Alþýðublaðið - 27.04.1967, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 27.04.1967, Blaðsíða 2
Ásgerður Búadóttir heldur um þessar mundir sýningu á listvefnaði í Unuhúsi. Þar eru sýnd 11 tept>i, bæði sléttur vefnaður og röggvar- vefnaður og eru 9 teppanna til sölu. Sýningin er opin frá 9—6 virka daga og frá 2—10 um helgar. ÁthiKjasemd frá málm- og skipasmiðasambandi íslands Vegna blaðavi'ðtals við hr. Guð- laug Hjörleifsson, forstjóra Lands- smiðjunnar og formann Meistara- félags járniðnaðarmanna, sem birtust í Þjóðviljanum og Morg- unblaðinu varðandi samanburð á kaupi ísl. og erlendra járniðnað- armanna vill Málm- og skipasmiða samband íslands upplýsa eftirfar- andi: Samningsbundið kaup íslenzkra járniðnaðarmanna er nú lægst kr. 2.410,oo á viku eða kr. 54,76 á klst. og hæst kr. 2.792,oo á viku eða kr. 63,48 á klst. Það er því ekki rétt sem forstjóri Landssmiðjunnar segir í nefndum viðtölum að kaup íslenzkra járniðnaðarmanna sé tæpar 70 kr. á klst. Samkvæmt upplýsingum, sem M.S.Í. fékk frá höfuðstöðvum V.- þýzka málmiðnaðarsambandsins í I Frankfurt í dag (26. 4.) var með- I alkaup starfsmanna í V.-þýzkum I skipasmíðastöðvum í október sl. ! 4,70 v-þýzk mörk á klst. eða ísl. Fjölmenni við útför Haralds Böövarssonar Reykjavík, Hdan. ÚtfÖr Haralds Böðvarssonar út- gerðaiþnanns á Akranesi fór fram í gær Sfrá Akraneskirkju á látlaus- an og ívirðulegan hátt. Kir^jan rúmaði ekki alla þá, jsem kömu til að kveðja hinn látna íieiðurs- og athafnamann og voru i^því settir upp hátalarar fyrir ut- an kirkjuna og í félagsheimili Karlakórsins Svanir, þar sem fjöldi manns hlýddi á athöfnina. Sóknarpresturinn á Akranesi, sr. Jón M. Guðjónsson flutti minn- ingarræðu og jarðsöng, Haukur Guðlaugsson organisti lék einleik á orgel, kirkjukór Akraneskirkju og tvöfaldur kvartett söng. Odd- fellowar báru kistuna úr kirkju og síðan sóknarnefnd Akranes- kirkju og safnaðarfulltrúi. í kirkjugarði báru kistuna skipstjór ar og starfsmenn HB & Co. og út- vegsmenn, en síðasta spölinn nán- ustu ættingjar. Jarðsett var að Görðum. kr. 50,76, en ekki 4,00 mörk eins og forstjórinn lét hafa eftir sér. Þessi mismunur á kaupi ísl. og v-þýzkra járniðnaðarmanna (fag- manna) er þó mun minni, þar sem í meðalkaupinu 4,70 v-þýzk mörk er tekið með kaup ófaglærðra manna og lærlinga í v-þýzkum skipasmíðastöðvum. Af þessu má sjá að kaup ísl. járniðnaðarmanna getur ekki ver- ið ástæðan fyrir þeim mismun, sem var á tilboðum íslenzkra járn- iðnaðarfyrirtækja og þess tilboðs, sem v-þýzka fyrirtækið gerði í viðgerð á Bjarma II. Þá má og bæta því við að megn- ið af þeim viðgerðum á íslenzk- um skipum sem framkvæmdar eru erlendis, fara fram á Norðurlönd- um, en þar er kaup járniðnaðar- manna hærra en hér. Samkvæmt upplýsingum frá danska málmiðnaðarsambandinu, þá var meðal tímakaup járniðn- aðarmanna í Danmörku í október d. kr. 13,07 eða íslenzkar kr. 81,20. Af framansögðu er augljóst að kaup íslenzkra járniðnaðarmanna er ekki orsök þess að íslenzk járn- iðnaðarfyrirtæki eru ekki sam- keppnisfær við erlend, eins og forstjórinn heldur fram. KARLOVY VARY, 26. apríl (NTB-Reuter) — Hinni alþjóðlegu ráðstefnu kommúnista í Karlovy Vary lauk óvænt í dag, einum degi áður en ráðgert hafði ver- ið. Þeir sem ráðstefnuna sóttu undirrituðu yfirlýsingu um frið- ar- og öryggismál Evrópu og lýstu yfir stuðningi við hina gömlu til- lögu um, að öll ríki Evrópu haldi ráðstefnu um öryggi og friðsam- lega samvinnu í Evrópu. Góðar heimildir herma að sov- ézka sendinefndin hafi farið fram á að ráðstefnunni yrði hætt í dag þar sem halda ætti mikilvægan fund í Moskvu á morgun. Talið hafði verið, að sovézki kommún- istaleiðtoginn Leonid -"Bresjnev færi frá Karlovy Vary til þess að verða við útför Vladimirs Kom arovs geimfara, en allt bendir til þess að hann sé enn í Tékkósló- vakíu. Embættismenn segja, að ráð- stefnunni hafi lokið fyrr en ætl- að var þar sem auðveldara hefði verið að ná samkomulagi um mik ilvæg mál en búizt hefði verið við. ítalski kommúnistaleiðtoginn Luigi Longo sleit ráðstefnunni með áskorun um, að flokkar þeir, sem sendu fulltrúa á ráðstefnuna, bættu samskiptin sín í milli og samskiptin við flokka þá, sem ekki sendu fulltrúa á ráðstefnuna. Hann átti hér greinilega við Júgó- slava og Rúmena, sem hundsuðu ráðstefnuna. Fréttaritarar telja að fundar menn séu andvígir því að Banda- rík.iamenn taki þátt í umræðum um öryggi Evrópu. í tilkynningu um ráðstefnuna er lagt til að bæði NATO og Varsjárbandalag- ið verði lögð niður. Enn réðizt á Hanoi Saigon 26. apríl (NTB-Reuter) Bandarískar þotur réffust á skot mörk skammt frá Hanoi í Norður Vietnam í dag, annan daginn í röð. Ráðizt var á mikilvæga vega- og járnbrautarbrú sex kílómetr um fyrir norðan höfuðborgina. Norður-Vietnamska blaðið ,,Nhan Dan“ hermdi í dag, að bandaríákar spregjuþotur hefðu í gær ráðist á hafnarhverfið í Haipong. Skotið hefði veýið á brezka vöruflutningaskipið ,,Dart ford“ með þeim afleiðingum að 6 menn af áhöfninni hefðu meiðzt. Bandarískur talsmaður segir, að fimm flugvélar hafi verið skotn ar niður yfir Hanoi og Haipong í | gær, þar af einni norður vbgk {namskri MIG-þotu. Tass hermir j að fjórar bandarískar flugvélar j hafi verið skotnar niður í dag og I ráðizt hafi verið á aðalgötuna í Haipong. Friðjón Skarphéðinsson á þingi Evrópuráðsins Skipun fulltrúa íslands á ráð- gjafarþing Evrópuráðsins í Strasbourg hefur nýlega farið fram. Aðalfulltrúar eru nú Ey- steinn Jónsson, Friðjón Skarphéð- insson og Þorvaldur Garðar Kristj ánsson, en varamenn þeirra Helgi Bergs, Jón Þorsteinsson og Pétur Sigurðsson. Ráðgjafarþingið held- ur fundi í Strasbourg 24.-28. apríl. Aðeins einn íslenzku fulltrúanna gat komið því við að fara til þings ins að þessu sinni. Er það Friðjón Skarphéðinsson fyrrverandi dóms- málaráðherra. Loftleiðir fjöiga ferðum í sum NÝ sumaráætlun Loftleiða hefst 1. maí n.k. og gildir hún til októ- berloka. Þá fjölgar ferðum milli New York og Luxemborgar úr sjö upp í 12 á viku, og Skandinavíu- frá þrem upp í fimm. Ferðafjöldi milli íslands, Bret- lands og Hollands verður óbreytt- ur. Flugvélar Loftleiða mimu koma og fara til Keflavíkur 34 sinnum í viku hverri. Rolls Royce flugvélarnar munu eingöngu not- aðar til ferða milli íslands og Bandaríkjanna, svo og til Luxem- borgar, en Cloudmasterflugvélar að öllu óbreyttu því, sem nú er- — milli íslands og hinna Norðurlandanna, Bretlands og Hol lands. Búið er að skrá mikið af fár- beiðnum og má gera ráð fyrir að flugvélar Loftleiða verði þéttsetn- ar á sumri komanda. Fjöldi þeirra viðdvalargesta, sem þiggja boð um að dveljast hér.í einn eða tvo sólarhinga, fer mjög vaxandi, og hefir meðaltal þeirra nú í apríl- mánuði verið um 30 dag hvern. Fargjöld Loftleiða verða óbreytt á sumri komanda, en brottfarar- Framhald á 14. síðu Kommúnistar slíta óvænt ráöstefnu ALÞYÐUBLAÐIf

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.