Alþýðublaðið - 01.06.1967, Síða 10
Nýfa Cortinan er meiri Cortína!
Yfir 500 sigrar í erfxðustu þol- og kappaksturskeppnum um allan heim,
Nýja Cortinan er 6 cm breiðari. Hún er mýkri í akstri, rúmbetri og stöðugri ó vegum.
Hin nýja kraftmikla 5 höfuðlegu vél gefur bifreiðinni mjúkan og öruggan akstur.
Gúmmíhlífar yfir höggdeyfurum varna skemmdum vegna óhreininda.
Kraftmikil miðstöð og loftræsting með lokaðar rúður. Mikið farangursrými. Ný og betri bólstrun ó sætum,
NtWHNt SVEINN EGILSSON H.F.
LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
Verð á CORTINA DE LUXE ER
KR. 187.000.oo.
Innifalið: Hlífðarpanna undir vél og ....
benzíngcymir. — Styrkíar fjaðrir og t BBBja
höggdeyfar. — Stór rafgeymir. — Hjól- Kw' t /\H !$■ v\Sp*
baröar 560x13. 1 / \~? !■: \i
UMBOÐIÐ
Opnan...
Frb. úr opnu.
þegar hafa komið og eiga eftir
að koma verkafólki að góðu
haldi.
Og þá skulum við hér geta
hinna merku laga um launa-
jafnrétti kvenna. En samkvæmt
þeim lögum hafa konur nú
öðlazt rétt til sömu launa og
karlmenn fyrir sömu vinnu.
Réttlætismál þetta náöist fram
fyrir forgöngu Alþýðuflokksins.
Að lokum skal þess getið, að
nú eru verkalýðsfélögin innan
Verkamannasambands íslands
að undirbúa samninga um
ákvæðisvinnu verkafólks, er
vinnur í frystihúsum. Ekki að-
eins þess fólks, er vinnur við
flökun og pökkun fisksins
lieldur einnig alls þess fólks,
sem vinnur að vinnslu fisksins.
Og reynslan mun sýna, að þetta
er . öruggasta leiðin til varan-
legVa kjarabóta cg sú kjarabót,
sem þarf að færast yfir á fleiri
vinnusvæði.
Þær stafireyndir, sem hér hafa
verið skráðar, sýna ljóslega hví-
líkur reginmunur hefur verið á
því að fá bætt kjör verkafólks á
stjórnartímabili núverandi ríkis-
stjórnar eða meðan vinstri
stjórnin undir forustu Fram-
sóknar sat' að völdum. Enda
hefur árangurinn orðið eftir því.
Ragnar Guðleifsson.
Viðtal við Þóru
Frh. úr opnu.
aftur aðalhlutverkið í Fædd í
gær. Það á aldrei að endurtaka
góða brandara. — Ég vildi ekki
heldur leika unglingstelpu hl'ina.
Mér finnst ég bara ekki hæfa
hlutverkinu.
— Veiztu, hvað þú gerir næst?
— Nei, ég hef ekki hugmynd
um það. Hver veit það?
— Þá kemur þessi sígilda
spurning: Hvers vegna varðstu
ieikkona?
— Nú, mér datt það bara í
hug, þegar ég var búin með
gagnfræðaprófið, að prófa þetta.
Ég býzt við, að mér hafi þótt
það „spennandi”. Ég fór fyrst í
Leikskóla Ævars R. Kvarans, svo
í Þjóðleikhússkólann, — nú og
svo hefur þetta bara gengið svona
áfram. Mig dreymdi alls ekkert
um að verða leikkona frá því að
ég var barn eða neitt svoleiðis.
Þá kemur önnur sígild spurning:
— Eru nú ekki einhver óska-
hlutverk, sem þig dreymir um,
heilaga Jóhönnu eða eitthvað
slíkt?
Nei, það er af og frá og því
síður Lady Macbeth. Ég geng
ekki með neitt svoleiðis í mag-
anum.
Þriðja sígilda spurningin:
— Hvernig samræmir þú nú
leikstarfið og hlutverk þitt sem
húsmóðir og móðir?
— Þetta er skorpuvinna.
Stundum er vifína frá morgni til
kvölds í fimm e’ða sex vikur, —
en svo er kannski alveg frí í
mánuð. Auðvitað væri ómögu-
legt að stunda þetta, ef ég hefði
ekki hjálp, — en ég hef unga
stúlku, sem hjálpar mér.
(Litla barnið er Kristín,
tveggja ára. Stóra barnið er Lára,
11 ára, eiginmaðurinn er Jón
10 J. júní 1967 -
manni er fengið upp í hendurn-
ar, — eins og Þóra sagði:
— Auðvitað hafði maður þessa
kellingu við hliðina á sér í tvo
mánuði og reyndi einhvern veg-
inn að koma auga á hana.
BRAGÐBEZTA
AMERÍSKA
SÍGARETTAN
Sigurbjörnsson leikari og óperu-
söngvari).
— Værir þú tilbúin að setj-
ast' um kyrrt og helga þig heim-
ili og börnum, eins og það heit-
ir?
— Ég gæti ekki lifað það af.
— Þú ert þá ekki á þeirri
skoðun, að börnin bíði óþætan-
legt tjón á sálinni, ef móðirin
er ekki heima til að vera t'il taks,
ef þau vilja til hennar taka?
— Nei, ég hef enga trú á því.
Ég held þvert á móti, að það
geti verið skemmtilegra fyrir
börnin, ef mamman sér eitthvað
fyrir utan hina 4 veggi heimilisins.
(Pabbar eru jú alltaf að vinna).
Þá væri líklega einfaldast' að
segja eins og þar stendur: —
Er það ekki eitthvað, sem þú vilt
taka fram að lokum, Þóra?
— Nei, í guðs bænum, segðu
þetta ekki. — Þetta minnir mig
alltaf á það, þegar föngum er
boðið upp á síðustu máltíðina.
Meðan Þóra og Jón voru að
koma sér fyrir á' myndinni töluð-
um við um hestana þeirra, sem
Jón var að koma frá að heim-
sækja. Þeir búa í hesthúsi uppi
við Vatnsenda, — en eigend-
urnir í „leikarablokkinni” við
Fálkagötuna. Ég sá hvergi ryk-
korn á parkettgólfinu og enga
rispu á hvítmálaða ,borðstofusett-
inu,’ sem Jón og Þóra keyptu
úti í Svíþjóð, þegar Jón var að
leika og syngja í Stokkhólms-
óperunni og Þóra var að bíða
eftir Kristínu. Það þýðir ekki
fyrir neinn að reyna að sjá' ryk-
korn hjá Þóru, „þótt hún vinni
úti.” Hún er ein af þessum hús-
mæðrum, sem á ávaxtagraut og
hrygg á sunnudögum og köku
með kaffinu á kvöldin. Svo hefur
hún spékoppa í kinnum og hefur
gaman af fallegum fötum. Og
þegar hún er að æfa nýtt hlut-
verk blómstrar hún eins og fíf-
ill í túni.Það hlýtur þó stundum
að vera erfitt að komast til
botns í því hlutverki, sem
Lausar stöður
Staða forstöðukonu og staða matráðskonu við
Dagheimili Kópavogs eru lausar til umsókn
ar frá 15. september n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir formaður
stjórnar Dagheimilisins, frú Svandís Skúla-
dóttir í síma 41833 árdegis.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf
sendist undirrituðum fyrir 15. júlí n.k.
31. maí 1967.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ