Alþýðublaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 9
[jónin Þóra Friðriksdóttir og Jón Sigurbjörnsson, bæði leikarar. JNK og frú við falkagötu Hamingjan vendir hjóli niðr til jarðar. Háfur eru til einskis vansa sparðar. Leggst í spenning lönd og gull og garðar, fu sinni. en gætt er síður hins, er meira varðar. Þetta erindi Skáld-Sveins er prentað í leikskrá Þjóðleikhúss- ins, sem fjallar um Hornakór- alinn, klink-klínk kómedíu Odds Björnssonar, Leifs Þórarinsson- ar o'g Kristjáns Árnasonar. Höf- undarnir segja, að þetta erindi ætti að leysa þá undan því ómaki að fjalla nánar um klínkkómedí- una þeirra. Það væri vissulega freistandi að taka á sig ómakið og ræða hana, — ert það er nú einu sinni hlutverk leikgagnrýn- enda en ekki almúgafólks. — Við látum það því vera, en í þess stað fórum við og heim- sóttum Þóru Friðriksdóttur, leik- konu, sem leikur eitt aðalhlut- verkið í Hornakóralnum og fékk mikið klapp að lokinni frumsýn- ingu fyrir frammistöðuna. Þóra leikur þarna móður Erlings Gíslasonar, — en þótt „barnið” sé vaxið úr grasi, er móðirin létt á fæti og til í tungl- ferðir, ef því er að skipta. — Hvernig leizt þér á að taka þetta hlutverk að þér, Þóra? — Mér leizt ágætlega á það. Mér þótti að vísu skrítið fyrst í stað, að ég ætti að leika mömmu Erlings, en við erum líklega jafn gömul. Þegar ég svo las hlutverkið, þá skildi ég, að móðirin átti ekki að vera neitt tiltakanlega gömul, — aðeins móðir yfirleitS á óákVeðtium' aldri. Móðir, sem hugsar bara um drenginn sinn. — Hver átti frumkvæðið að því, að þú lékir móðurina á þennan hátt, — sýndir eins kon- ar skopmynd af gigtveikum mæðrum stórra drengja. Hreyf- ingarnar voru allar ákveðnar í handritinu, hitt' kom einhvern veginn. Ef ég hefði farið að leika hana eins og reglulega gamla og þreytta konu, — þá hefði úr því orðið aðeins léleg leikskólastæl- ing á gamalmenni. Það er ekki auðvelt að leika trúverðuglega þrjátíu eða fjörutíu ár fram fyr- ir sig. Með því að velja mig í hlutverkið hljóta þeir, sem því réðu, hafa ætlað sér að fá fram eitthvað annað en venjulegt gam- almenni. Ef svo liefði verið hefðu þeir valið gamla konu í hlut- verkið. Mér fannst mjög gaman að glíma við þetta lilutverk. Það er liættulegt fyrir leikara að lenda í einhverri ákveðinni „skúffu” eins og við leikararnir kölium það, — að vera alltaf settpr í sams konar hlutverk. Ég held, að það gefi miklu meiri þroska- möguleika, ef maður fær að reyna sig á sem allra flestu. — Þú hefur líka fengið það. í fyrra varstu skvísa í Járn- hausnum og einu sinni varstu Fædd í gær. Var það ekki fyrsta stóra hlutverkið þitt? — Jú, ég fékk það hlutverk, þegar ég var nýútskrifuð úi' leik- skólanum. — Og fékkst mjög lofsamlega dóma. — Já, það má segja það. — Mundir þú vilja leika það aftur? Mundirðu vilja leika fimmtán ár „aftur fyrir þig”? — Nei, ég vildi ekki leika Framhald á 10. síðu. Hiíseignin Sjafnargata 14 er til sölu. Húsið er stórt og vandað einbýlishús, 10 herbergi, eldhús, bað og snyrtiherbergi. í kjallara lítil sundlaug. Stór og fallegur garður. Bílskúr. Semja ber við Hauk Þorleifsson, aðalbókara Búnaðarbanka íslands. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. HAFNARFJÖRÐUR Óskum nú þegar eftir trésmið til þess að sjá um viðhald á skólum bæjarins. Upplýsingar gefur bæjarverkfræðingurinn. VINNUMIÐLUNARSKRIFSTOFAN. SKRIFST OFUSTARF Stúlka óskast til bókhaldsstarfa. Skriflegum umsóknum ásamt meðmælum veitt móttak? til 10. júní á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2. GJALDKERI Staða gjaldkera, sem jafnframt hefur umsjón með innheimtu, er laus til umsóknar. Skrifleg- um umsóknum ásamt meðmælum veitt mót- taka til 10. júní á skrifstofu borgarverkfræð- ings, Skúlatúni 2. Sýnishorn Sýnishorn Nokkur stykki bílar, þríhjól og hlaupahjól til sölu á heildsöluverði næstu daga. Lárus Ingimarsson, heildverzlun, Vitastíg 8A. — Sími 16205. ÚTBOÐ Tilboð óskast í að leg'gja hitaveitu í Árbæjarhverfi, 1. áfanga. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, gegn 3.000.— króna skiiatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað mánudaginn 12. júní kl. 11.00. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar. 1. júní 1967 ALÞYÐllBLAÐIÐ $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.