Alþýðublaðið - 28.05.1967, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.05.1967, Blaðsíða 1
Sunnudagur 28. maí 1967 - 48. árg. 117. tbl. -■ VEIIÐ 7 KR. SJÓMENN! Alþýðublaðið minna á Á sjómannadaginn þrjár staðreyndir. v I.) Eignir sjávarötvegs og fiskiðnaðar í skip- um, verksmiðjum, vélum og öðrum fjármun- um hafa aullízt um rúmlega 50% frá árslok um 1958 til jársloka 1966. 2) Rúmlestatala fiskiskipa yfir 100 lestir hefur aukizt um meira en 400% síðan í árslok 1958. 3) Afkastageta síldarverksmiðja á Suíiur-, Vest- ur- og Austurlandi jókst um 300% frá árs- lokum 1958 til ársloka 1965. SJÓ^IENN! AlþýSublaðiS spyr ykkur, hvort þið metiS melra: Athafnir til eflingar sjávarútveginum eða Áróður um, aS allt gangi þar á afturfótum. Eggert G. Þorsteinsson ráðherra í viðtali við Alþýðublaðið Góð samvinna við verkalýðs- samtökin merkastur EINHVER mikilvægasti árangurinn af störfum og I stefnu núverandi ríkisstjórnar er hin góða samvinna, sem tekizt hefur með verkalýðshreyfingunni og ríkis síjórninni, sagði Eggert G. Þorsteinsson, ráðherra, í! viðtali við Alþýðublaðið í gær. Núverandi ríkisstjórn; hefur í þessu efni tekizt það, sem vinstri stjórnin reyndi, en tókst ekki, sagði ráðherrann. Alþýðublaðið spurði rá'ðherr- ann hverja hann teldi lielztu á'- stæðu til þess, að svo gott sam- starf hefði - tekiat við verkalýðs- lireyfinguna sem raun bæri vitni. Það er að mínu áliti hin mikil- væga lagasetning í þágu verkalýðs hreyfingarinnar, sem á stærsta þáttimv í þessu, sagði Eggert G. Þorsteinsson. Og þar ber hæst lög- in um láunajöfnuð karla og kvenna og lögin um byggingu 1250 íbúða fyrir láglaunafólk í verkalýðsfé- lögunum. Með byggingu íbúða í stórum stíl fyrir láglaunafólkið er ætlunin að gera tilraun til þess að . læk.ka stærsta utgjaldalið launa- manna og þá' sérstaklega unga Tvö blöð - 32 síður í tilefni af sjómannadegin um er Alþýðublaðid tvö blöð í dag, alls 32 síður. í auka- blaðinu er grein eftir Jón- as St. Lúðvíksson um sjó- slys við Eyjar 1916, greinin Á Royndinni eftir Óskar Jónsson, myndir úr lífi s.jó- manna og sittbvað fleira. fólksins, þ. e. húsnæ'ðiskostnað- aðinn. Eggert. sagði,, að við sjálfar byggingaframkvæmdirnar í Breið- holtshverfi yrði beitt öllum hugs- anlegum aðferðum, er lækkað gætu byggingarkostnað. Yrðu þar að verki jafnt einstaklingar sem félög. Það þyrfti að komast inn í huga fólks, að það væri verðugt markmið að keppa að því að byggja og selja húsnæði með sem sann- gjörnustu verði. Og hið opinbera ætti að mæta þeim aðilum, sem beztan árangur sýndu í þessu efni með því að veita þeim forgangs- fyrirgreiðslu. Alþýðublaðið spurði Eggert, hvort betur hefði gengið að leysa húsnæðismálin í tíð núverandi stjórnar en í tíð vinstri stjórnar- innar. Hann sagði, að það, sem gerði gæfumuninn nú væri það, að nú væri vandinn á sviði hús- næðismálanna viðurkenndur sem þjóðfélagslegt vandamál. En svo hefði ekki verið áður. í tíð vinstri stjórnarinnar hefðu hlaðizt' upp lánsumsóknir hjá Húsnæðismála- stjórn, án þess að nokkur tök i hefðu verið á því að leysa úr i þörfum allra vegna þess áð ékkert i hafði verið gert. til' fjáröflunar | annað en að koma á skylduspam- | aðinum. En á þessu' hefði oxðið i mikil breyting í tíð núverandi [ stjórnar. I Eggert G. Þorsteinsson sagði, að starf núverandi ríkisstjórnar hefði orðið til hagsbóta fyrir verkafólk til lands og sjávar og það hefði tekizt að tryggja því þau lífskjör, sem það byggi við í dag. Sjómenn ættu nú við mun betri aðstæður að búa en éður vegna nýrra glæsilegra fiskiskipa, sem komið hefðu til landsins- í tíð núverandi ríkisstjómar. Ráðherrann sagði, að gerbylt- ing hefði orðið í sjávarútvegin- um með tilkomu hinna nýju fiski- skipa. Áður hefði meðalstærð fiskiskipa annarra en togara ver- ið 30—40 tonn, en nú væri með- alstærðin nær 200 tonn hvert skip. Á undanfarandi ári eða frá 1. júní 1966 hefðu komið til landsins 25. ný fi8kiskip, 6949 brúttó rúm- lestir að stærð. Og á undanförnum árum hefði mikill fjöldi nýrra Framhald á 13. síðu. Gullþjéfar handleknir í London LONDON, 27, maí (NTB- Reuter) — Lögreglan í Lon- don handtók í nótt tvo karla og eina konu, sem ákærð verða fyrir hlutdeild í gull- ráninu mikla í Lordon 1. mai. Yerðmæti þjfir.ins er talið nema 800.000 pnndum. Glæpamennirnir réðust á þrjá menn, sem fluttu gull- ið í brynvörðum bíl milli staða í London. Glæpamenn- irnir beittu gasbyssum gegn vörðunum, læstu ])á inni í bílnum og hurfu s ðan á brott með ránsi'enginn. Þau þrjú sem hafa ver ið handtekin eru Leslie Al- dridge, 37 ára gamal tækni starfsmaður sjónvarps, Nor- man Margre þrítugUr stú- dent sem stundar nán í húsa gerðarlist og Brenda Des mond, 24 ára göniuj síma- mær. Þau eru öll frá Lon- don.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.