Alþýðublaðið - 29.04.1967, Qupperneq 3
BankarátV og baukastjórar Landsbankans á fundi í gær. Fréttamenn í baksýn. (Ljósm.: Bjl. Bjl.).
Þúsundasti fundur banka-
ráðs Landsbanka íslands
María Callas
útgerðarmaður
Um þessar mundir eru nærri
, fjörutíu ár liðin síðan bankaráð
Landsbanka íslands tók til starfa í
sinni núverandi mynd. Var það
stofnsett með lögum nr. 48 frá
31. maí 1927. Hafa fundir að jafn
aði verið■ haldnir fyrsta og. þriðja
föstudag hvers mánaðar, nema sér
stakar ástæður væru fyrir hendi.
Var fyrsti fundur bankaráðsins
haldinn föstudaginn 23. septem-
ber 1927 og í gær hélt það 1000.
fund sinn.
Samkvæmt lögum frá 1927
skyldi æðsta stjórn Landsbanka
íslands vera í höndum fimm
manna bankaráðs og þess ráðherra
sem með bankamál fer hverju
sinni. Var gert ráð fyrir að ríkis
stjórnin skipaði formann til
þriggja ára í senn. Hinsvegar var
sameinuðu Alþingi ætlað að kjósa
hina fjóra til fjögurra ára, þó þann
ig, að tveir skyldu ganga úr annað
hvert ár.
Ári síðar var framannefndum
lögum breytt á þá lund, að Lands
bankanefnd sem kosin var af Al-
þingi, var sett í yfirstjórn bank
ans. Vor henni fengnir í hendur
ýmsir þættir æðstu stjórnarinnar.
Meðal annars skyldi hún velja
fjóra bankaráðsmenn til fjögurra
ára í senn, en sú kosning hafði
áðurv verið í höndum sameinaðs
Alþingis. Hinsvegar skipaði ráð
herra formann bankaráðsins eins
og fyrr, en nú til fimm ára í hvert
skipti. Með breytingum á lögum
um Landsbankann frá 1957 var
þessu aftur breytt þannig, að nú
kýs sameinað Alþingi alla banka
ráðsmenn til fjögurra ára, en við
skiptamálaráðherra skipar for-
mann úr þeirra hópi.
Samkvæmt Landsbankalögunum
frá 1928 var bankaráðinu falið
víðtækt vald um alla starfsemi
bankans. Því var fyrst og fremst
ætlað að marka almenna stefnu í
Framhald á 14. síðu
Viðurkenndu
búðarþjófnað
/ Rvík — SJÓ
Tvær konur hafa nú meðgengið
að hafa stolið telpnakjól úr
verzluninni Anitu við Álfheima,
er var stolið þaðan fyrir nokkru.
Hafði sést til þeirra, en þær
höfðu hraðað sér á brott í bifreið
svo ekki náðist í þær. Ung kona
sem afgreiddi í búðinni hafði
hins vegar þekkt aðra konuna og
mætti hún henni í lækningastofu
einni hér í borg af tilviljun. Bar
hún kennsl á hana og gerði þegar
lögregiunni viðvart. Viðurkenndu
konurnar að hafa stolið úr um
ræddri verzlun. ,
i^L^Wh&úr.^, L
London 28. 4. (NTB-Reuter)
Gríska óperusöngkonan Mana
Callas sigraði í dag í málaferlum
sem snerust um það hvort hún
væri útgerðarmaður.
Innbrot í
Slippinn
í fyrrinótt var brotizt inn hjá
Slippnum og farið upp á skrif
stofur á 3. hæð. Var þaðan stolið
21 þús. og 475 kr. úr peninga
skáp.
Höfðu þjófarnir brotið rúðu
í útidyrahurð og farið þar inn.
Síðan haldið upp á næstu hæð
og brutu þar aðra rúðu og héldu
síðan áfram sem leið liggur upp
í timburgeymslu á loftinu. Þar
á eftir spenntu þeir upp hurð á
stigaganginum á þriðju hæð og
komust þaðan inn á skrifstofur
Slippsins.
Þar náðu þeir í lykil, sem
reyndist vera að stórum skáp,
en í honum var lítill járnkassi.
Opnuðu þeir járnkassann, en í
honum var talsvert af peningum
og höfðu þeir á brott með sér 21
þús. og 475 kr.
Eitthvað munu innbrotsþjófarn
ir hafa verið að flýta sér, því þeir
skildu eftir á gólfinu um 6000
kr., þ.á.m. 5 þús. kr. seðlar einnig
voru inni í þessum stóra skáp
tveir lyklar, sem voru að öðrum
peningaskápum, en þjófarnir munu
ekki hafa kært sig um að athuga
það nánar.
Dómstóll í London dæmdi hinn
auðuga gríska skipaeiganda Pana
ghis Vergottis til að afsala sér
25 af 100 hlutabréfum í olíúfiutn
ingaskipi. Óperusönglconan átti
26 hlutabréfanna, sem skipakóngur
inn Onassis hafði gefið henni, og
þannig á hún nú meirihluta hluta
bréfa útgerðarinnar. ,
Deilan snerist um 60.000 pund
sem Maria Callas hafði greitt Ver
gottis. Vergottis hélt því fram að
hér hefði verið um að ræða lán
en ekki greiðslu á hlutabréfunum.
Onassis var kvaddur sem vitni
og sagði á eftir að hann harmaði
það að Vergottis vinur sinn hefði
tapað málinu. Maria Callas var í
París og Onassis liringdi í hana
og sagði henni frá hinum gleði
legu úrslitum málaferlanna.
Aðalfundur (
Ferðafélagsins
Aðalfundur Ferðafélags íslands
var lialdinn að Café Höll miðviku
daginn 26. þ.m.
Á fundinum skýrði forseti fé-
lagsins m.a. frá því að fyrirhuguð
væri bygging tveggja sæluhúsa á
árinu, í Nýjadal og við Veiði
vötn. Þá kom og fram, að næsta
árbók yrði að öllum líkindum um
Vopnafjörð og fleira. í félaginu
eru rúmlega 6000 manns.
Mikið var rætt um náttúruvernd
á fundinum og m.a. samþykkt svo
hljóðandi tillaga:
Framhald á 13. síðu.
Alþýðuflokksfélögin
í Hafnarfirði, Garðahreppi, Kópavogi og Sel-
tjarnarnesi h'alda sameiginlega
ÁRSHÁTðÐ
í kvöld ld. 8,30 í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði.
Dagskrá: Sameiginleg kaffidrykkja.
Ávörp flytja tveir efstu menn lista Alþýðu-
flokksins í Reykaneskjördæmi: Emil Jóns-
son, ráðherra og Jón Árm. Héðinsson, við-
skiptafræðingur.
Einleikur á fiðlu: Ingvar Jónasson.
Gamanþáttur: Tveir kunnir leikarar koma í
heimsókn síðar um kvöldið.
Dans.
Miðapantanir sími 50499 milli kl. 5—7 e.h.
SKEMMTINEFNDIN.
7. MÁÍ KAFFI
1. maí-kaffi kvennanna í Fulltrúaráði Alþýðuflokksins í
Reykjavík, verður að venju kaldið í Xönó uppi, 1. maí n.k.
Þær konur er ætla 'að gefa kökur eða bjóða fram
aöstoö sína eru vinsamlegast beðnar að hringja í síma
33358 (Svanhvít Tliorlacius) og 13989 (Emclía Samúelsdóttir).
Gylfi Þ. Gíslason. Ólafur Eggertsson. Ingvar Asmundsson.
STJÓRNMÁLAKYNNING
VERÐUR Á MORGUN
Stjórnmálakynning Fulltrúaráðs Alþýðuflokksins í Reykja-i
vík verður á morgun 29. apríl kl. 3 í Ingólfskaffi.
Fulltrúaráðið skipaði nefnd til undirbúnings fundinum og
fjallar nefndin um menntamál. (Skólamál og listir). Gylfi
Þ. Gíslason menntamálaráðherra er framsögui)aður nefnd-
arinnar. Fundarstjóri vcrður Ingvar Ásmundsson mennta-
skólakennari og fundarritari Ólafur Eggertsson kennari.
Flokksfólk er hvatt til að sækja fundinn, og taka virk-
an þátt í umræðum og bera fram fyrirspurnir.
29. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3