Alþýðublaðið - 01.06.1967, Síða 5
SÖMARKÁPUR
NÝTT ORVAL A F KVENSKÓM Tekilð fram í dag.
KARLMANNASKí TIMPSON STÚDENTASKOR ) R
DRAUGAR
FYRIR nokkrum árum var ég
á ferðalagi úti í Noregi. Höfð-
um við ekið nokkuð langan spöl
fyrri hluta dags eftir malbikuð-
um þjóðvegi, sem var fremur
mjór fyrir þá miklu umferð, er
var á vegi þessum. Fórum við
íslendingarnir inn í matsöluskála
til þess að fá okkur bita. Sé
ég þá að kemur vörubíll, sem
stöðvar við skálann og kemur
bílstjórinn inn til að fá sér að
borða. Settist hann við borð
okkar og tókum við tal saman.
Spurði ég hann hvort ekki
kæmu oft bílslys fyrir á vegi
þessum og þá hver væri helzta
ástæðan. Sagðist hann aka
þennan veg nær daglega og því
miður kæmu fyrir bílslys á þess-
um vegi og væri fyrst og fremst
þar um að kenna „draugunum”
á veginum, en svo nefndi hann
bíla þá, er ækju langt undir
löglegum hraða. Bílar, sem færu
á eftir „draugunum” reyndu oft
að komast fram úr og kæmu þá
oft fyrir bílslys á þessum fjöl-
farna og tilíölulega þrönga vegi.
Taldi bílstjóri þessi, að hægfara
bílarnir væ u þarna hættuleg-
ustu farartækin.
Mér dettur samtal þetta oft
í hug, þegar ég fer milli Hafn-
arfjarðar og Reykjavíkur og þá
sér í lagi þar sem bannað er á
þessari leið að aka fram úr.
Það er bráðhættulegt að aka
með ofsahraða á mjóum vegum,
en líklega þó enn hættulegra að
halda mörgum bílum á eftir sér
vegna þess, að ekki er ekið á
löglega leyfðum hraða; því slíkt
freistar til varasams framúr-
aksturs. Yörubílar, jeppar og
alls konar farartæki láta sig
litlu skipta, þótt margir bílar
komist ekki áfram á löglegum
hraða. Kranar og alls konar far-
artæki, sem stöðva umferð, láta
sig jafnan litlu skipta, þótt bíla-
röðin sé löng á eftir „draug.”
Það er viðburður, ef t. d. kran-
ar og slík hægfara tæki aka út
fyrir aðalbrautina til að hleypa
bílum áfram.
Vegalögreglan lítur eftir, að
eigi sé ekið of hratt og er slíkt
nauðsynlegt, en ég tel að sama
lögregla eigi að áminna þá, sem
trufla eðlilega umferð með allt-
of hægum akstri. Ég hefi séð
bíla undir slíkum kringumstæð-
um taka sig út úr og reyna að
tefla á tæpt vað að komast fram
fyrir „draugana.” Og heyrzt
hefur um bílslys, sem orðið hafa
vegna framúraksturs.
Þetta, sem hér er sagt, á sér-
staklega við hinn þrönga og lé-
lega veg milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur. Veitti því sannar-
lega ekki af, að „draugarnir”
fengju duglega ofanígjöf, engu
síður en hraðakstursmennirnir.
Það hefur tíðkazt að flytja
stutta pistla í útvarpið um
bílaakstur og veitti sannarlega
ekki af að áminna hina hægfara
bílstjóra á fjölförnum, mjóum
vegum, sem oft gera framúr-
akstur bráðhættulegan.
Mér finnst jafnvel að komið
gæti til mála að setja reglur um
lágmarkshraða á fjölförnum veg-
um og gilti það fyrir alla venju-
lega bíla og skylda önnur stærri
flutningatæki til að hleypa bíl-
um framúr með vissu millibili.
Mér virðist að íslendingar séu
yfirleitt' miklu kærulausari í
allri umferð, en flestar þær Ev-
rópuþjóðir, sem ég hefi haft
kynni af og er leitt að þurfa
að játa þennan sannleika, en
svona er það nú samt.
Ég vil svo enda þessár línur
með því að skora á vegalög-
regluna, að gera sitt bezta til
að fækka „draugunum” á hinni
fjölförnu leið milli höfuðborgar-
innar og Hafnarfjarðar, sem nú
er fjölfarnasti þjóðvegur lands-
ins. Myndi umferð á þessari leið
greiðari eftir en áður. — Ó. J.
BILAR TIL SOLU.
Buick árgerð 1951, Chevrolet
station árgerð 1954, 2 Chevrolet
fólksbifreiðir árgerð 1953,
Lincoln árgerð 1954. Seljast
ódýrt. Sírni 36051.
— Klipþið út auglýsinguna-
Lönd & Leiðir-
ferðir siimarið 1967
MAÍ JÚNÍ JÚNÍ JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ
31 8 dagar 19 18 dagar 20 15 dagar 4 18 dagar 4 15 dagar 18 15 dagar 18 22 dagar 21 12 dagar 21 19 dagar
írland Mallorca Norðurlönd Rúmenía Mið-Evrópa Beirut Beirut Rínarlönd Mallorca
JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ ÁGÚST ÁGÚST ÁGÚST ÁGÚST ÁGÚST
21 19 dagar Mallorca 23 15 dagar Norðurlönd 24 10 dagar Ólafsvaka Færeyjar 25 23 dagar Mið-Evrópa 8 17 dagar Rínarlönd 16 15 dagar Beirut 16 15 dagar Mið-Evrópa 17 15 dagar Heimssýn. Kanada t .18 22 dagar Mallorca
ÁGÚST ÁGÚST ÁGÚST SEPT. SEPT. SEPT. SEPT. SEPT. SEPT.
18 18 30 6 6 6 12 23 28
22 dagar- 21 dagur 24 dagar 17 dagar 17 dagar 17 dagar 18 dagar 27 dagar S.um höfin 15 dagar Heimssýn.
Mallorca Beirut Spánn Rínarlönd Mið-Evrópa Spánn Rúmenía M.s. R Maris Kanada
Ferðir á vegum L & L hafa aldrei verið glæsilegri og ódýrari en í ár. Að ofan eru raktar allar hópferðir
á vegum L & L, brottfarardagar og dagafjöldi, en allar frekari upplýsingar er að finna í hinum
glæsilega, litprentaða bæklingi L & L, sem sendur er þeim er þess óska.
Ferðaskrlfsftofains LðND & LEIÐIR
Aðalstræti 8 Símar 243 13 og 208O O
1. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ l|