Alþýðublaðið - 29.04.1967, Síða 9
KASTLJÓS
HVAÐ GERA ÚTLAGARNIR?
„GRÍSKUR HARMLEIKUR” heitir þessi mynd sem birtist í „Dag-
ens Nyheter” í Stokkhólmi og sýnir afskipti hersins af hinu fall-
valta lýðræði í Grikklandi.
ENN er það aðeins fræðilegur
möguleiki að borgarastyrjöld
brjótist út' í Grikklandi. Allir
Grikkir virðast vera sammála um,
að það sem mestu máli skipti sé
a'ð koma í veg fyrir ný bræðra-
víg.
En ekki verður hjá því komizt
að taka með í reikninginn um
það bil 70.000 Grikki, sem dval-
izt hafa í útlegð í kommúnista-
löndunum í norðri síðan borgara-
styrjöldinni lauk 1949.
Það eru þessir hópar, sem
harðast hafa fordæmt byltingu
hersins í Grikklandi.
Á laugardaginn hóf leynileg
útvarpsstöð, sem kallar sig „Rödd
sannleikans” nokkrar útsending-
ar og gerði svæsnar árásir á „kon-
ungsstjórn, íasisma og einræði.
Útvarpsstöðin mun vera staðsett
„einhvers staðar í Norður-Grikk-
landi.”
★ í ALBANÍU?
Ekkert bendir til þess að
stjórnarandstæðingum hafi tekizt
að koma fyrir leynilegri útvarps-
stöð með svona stuttum fyrir-
vara, aðeins einurn sólarhring
eftir byltinguna. Það verður því
að gera ráð fyrir, að útvarpsstöð-
in sé handan landamæranna, —
sennilega í Albaníu. Albanir eru
einu bandamenn Kínverja í Evr-
ópu og þcss vegna er stjórnin í
Spandiakis : Iíófsamastur,
Grikkland og grannríkin á
Balkanskaga.
Tirana herskáasta kommúnista-
stjórnin í flvrópu.
Það er þannig vafasamt hvort
aðrir „gestgjafar” kommúnist-
ískra útlaga frá Grikklandi
(stjórnir Júgósiavíu og Búlgar-
íu) muni ganga svo langt að
blása að glæðum nýrrar borgara-
styrjaldar og langtum sennilegra
er að þær muni fremur freista
þess að koma í veg fyrir að sag-
an endurtaki sig.
Loks vaknar sú spurning,
hvaða möguleika grísku útlagarn-
ir hafa á því að gegna pólitísku
hlutverki.
Sennilega hafa þeir ekki mikla
möguleika til þess. KKE, kom-
múnistaflokkurinn í Grikklandi,
hefur verið landflótta í 16 ár og
þannig er flokkurinn kominn úr
snertingu við grísku þjóðina. —
Sósíalistar og kommúnistar skýla
sér nú á bak við EDA-flokkinn,
•sem þjónar hagsmunum þeirra
ennþá betur.
En ef til vill er það alvarleg-
asta afleiðing byltingar hersins
að hinir kommúnistisku útlagar
skuli á ný vera hættulegur og
óútreiknanlegur þáttur í grísk-
um stjórnmálum.
★ FJÖLGAÐ í STJÓRN-
INNI.
Fjölgað hefur verið í hinni
nýju stjórn Grikklands og er
hún nú skipuð 18 mönnum, þar
af 12 borgururri, en upphafléga
var stjórnin skipuð fimm her-
foringjum.
Hins vegar hafa hinir fimm
upphaflegu ráðherrar töglin og
hagldirnar í stjórninni, enda
gegna þeir mikilvægustu emb-
ættunum. Hinir nýju ráðherrar
eru aldraðir, íhaldssamir og
„virðulegir” og eiga að gefa
stjórninni virðulegan blæ. Her-
foringjarnir virðast ekkert þurfa
að óttast af hálfu nýju ráðherr-
anna, sem áður hafa ekki skipt
sér af stjórnmálum, en það á
að vera til sannindamerkis um
að þeir hafi „óflekkað mann-
orð.”
Greinilega hefur komið í ljós,
að hershöfðingjarnir og ofurst-
arnir, sem fyrir byltíngunni stóðu,
standa lengst til hægri í stjórn-
málum og gera má ráð fyrir, þótt
því sé ekki haldið beinlínis fram,
að þeir séu félagar í samtökum
Grivasar hershöfðingja, IDEA
(Hið heilaga félag grískra liðs-
foringja), en félagatalan mun
vera 2—3000.
Ennfremur er eftirtektarvert
hve margir byltingarmannanna
eru foringjar í skriðdrekasveit-
um Rersins.
★ MENNIRNIR.
Innanríkisráðherrann, Stiylian-
os Patakos hershöfðingi, er yfir-
maður skriðdrekaherfylkisins.
Giorgios Papadopoulos ofursti,
ráðherra án stjórnardeildar, var
Frh. 10. síðu.
Málningarvinna
Óskum eftir að ráða aðstoðarmann við bíla-
málningu.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
BÍLASKÁLINN HF.
Suðurlandsbraut 6.
LÁUST STARF
Kópavogskaupstaður óskar að ráða sérfræð-
ing í skipulagsmálum, hið fyrsta.
Allar nánari upplýsingar veitir bæjarverk-
fræðingur.
Kópavogi 28. apríl 1967.
BÆJARSTJÓRI.
SUMARDVALIR
Tekið 'verður á móti umsóknum um sumardvöl
fyrir börn hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross
íslands, dagana 2 og 3. maí nk. kl. 10-12 og
14-18 á skrifstofu Rauða krossins Öldugötu 4,
ekki tekið við umsóknum í síma.
Eingöngu verða tekin Reykjavíkurbörn fædd
á tímabilinu 1. janúar 1960 til 1. júní 1963.
Aðrir aldursflokkar koma ekki til greina. Á-
ætlað er að gefa kost á '6 vikna eða 12 vikna
tímabilum.
STJÓRN REYKJAVÍKURDEILDAR
RAUÐA KROSS ÍSLANDS.
Ensk gólfteppi
Enskir teppadreglar
Gangadreglar
Teppafílt
Gólfmottur
Nýkomið í mjög fjölbreyttu úrvali.
i
GEísIP
TEPPADEILDIN.
29. apríl 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ