Alþýðublaðið - 31.05.1967, Qupperneq 2
IIIIIIIIIIMIHIIIMIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIik
Œv^3 f, gfr '®*'< , í Náftúru- gripa- \
- sýning \
Þessa dagana stendur yfir
sýning á náttúrugripum að
Fríkirkjuvegi 11. Að sýningu
þessari standa áhugamenn um söfnun náttúrugripa og eiga 12 manns muni á sýningu þess ari. Sýningin er hin fjölbreytt asta, en margir þátttakenda hafa safnað náttúrugripum ár_ um saman og eiga hin glæsi legustu söfn. — Myndina hér til hliðar tók Bjarnlcifur af
einum sýningarskápnum, en sýningin veröur opin daglega
frá kl. 2-10 til 5. júní nk.
í *Æm,. JlllMÍÍ í- * - ^ : II1111■ l ■ 1111■ 1111 ■ ■ i ■ ■ ■ 111■ l■ ■ ■ ■ I■ 1 ■ 111 ■ l ■ ■ 11 ■■ ■ ■ 111 ■ 1111 ■ 11 ■ ■ 1111 ■ ■ 11M M
Sýning um samskipti
manns og bókar opnuö
í Myndlistar- og handíðaskóla ís
lands verður opnuð í dag kl. 5 at
hyglisverð sýning er nefnist Homo
Jkegens eða Hinn lesandi maður
og mun menntamálaráðh., Gylfi
I>. Gíslason opna sýninguna. Sýn-
ingin er lánuð hingað með aðstoð
þýzka sendiráðsins frá „Marin-
Behaim“-félaginu í Darmstadt í
Þýzkalandi, en markmið þess fé-
lags er að kynna þýzkar bækur og
bókmenntir erlendis.
Kurt Zier, skólastjóri Myndlist-
ar- og 'handíðaskólans, sýndi
blaðamönnum sýninguna í gær. Á
henni eru samtals 110 myndir, eft
irprentanir eftir listaverkum, ljós
myndir og teikningar, er lýsa á
margvíslegan og skemmtilegan
hátt sambúð manna við bækur,
Iblöð og bókmenntir í nær öllum
heimsálfum. Auk þess verða þar
til sýnis þýzkar og íslenzkar bæk-
u r.
Einkar athyglisvert þykir, að
þessi sýning hefur — umfram of-.
angreint markmið — almennt list _
rænt gildi, og er það þess vegna, i
að skólinn Ihefur ákveðið að efna
til hennar. Segja má, að í önnum
hins daglega lífs, gefist mönnum j
lítið tækifæri til að draga sig í
hlé, skapa tsér helgidagsstund,
ganga fyrir sjálfan sig. Menn gera
það þó þegar þeir taka sér bók í
hönd. Þá opnast allar gáttir, víkk
ar heimurinn. Hugsanir, þjáning-
ar og ihamingjudraumur annarra
verða eign lesandans.
Myndir sýningarinnar lýsa sam
búð manna og bóka. Alltaf hafa
menn reynt að svala þekkingar-
þorsta sínum úr þessari upp-
sprettulind andans. Þannig hafa
vaxið upp hrnir miklu kennimenn
og leiðtogar mannkysins: spá-
menn, andlegir og veraldlegir
framámenn, fcennarar, skáld og
listamenn.
Sýningin sýnir einnig hvernig á
okkar dögum tugir og hundruð
milljónir manna grípa til bóka og
blaða í fyrsta skipti, hvernig heil-
ar þjóðir vakna til sjálfsvitundar
með því að lesa. Þessu er lýst með
ágæturn ljósmyndum frá Asíu og
Afríku.
Nú hefur engin þjóð reynt á
jafn eftirminnilegan hátt og ís-
lendingar, að hve miklu leyti bar
áttan um frelsi og sjálfstæði er
háð fjársjóði bókmennta. Þeir
ihafa sannreynt, að frj'áls og sjálf
stæður maður er maður, sem les
— Homo Legens.
Þess vegna mætti ætla, að sýn-
ingin, sem nú verður opnuð, eigi
sérstakt erindi til allra þeirra ís-
lendinga, er dá bækur og' taók-
menntir, þ. e. a. s.: homo legens,
hins lesandi manns.
Sýningin verður opin daglega
frá kl 3 til 10 síðdegis frá 1. til
10. júní í húsakynnum skólans að
Skipholti 1.
Bókasalar álykta
um tollamál og
söluskattinn
Nýlega var haldinn aðalfundur
Bóksalafélags íslands. Fundurinn
gerði eftirfarandi samþykkt varð-
andi tollamál íslenzkrar bókagerð-
ar, svo og vegna söluskatts á ís-
lenzkum bókum:
„Aðalfundur Bóksalafélags fs-
lands, haldinn föstudaginn 26. maí
1967, leyfir sér enn á ný að vekja
athygli á hinni ranglátu skipan
tollamála, sem íslenzkir útgefend-
ur þurfa að búa við. Á sama tíma
og erlendar bækur og blöð eru
algerlega tollfrjáls flutt til lands-
ins, er íslenzkum útgefendum gert
að greiða háa tolla af pappír og
bókbándsvörum. Augljóst er, að
þessi skipan tollamála stendur ís-
lenzkri útgáfustarfsemi verulega
fyrir þrifum og neyðir íslenzka
útgefendur til ójafnrar og órétt-
látrar samkeppni við erlenda að-
ila, sem njóta sérstakra fríðinda
umfram íslenzka útgefendur. Þess
vegna skorar fundurinn á ríkis-
stjórnina að beita sér nú þegar
fyrir endurskoðun á tollum á efni
til bóka- og blaðaútgáfu, svo að
íslenzkir útgefendur hafi ekki lak
ari aðstöðu í sinu eigin landi en
erlendir keppinautar þeirra. Sömu
leiðis minnir fundurinn á, að fyr-
Aukatón-
leikar hjá
Sinfóníunni
Fimmtudaginn 1. júní heldur
Sinfóníuhljómsveit Íslands aðra
aukatónleika starfsársins, sem nú
er að Ijúka. Tónleikarnir verða
tékkneskir tónleikar. ÖH verkin,
sem leikin verða, eru eftir Dvorak,
Karnival-forleikurinn fyrst, en
síðan píanó-konsertinn í g-moll og
eelló-konsertiim í h-moll. Einleik
arar og stjórnandinn eru, hver á
sínu sviði, í fremstu röð í Tékkó-
slóvakíu.
Stjórnandinn er Zedenek Maeal,
Framhald á 13. síðu.
ir alllöngu hafa Bretar afnumið
söluskatt á bókum, og nýlega hafa
norsk stjórnarvöld gert hið sama.
Telur aðalfundur Bóksalafélags ís-
lands að feta eigi í fótspor þess-
ara þjóða og afnema nú þegar sölu
skatt á íslenzkum bókum“.
í stjórn Bóksalafélag íslands
eiga nú sæti: Oliver Steinn Jó-
hannesson formaður, en meðstjórn
endur: Arnbjörn Kristinsson, Böð-
var Pétursson, Gísli Ólafsson,
Gunnar Einarsson, Hilmar Sigurðs
son og Steinar Þórðarson.
✓
4 Asgríms-
myndir fóru
á 119 þúsund
Sigurður Benediktsson hélt lista
verkauppboð á Hótel Sögu í gær
og voru þar boðin upp 50 lista-
verk. Margt manna var á uppboð-
inu, en þó var Súlnasalurinn ekki
þéttsetinn og voru tilboð dræm
í byrjun. Dýrustu verði fóru mynd
ir Ásgríms, Álfabyggð og manna
eða úr Hellisgerði í Hafnarfirði
og seldist hún á 40 þús. Myndin
er 90 x 110 cm. Næst dýrust var
mynd Ásgríms Úr Húsafellsskógi
og fór hún á 36 þús. Mynd Kjar-
vals, Sólskin, 13x137 cm. fór á
'kr. 25 þús. og Þrí-skrafs-sjón og
Yndislega vornótt, fóru hvor um
sig á 20 þús. kr. Mynd Ásgríms
Ólafsvíkurenni fór á 23 þús. og
Við Geitá fór á 20 þús. Alls seld
ust fjórar myndir Ásgríms fyrir
kr. 119 þús. og 9 myndir Kjarvals
fyrir kr. 129.500. Verk Ásmund-
ar Sveinssonar Eva yfirgefur
Paradís, eirsteypa, seldist ekki,
en lægsta hugsanlegt boð átti að
vera 30 þús kr.
Sjö myndir gengu til baka, þar
eð ekki var boðið í þær. Á upp-
boðinu voru verk eftir 22 íslenzka
iistamenn.
Þér sparið tfma
Fokker Friendship skrú
fuþoturnar eru hrað-
skreiðustu farartækin
innanlands.
Þér sparið fé
Lægri tryggingariðgjöld,
örari umsetning,
minni vörubirgðir.
Þér sparið
fyrirhöfn
Einfaldari umbúðir,
auðveldari meðhöndlun,
fljót afgreiðsla.
F/ytjið vöruna flugleiðis
Flugfélagið heldur uppi áætlunarflugi milli 13 staða á
landinu. Vörumóttakatil allra staðaalla daga. í Reykjavík
sækjum við og sendum vöruna heim.
FLUGFELAG ISLAMDS
2 31. maí 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ