Alþýðublaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 7
Þoiir þvott
og strokjárn
ÞAÐ þarf hugrekki til að
■stinga ljósu rúskinnsdragtinni í
þvottavélina, stilla hana á 40
gráðu hita og láta vélina svo
sjá um þvottinn. í Danmörku er
nú farið að selja rúskinnsfatnað,
sem má bæði þvo og strauja, en
skinnið er fíngert og litirnir í
fötunum ljósir, t.d. beige, ljós-
blátt og Ijósgrænt. Fötin eru
flutt inn frá Englandi og eru að
sjálfsögðu þar til sölu líka.
Öllum flíkunum fylgir merki,
sem segir, hvort þau séu þvott-
ekta.
Þessi kápa er ljós að lit og er
úr rúskinni sem má þvo.
Ljósblár jakki úr rúskinni, sem
má þvo og strauja.
Hvað á að hafa
með í nesti
FLESTIR reyna að fara eitt-
hvað út úr borginni á sunnudög-
um, ef veðrið er gott og vegirn-
ir þplanlegir. Þá er mest gaman
að hafa með sér nesti og borða
á einhverjum fallegum stað.
Þegar nestið er útbúið er gott
að hafa hugfast:
— Helzt á að forðast að
smyrja með safamiklu áleggi,
t.d. tómatsneiðum, agúrkum,
rauðbeðum og heldur ekki fitu-
miklu, t.d. majones. Slíkt álegg
er betra að hafa með sér í lok-
aðri krukku.
— Gott er að hafa pappadiska
og pappabikara, sem má svo
henda. Þó ekki í rjóðrið, þar
sem snætt var, heldur á að hafa
með sér stðran plastpoka fyrir
allt rusl.
— Fyrir þá, sem eru með smá
börn, er nauðsynlegt að muna
eftir að hafa með rakan klút og
gott er að geyma hann í plast-
poka.
— Það er þægilegt að hafa
meðferðis mat, sem má borða
með fingrunum, t.d. kjúklinga,
samlokur, kaldar kótelettur o.s.
frv.
— Maturinn getur haldizt til-
tölulega kaldur, ef utan um um-
búðirnar er settur blautur papp-
ír.
— í nestiskörfunni verður að
vera nóg af góðum mat, því að
aldrei er fólk eins svangt og á
ferðalagi.
— Mjög gott er að pakka inn
í álpappír, t.d. til að halda mat
aðskildum, sem er 1 sama kassa.
Og svo eru hér nokkrar upp-
skriftir af góðum nestismat.
ur á ská eða skerið þær kringl-
óttar.
Hádegismatur í sveitinni.
(Útbúið áður en farið er af
stað).
Fylltir tómatar.
Tómatarnir eru hreinsaðir að
innan og fylltir með léttsoðnum
hrísgrjónum og kavíaij. Skreytt
með salatblaði.
Pylsusalat.
Framhald á 15. síðu.
Síldarsamlokur.
Hreinsið vel 2 reyktar síldar.
Saxið í smátt nokkrar hreðk-
ur.
1 harðsoðið egg.
Þessu er öllu blandað vel sam
an, þar til það er orðið deig-
kennt. Þá eru búnar til úr því
litlar kringlóttar kökur, sem
lagðar eru á milli í rúnstj'kki.
Franskbrauðsstangir.
SKERIÐ langt franskbrauð í
10-15 sm löng stykki á ská. Skipt
ið hverju stykki aftur eftir endi-
löngu, smyrjið stykkin og leggið
síðan á þau álegg, t.d. lifrar-
kæfu, niðurskorið kjöt, o.s.frv.
Leggið síðan brauðstykki ofan
á áleggið og þrýstið samlokunum
vel saman.
Rúgbrauðssníttur.
Leggið saman tvær og tvær
smurðar rúgbrauðssneiðar með
osti á milli. Skerið í litlar snitt-
1. júní 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7