Alþýðublaðið - 31.05.1967, Qupperneq 5
Gylfi Þ. Gislason:
LISTKYNNING
I SKÓLUM
KOMIÐ hefur verið á fót í skólunum starf-
semi, sem nefnd er Listkynning í skólum. Eru
helztu listamenn þjóðarinnar þar kynntir
skólaæskunni, og koma þeir oft sjálfir í skól-
ana, rithöfundar lesa úr verkum sínum, tón-
skáld og tónlistarmenn Ieika verk sín eða þau
eru leikin eða sungin af öðrum, myndlistar-
menn skýra verk sín eða segja frá sjálfum
sér, leikarar Iesa sögu, ljóð eða leikrit, og á-
vallt talar einhver sérfróður maður um þann
listamann, sem verið er að kynna. Komasi
þannig á bein tengsl milli listamannanna og
skólaæskunnar, og er hér um góða og vin-
sæla starfsemi að ræða.
Margir skólar hafa yfir að ráða svo góðum
salarkynnum, að starfsemin getur farið fram
innan skólanna sjálfra. Er það að ýmsu 'leyti
æskilegast. Hins vegar getur verið nauðsyn-
Iegt, að þessi starfsemi eigi sér stað utan
skólanna, í samkomuhúsum. Þetta á t.d. við
um skólatónleika sinfóníuhljómsveitarinnar.
En þeir þyrftu samt að verða reglulegur
þáttur í skólastarfinu, liður í tónlistar-
fræðslu skólanna.
í dreifbýlinu eru skólarnir hins vegar ým-
ist minni en svo, að fært þyki að efna til
slíkrar listkynningar fyrir einstaka skóla, eða
þá að þeir hafa ekki umráð yfir hentugu hús
næði til slíks. Er þá sjálfsagt að nota hin
nýju og glæsilegu félagsheimili til þess að
efna til slíkra listkynninga fyrir marga skóla
í einu. Hefur þetta verið gert. og verið ein-
staklega vel þegið af skólaæskunni í dreifbýl
inu. Er í undirbúningi að stórauka þessa
starfsemi. Er enginn efi á því, að með því
væri merkt spor stigið í skólamálum dreif-
býlisins.
UNGA FÓLKIÐ
OG SLYSIN
HELZTU dánarorsakir í 23 iðn-
arlöndum (þar með talin Norð-
urlöndin öll) og 17 vanþróuðum
löndurn hafa verið kannaðar af
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
inni (WHO). Niðurstaðan í iðn-
aðarlöndunum var í stuttu máli
sem hér segir:
□ Á aldrinum 1-45 ára eru slys
(fyrst og fremst umferðarslys)
algengasta dánarorsökin.
□ í öllum öðrum aldursflokkum
eru hjartasjúkdómar algengasta
dánarorsökin.
□ Krabbamein er önnur al-
gengasta dánarorsök þegar allir
aldursflokkar eru teknir saman.
Á tíu árum hefur hlutfallið auk-
izt úr 15 upp í 18,6% af saman-
lögðum mannslátum.
□ Sjálfsmorð verður æ algeng-
ari dánarorsök og er sjötta al-
gengasta orsökin í löndum eins
og Danmörku, Finnlandi og Sví-
þjóð.
□ Berklar eru enn skæðir í Finn
landi og eru þar sjöunda algeng-
asta dánarorsökin.
Ungverjaland er efst á sjálfs-
morðslistanum, en þar í landi
nema sjálfsmorð 2,9% af öllum
dai ðsföllum. í öðru sæti eru
Danmörk og Finnland með 2,1%
hvort, en Svíþjóð kemur þar á
eftir með 2,0%. í Noregi er hlut
fallið 0,8%, en ísland gefur ekki
upp neinar tölur.
Fimm algengustu dánarorsakir á Norðurlöndum,
reiknaðar í hundraðstölum:
Vor aldurhniginna
FYRIR nokkru birtist grein í
Alþýðublaðinu eftir Erlend Vil-
hjálmsson, um leiðir til þess að
hlúa að því fólki, er skilað hefur
lífsstarfi sínu til þjóðfélagsins.
ALLT heilbrigt fólk óskar eftir
því að eiga langt líf fyrir hönd
um, takist það eru lögmálin óum
flýjanleg það verðu gamalt.
Þess vegná fjallar grein Erlend-
ar ekki eingöngu um þá aldur-
hnignu er í erfiðleikum, standa
í dag og leiðir til að gera líf
þeirra áhyggjuminna, heldur
einnig innlegg til óborinna kyn-
slóða, kannski verðum við með í
þeirra lest. Við sem erum ungir
eða miðaldra höfum flest okkar
umgengizt eða alizt upp með
gömlu fólki, og orðið þess að-
njótandi að finna Ihina mildu
hendi þess strjúka tárvotan
vanga og þerra tár, er eitthvað
hafði hrætt okkur, eða þegar
okkur fannst að þessi stóri heim
ur hefði beitt okkur hróplegum
rangindum. Við getum ekki, og
megum ekki gleyma þessum
stundum, og heldur ekki fallegu
sögunum er það sagði okkur er
við s'átum í keltu þess. Þá leið
okkur vel, þar fundum við ör-
yggi. Fyrir þessar stundir ber
Frh. á' 15. síðu.
Hjartasjúkd. Krabbi
Danmörk 33,0 22,4
Finnland 35,3 17,1
ísland 33,4 15,2
Noregur 32,1 17,7
Svíþjóð 36,0 19,1
Sé miðað við aldursflokka er
útkoman sem hér segir:
1—4 ára: 32% af dauðsföllum
barna stafa af slysum. Fyrir 10
árum var hlutfallstalan aðeins
28%. Þar næst koma meðfæddir
gallar, krabbamein, inflúenza og
lungnabólga — í breytilegri röð
í hinum ýmsu löndum.
5 — 14 ára: Hér eru slys líka
efst' á blaði með 43%, en þar
næst kemur krabbamein með 15
% — og er þar um að ræða 2%
aukningu á einum áratug.
15—44 ára: Hér eru slys enn
efst á blaði með 27%. Þar næst
kemur venjulega krabbamein og
síðan hjartasjúkdómar.
Inflúenza
Heilablóðfall Slys Lungnabólga
12.7 5,2 2,7
13,9 6,1 2,3
12,0 3,1 4,9
15.7 5,0 5,3
12,1 4,5 4,5
45 — 64 ára: Hér eru krabba-
mein og hjartasjúkdómar algeng
ustu dánarorsakir, og valda þess-
ir sjúkdómar hvor um sig 30%
dauðsfaila. Heilablóðfall er í 3.
sæti með 8,6% og slys í fjórða
sæti með 4,8%.
PRÖF ÚR SKÚLA
ÞJÓÐVILJINN sendi á sjó-
mannadaginn Emil Jónssyni og
Eggerti G. Þorsteinssyni tóninn
jyrir störf þeirra að sjávarút-
vegsmálum og kallaði þá „tvo
óhæfa krata.” Afstaðan til
Emils er auðvitað sjúklegt hat-
ur, en sakargiftin í garð
Eggerts hins vegar sú, að hann
sé miirari og þess vegna ekki
þeim vanda vaxinn að vera
sjávarútvegsmálaráðherra.
Þetta sýnir mætavel, hvers
konar fyrirhæri Alþýðubanda-
lagið er, og hver munurinn á
því og Alþýðuflokknum.
Mesti sigurinn
Hlutverk Alþýðuflokksins
hefur verið að koma verkalýðs-
hreyfingunni ttt þroska. Það
hefur honum tekizt svo, að
fyrri stéttaskipting þjóðfélags-
ins er úr sögu. Nú dettur eng-
um í hug, að ætt eða uppruni
ráði úrslitum um hæfni manna
til opinberra starfa. Ennfrem-
ur viðurkenna íslendingar fús-
léga, að meðfæddir hæfileikar
og sjálfsnám geri menn hæfa að
sitja á þingi og í ríkisstjórn og
keppa um slíkar mannvirði-ngar
við langskólagengna samborg-
ara. Þetta er einmitt mestur
sigur jafnaðarstefnunnar. Sví-
ar eru víðfræg menningarþjóð,
en þar í landi finnst eðlilegt og
sjálfsagt, að utanríkisráðherr-
ann sé múrari, af því að hann
er duglegur, gáfaður og reynd-
ur stjórnmálamaður.
íslenzka verkalýðshreyfing-
in hefur sömuleiðis valið til
forustu menn eins og Jón
Báldvinsson og Eggert G. Þor-
steinsson — og er sómi að.
Alþýðuflokkurinn var einmitt
til þess Stofnaður, að þvílíkir
menn fái notið sín.
Þessa „gáfumenn“!
J
Kommúnistar hafa ekki þessa
trú á mönnum eins og Jóni og
Eggerti. Verkalýðshreyfingin á
að leggja Alþýðubandalaginu
svokallaða til atkvæði, en mál-
gagni þess finnst hneyksli, að
múrari sé ráðherra. Önnur eins
mannáforráð eiga af hálfu
verkálýðshreyfingarinnar að
koma í hlut „gáfumanna” eins
og Magnúsi Kjartanssyni og
Lúðvíki Jósepssyni.
Alþýðuflokkurinn telur sér
aftur á móti sóma að múraran-
um í ráðherrastólnum og ætlat
hann táknrænni og farsælli fullj
trúa verkalýðshreyfingarinnar
á íslandi en Magnús og Lúði
vík, þó að margt sé gott um
gáfnafar þeirra. Próf úr skóla
líf sins skipta sannarlegd
nokkru máli í þjóðfélagi nú‘-
tímans.
\
31. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ g