjóðin gætu í sameiningu komið
aftur á réttlátu og heilbrigðu lýð-
ræði í náinni framtíð. Ég mun
gera skyldu mína gagnvart landi
og þjóð bætti hann við.
Hann hélt því fram, að yfir-
völdin og ríkið yrðu að þjóna
hagsmunum þjóðarinnar og efla
hana. Ég vona einlæglega að land-
ið hverfi fljótt aftur til þingræð-
□ PAPANDREOU
YNGRI ÁKÆRÐUR
Andreas Papandreou, einn helzti
leiðtogi vinstrisinna í Grikklandi.
var í dag ákærður fyrir landráð.
Hann var handtekinn í bylting-
unni í síðustu viku.
Orffrómur var á kreiki um bað
í Aþenu í dag, að Friðrika drottn-
ing, móðir Konstantins konungs,
væri farin úr landi. Sagt var, að
hún hefði flogið úr landi með
levnd frá flugvellinum í Aþenu.
Talsmaður stjórnarinnar og starfs
menn flugvallarins hafa borið
orðróm þennan til baka.
Dómari að nafni Sókrates Sokra
tides stefndi Andreasi Papandreou
fvrir landráð og skipaði honum
að mæta til yíirheyrslu innan
tveggja sólarhringa. Talið er, að
Papandreou yngri biðji um frest
þannig að réttarhöldin hefjist um
helgina.
í nóvember f fyrra voru Andre
as Papandreou og fimm aðrir
st.iómmálamenn ákærðir fyrir að
bafa haft samvinnu við leyriifé-
lag liðsforingja, Aspida (Skjöldur-
inn). Sagt var. að Aspidafélagið
hafi ætlað að gera byltingu' og
stjórna í anda Nassers forseta
Egyptalands. 15 liðsforingjar voru
dæmdir í allt að 18 ára fangelsl
fyrir þátttöku í samsærinu í síð-
asta mánuði.
Flotalieimsékn
í gær komu til Reykjavík-
ur fjögur skip úr liði Atl-
anzhafsbandalagsins og munu
þau standa hér við fram á
laugardag. Gestum var í
gær boffið um borð í skipið
og var þessi mynd tekin af
skipsbát á leið út í hollenzka ;
skipið FREISLAND. (Ljósm.
Bjl. Bjl.).