Alþýðublaðið - 29.04.1967, Side 16
„Ekki minnkar umferðin um
Fljótsdalinn enn“ orti Stefán heit
inn Ólafsson í Grýlukvæði fræga.
Þessi orð skáldsins mætti vel heim
færa upp á pólitíkina þessa dag-
ana. Það er talsvert að gerast og
nýir flokkar og flokksbrot virðast
spretta fram eins og gorkúlur.
Það stefnir allt í þá átt að stjórn-
málaflokkarnir verði með tíman-
um jafnmargir landsmönnum,
cnda hlyti það líka að mörgu
leyti að vera það ákjósanlegasta
skipulag, sem hægt er að hugsa
sér. Alveg á sama hátt og það er
markmið margra að hver maður
eigi sitt flugfélag og sitt trygg-
ingarfélag og helzt sinn banka
eða að minnsta kosti sparisjóð,
þannig er einsýnt að hver ein-
staklingur sé stjórnmálaflokkur út
af fyrir sig.
Sjálfsagt gæti margt athyglis
vert komið í ljós, ef Iþað væri
rannsakað vísindalega hvað mönn
um gengur til, þegar þeir kljúfa
flokka eða búa til nýja flokka.
Raunar er hætt við að slík rann-
sókn yrði erfið í framkvæmd og
eiginlega ekki fær öðrum en
þeim einum, sem rannsakar hjört
un og nýrun. Þó er hægt að skera
úr því með talsverðri vissu í mörg
um tilvikum. Það liggur þannig
til dæmis í augum uppi að það
sem forystumönnum óháðra borg
•ara í Hafnarfirði gengur til að
taka þátt í stofnun nýs stjórn-
málaflokks er löngun til þess að
komast á þing og fá tækifæri til
að afgreiða fjárlög með sama
hætti og fjárhagsáætlunina í Hafn
arfirði sællar minningar.
Nú er nýr mánuður senn að hefj
ast og ef að líkum lætur má gera
ráð fyrir að taugaveiklunin fari
þá vaxandi með hverjum degin-
um. Menn rífast um ágreiningsefni
og þar sem þau þrýtur búa þeir
til ný. Það er nefnilega auðveld_
asti hlutur í heimi að búa til á-
greiningsefni til að rífast um,
þegar á þarf að halda. Sundr-
ung mun þó ekki vera um há-
tíðahöldin 1. maí, heldur verða
þau sameiginleg hjá öllum aðil-
um. Það er óneitanlega talsvert
dauflegra heldur en gamli mað-
urinn, að hver flokkur marsáraði
út af fyrir sig, og þegar flokk-
arnir verða orðnir hundrað þús-
und eða svo — en að því stefnir
greinilega þróunin, — þá verður
auðvitað sjálfsagt að endurvekja
þann forna sið að hver fari út
af fyrir sig 1. maí, og skaðaði
jafnvel ekki að stöku sinnum
kæmi til handalögmála. Að vísu
þyrfti pólitíkin dálítið að breyt_
ast til þess, því að pólitísk heift
þarf að jafnaði að vera talsvert
meiri til að brjótast fram í hönd
unum heldur en í talfærunum.
En hvað sem því líður, þá þyk
ir sumum að það séu skemmti-
legir tímar, sem fara í hönd.
Einkum fylla þann flokk allir
reiknimeistararnir, sem þegar eru
farnir að sveitast við að reikna
suma frambjóðendur inn á þing
og fella aðra með reikningskúnst
um. og það merkilega er að svona
reikna menn ár eftir ár og kosn
ingar eftir kosningar, jafnvel þótt
talsverð reynsla sé farin að koma
á það, að öll reiknilistin sé lítils
megnandi, þegar stundin rennur
upp. Öðrum þykir hins vegar ekki
eins gaman að kosningahitanum,
og þeir eru jafnvel til, sem hálf-
hryllir við því, sem framundfn
kann að vera næstu vikurnar.
]|
!
í!
!t
Hreppakórinn
Hreppakórinn er kominn til Reykjavíkur
úr klakahlaupi og bleytu
og kvað ætia að syngja hér seint í dag fyrir okkur
í sviðsljósi og hitaveitu.
Þegar Fóstbræðrum fréttin barst til eyrna,
fátt höfðu þeir að segja, I
en brugðu við og keyptu sér farmiða í flýti
með flugvél til Vestmannaeyja,
Þetta kalla ég nú óheiðarlega samkeppni.
Já, en ég get fullvissað yður um það að ég var bara að flauta á
eftir leigubíl.
En viti menn — leynist þá
ekki flugan í bjúganu rétt
eins og málsháttur í páska-
eggi.
Morgunblaðið - j/
Það er undarlegt að þeir sem
eru óánægðir með stjórnmála
flokkana skuli naer undan-
tekningarlaust stofna nýja
stjórnmálaflokka . . .
Þegar kallinn sá nýja blaðið
í gær, sagði hann að það væri
skrýtið að það værí látið
ið heita Lögrétta. Það hefði
átt að skíra það eftir öðrum
stað í Árnessýslu, nær sjón-
um ... J
‘tíOÍ'l.
Vilduð þið gera svo vel að stilla ykkur öðruvísi upp.
Mér finnst það vel við eig-
andi að Konstantín skuli vera
kóngur í Grikklandi, því að
honuin var heldur betur gerð
ur grikkur á dögunum . . ,