Alþýðublaðið - 31.05.1967, Page 14
Fornmunir óskast
Gamlar byssur, olíulampar, gömul húsgögn,
tréskurður, gamalt postulín og glervörur, hvað
eina, sem er 50 ára eða eldra.
Svör óskast send Alþýðublaðinu merkt 800.
I FÖTUM
FRÁ
RADI0NETTL
tækin eru byggð
fyrir hin erfiðustu
skilyrði
ÁRS ÁBYRGÐ
Radionette-verzlunin
Aðalstræti18 sími 16995
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
Bátabylgjur
Almannatryggingar
í Gullbringu- og Kjósarsýslu
Útborgun bóta í Gullbringu- og Kjósarsýslu
fer fram sem hér segir:
í Mosfellshreppi, fimmtudaginn 1. júní kl. 1-4.
í Kjalarneshreppi, fimmtudaginn 1. júní kl.
5-6. — í Seltjarnarneshreppi, föstudaginn 2.
júní kl. 1—5. — í Garðahreppi, mánudaginn
5. júní kl. 2-4. — í Njarðvíkurhreppi, mánudag-
inn 5. júníkl. 1-5. — í Heiðneshreppi, þriðjudag
inn 6. júní kl. 2-4. — í Grindavíkurhreppi
þriðjudaginn 6. júní kl. 9,30—12.
Ógreidd þinggjöld óskast þó greidd.
SÝSLUMAÐURINN
í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
HampiSjan
Frh. af 3. síðu.
1967 samtals ,kr. 122.989.00. Á
þessu tímabili hefir togarinn far-
ið í sex veiðiferðir og aflað 1.127
tonn að verðmæti kr. 8.223.209,00.
Hefir því kostnaður við net tvinna
og tóg numið kr. 109-.13 á hvert’
fisktonn eða 10.9 aurum á kg.,
sem er 1.5% af lieildarverðmæti
aflans.
Verður þessi útkoma að teljast
mjög góð, en ársnötkun togara í
netum getur verið frá 400—600
þúsund krónur.
Forráðamenn h/f Hampiðjunn-
ar líta mjög alvarlegum augum á
þetta mál, þar sem það er til þess
fallið að spilla áliti og viðskipt-
um fyrirtækisins. Af þessum sök-
um og þar sem ekki er fengin nein
fullnægjandi skýring á því undan
hvers rifjum umrætt plagg er
runnið, telur stjórn fyrirtækisins
annað óhjákvæmilegt en að kryfja
málið til mergjar og hefir því á-
kveðið að leita réttar síns fyrir
dómstólum.
Jafnframt hefir h/f Hampiðjan
óskað eftir því við viðkomandi
ráðuneyti, að hlutlæg rannsókn
fari fram á veiðarfærakostnaði
togaranna og gengið verði úr
skugga um það, hvort hinn mikli
reksturshagnaður af notkun portú
galskra neta, sem gefið er í skyn
að geti skipt milljónum í afla,
komi fram í þeim gögnum, sem
lögð eru fram með styrkbeiðnum
togaranna til stjórnvalda.
Reykjavík, 30. maí 1967.
f.h. H/f Hampiðjan.
Hannes Pálsson.
Að gefnu tilefni upplýsi ég, að
nú mörg undanfarin ár hefur Út-
gerðarfélag Akureyringa hf. notað
tvinna í botnvörpunet, sem fram-
leiddur hefur verið hjá Hampiðj
unni hf. Á eigin netaverkstæði
hafa síðan botnvörpunetin verið
hnýtt.
Árið 1966 og það sem af er
þessu ári hafa öll botnvörpunet,
sem skip félagsins hafa notað,
verið fengin hjá Hampiðjunni hf.
Ending og verð netanna hafa ekki
gefið tilefni til að viðskiptum þess
um verði hætt.
Reykjavík 18. maí 1967.
F.h. Útgerðarfél. Akureyringa hf.
Vilhelm Þorsteinsson
Vegna framkominna ummæla
um botnvörpur frá Hampiðjunni
víl ég taka fram eftirfarandi:
Undanfarin ár hef ég lítilshátt-
ar notað portúgölsk net, en sl. ár
hef ég eingöngu notað net frá
Hampiðjunni, og tel ég þau fylli-
lega sambærileg við þau portú-
gölsku að styrkleika og endingu.
Reykjavík 30. maí 1967.
Sigurjón Stefánsson
skipstj. bv. Ingólfi Arnarsyni
Að gefnu tilefni vottast hér með
að ég undirritaður hef ekki notað
botnvörpunet frá Hampiðjunni síð
an hún hóf framleiðslu með nýj-
ustu gerð véla um sl. áramót.
Einnig vottast, að undirritaður
hefur ekki notað heilar vörpur á-
samt belg og poka um árabil, að-
eins smástykki frá Hampiðjunni
hf.
Reykjavík 19. maí 1967.
Hans Sigurjónsson
Háspennuh'na
Framhald af 3. síðu.
one, ítaliu kr. 124.088.228,—
Tilboðin verða metin bæði
tæknilega og fjárhagslega með
hliðsjón af útboðslýsingunni og
verkið síðan veitt að því loknu,
en bjóðendur eiga að standa við
tilboð sín í sex rnúnuði.
(Frá Landsvirkjun).
BRAGÐBEZTA
AMERÍSKA
SÍGARETTAN
Allshugar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and-
Iát og útför
RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR, fithöfundar.
Guðjón Guðjónsson, Sigrún Guðjónsdóttir,
Gestur Þorgrímsson, Jón Ragnar og Jeanne Guðjónsson.
Við flytjum inniiegar alúðarþakkir ykkur öllum, fjær og nær,
sem með margvíslegum hætti auðsýnduð okkur samúð og
vináttu við fráfall elskulegs sonar okkar, bróður og dóttur-
sonar,
ÁSGEIRS H. EINARSSONAR flugmanns,
er Iézt af slysförum 3. maí sl.
Herdís Hinriksdóttir, Einar A. Jónsson,
Anna S. Einarsdóttir, Þórunn Á. Einarsdóttir
Anna Árnadóttir Wagle.
Hjartkær fósturmóðir okkar,
HELGA EGGERTSDÓTTIR,
frá Kothúsum í Garði andaðist á Ilvítabandinu mánudaginn
29. maí.
Fyrir hönd ættingja og vina, börnin.
14 31. maí 1967 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ