Alþýðublaðið - 25.05.1967, Page 4
Ritstjóri: Benedikt Gröndai. Símar 14D00—14903. — Auglýsingasfmi:
14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið- við Bverfisgötu, Rvik. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Sími 14903. — Askriftargjald kn. 105.00. — t lausa-
sölu kr. 7'.00 eintakíð. — útgefandfc Albýðuflokiturinn.
AÐ SVÍKJA LIT
AUGLJÓST er, að Alþýðubandalagið er endanlega
klofið. Það er óhugsandi, að t. d. Magnús Kjartans-
son og Hannibal Valdimarsson geti starfað saman á
Alþingi. Þjóðviljinn hefur stimplað Hannibal Vald-
imarsson klofningsmann og svikara; Þjóðviljinn hef
ur meira að segja sagt, að framboð Hannibals sé ó-
beinn stuðningur við ríkisstjórnina. Meiri fordæm-
ingu er víst varla hægt að hugsa sér í því blaði. Og
blað Hannibals Valdimarssonar hefur stimplað Magn-
ús Kjartansson og hans lið ofstækisfulla kommúnista
klíku, sem einskis svífist til þess að halda völdum í
Alþýðubandalaginu. Það er augljóst, að svona fólk
getur ekki unnið saman framar.
En ekki aðeins Magnús Kjartansson og Hannibal
Valdimarsson eru í framboði. Alþýðubandalagið býð-
ur fram í öllum kjördæmum landsins. Hver er af-
staða hinna frambjóðandanna? Styðja þeir Magnús
Kjartansson eða Hannibal Valdimarsson?
Sá eini þeirra, sem knúinn hefur verið til þess að
segja eitthvað um þetta mál, er Gils Guðmundsson í
Reykjaneskjördæmi. En ummæli hans voru ekki
■hraustlegri en það, að hann hygðist ekki skipta sér
af átökunum innan Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík. Enginn mun hafa búizt við því, að Gils Guð-
mundsson skipti sér nokkuð af þessum átökum. Hann
er yfir höfuð að tala ekki afskiptasamur. En ein-
'hverja sköðun hlýtur frambjóðandinn að hafa. Hann
-getur ekki verið sammála bæði Magnúsi Kjartanssyni
og Hannibal Valdimarssyni. Þá byggju tvær sálir í
brjósti hans og harla ólíkar. Hann hlýtur annað
hvort að fylgja Magnúsi í deilunum eða Hannibal.
Ilvorum fylgir hann?
Aðrir frambjóðendur Alþýðubandalagsins verða
einnig að láta skoðanir sínar í ljós. Enginn vafi mun
leil:a á um skoðanir Lúðvíks Jósefssonar og Stein-
gríms Pálssonar. Þeir eru hvor sínum megin. Þá eru
komnir tveir í hvort lið. En hvað um hina? Hvar
standa þeir?
Alþýðublaðið vill liér með beina þeirri fyrirspurn
til efstu manna Alþýðubandalagsins utan Reykjavík-
ur, Au~-urlands og Vestfjarða, hver afstaða þeirra
sé í deilum Hannibals við forystu Alþýðubandalags-
ins. Kjósendur-eiga rétt á svari við þessari spurningu.
Þeir vcrða að vita, hvað þeir eru raunverulega að
kjósa, frambjóðanda, sem er svikari og dulbúinn
stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar, eða kommúnista-
klíku, sem engu svífst í harðvítugri valdabaráttu.
Ef þessir frambjóðendur þegja um þetta mál gera
þeir tilraun til þess verknaðar, sem í spilum er nefnd
ur að svíkja lit.
4 25. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
VANTAR BLAÐmjRÐAR-
f0l.ii s
EFTIRTALIN HVERFI:
miðbæ i oe n
HVERFISGÖTU EFRI
RAUÐARÁRHOLT
LAUGARAS
FRAMNESVEG
msb
mmmmœmm
Auglýsið i Alþýðublaðinu
krossgötum
★ ÓVIÐKUNNANLEGUR
ÁRÓÐUR.
Húsmóðir hefur sent okkur svo-
hljóðandi bréf: — „Heldur þótti mér það óvið-
kunnanlegt, er ég var að hlusta á' Ríkisútvarpið
um daginn, er einn af starfsmönnum Reykjavíkur-
borgar var að guma af afrekum borgarinnar í leik-
vallamálum.
Þessi starfsmaður Reykjavíkur-
borgar, sem hefur það í hjáver.kum, að sjá um ein-
hvers konar umferðarþætti í útvarpinu lét svo um-
mælt, að mjög hefði verið vel unnið að léikvalla-
málum í borginni undanfarið, en játaði þó, að t. d.
í miðborginni væri ástandið ekki sem bezt. En
hinu hrósaði hann í hástert hve vel hefði að þessu
verið unnið í úthverfunum.
Mér blöskraði að heyra þetta, því
ég veit mæt'a vel, að í þessum efnum er ástandið
langt frá því að vera gott, og mjög víða vantar leik-
velli, sérstaklega í nýju hverfunum þar sem yfir-
leitt' býr barnflesta fólkið.
Mér fannst' þetta því einstaklega
ósmekklegt af þessum borgarstarfsmanni, að vera
að guma af þvi sem engin ástæða er til að guma
af og alls ekki i hans verkahring að leggja dóm á
fyrir hlustendur. Vænti ég þess að heyra ekki slíkt
aftur, enda á það ekki erindi í þessa þætti.
Þess ber að geta, sem vel er gert,
en frammístaða Reykjavíkurborgar í leikvallamál-
um hefur ekki verið slík að vert sé að guma af
henni.”
j
★ LEIKVELLI VANTAR.
\
Við heyrðum ekki þennan um-
rædda útvarpsþátt, en auðvitað er það ámælisvert,
ef menn misnota sér útvarpið eins og „Húsmóðir”
telur umræddan borgarstarfsmann hafa gert.
Það er ástæða til að taka undir
þau orð bréfritara, að ástandið í leikvallamálum í
Reykjavík er langt' frá því að vera gott. Hefur
raunar ríkt undarleg fásinna um þetta allt of lengi.
Það var veruleg bót, þegar fundið var upp á' þvl
að hafa gæzluvelli, þar sem mæður eiga að geta
vitað af börnum sínum í öruggri gæzlu. Sá er bara
gallinn á gjöf Njarðar, að þessir vellir eru allt of
fáir og dreifðir um borgina og koma því ekki öllum
borgarbúum jafnt að gagni.
Eins hefur oft verið á það bent
að hér í borgina vantar algjörlega athafnasvæði
fyrir börnin, sem eru orðin of gömul fyrir leik-
vellina, en ekki nógu gömul til að vinna.
Þarna er ærið verkefni til að
vinna að og hefur oft verið i það bent, m. a. hér
í Alþýðublaðinu, hver nauösyn það er að koma
upp einhvers konar athafnasvæðum fyrir þessi
börn, meðal annars til að forða þeim af götunni,
sem oft vill verða þeirra helzti leikvöllur. Karl.
Áskriftasími AJþýðublaðsins er 14900