Alþýðublaðið - 13.06.1967, Blaðsíða 10
*****
v,\«umbo5o3a5a
^öinumboð og
® ' tiluumboð
|PmonnqhSfn
r* fWr tva
-ni,»l'"W.
’ningor í 2,
m'og23.des.
WorSmxtj
<*wagen
521-050,00,
Umbobsmenn H.A.B. utan Reykjavikur:
Akranes: Helgi Daníelsson, Brekkubraut 7.
Akureyri: Stefán Snæbjömsson, Stórholt 6.
Borgarnes: Grétar Ingimundarson.
Borgarfjörður eystri: Sigurður Pálsson, skólastjóri.
Dalvík: Jóhann G. Sigurðsson.
Eyrarbakki: Vigfús Jónsson, oddviti,
Fáskrúðsfjörður: Steinn Rafn Eiðsson.
Garðahreppur: Páll Ásgeirss., Smáraflöt 9. S- 51872.
Garður Gerðahrepp: Guðlaugur Tómasson.
Grindavík: Svavar Árnason.
Hafnarfjörður: Ingvar Viktorsson, c/o Brunabótafél.
íslands. Sími 51103.
Hellisandur: Ingi Einarsson, Rifi.
Hnífsdalur: Jens Hjörleifsson.
Hofsós: Þorsteinn Hjálmarsson.
Húsavík: Gunnar P. Jóhannesson, Skólagerði 10.
Hveragerði: Ragnar Guðjónsson, Breiðumörk 19.
ísafjörður: Bókaverzl. Jónasar Tómassonar.
Keflavík: Hannes Einarsson, Miðtúni 5.
Kópavogur: Hörður Ingólfsson, Melgerði 37. S. 41955.
Neskaupstaður: Sigurjón Kristjánsson, Þórhólsgötu 3.
Ytri-Njarðvík: Helgi Sigvaldason, Hólagötu 27.
Ólafsfjörður: Sigurður Ringsted.
Ólafsvík: Ottó Árnason.
Patreksfjörður: Ágúst H. Pétursson.
Reyðarfjörður: Guðlaugur Sigfússon, Brú.
Sandgerði: Brynjar Pétursson, Hlíðargötu 8.
Sauðárkrókur: Guðbrandur Frímannsson, Hólavegi 17.
Selfoss: Jón Áskell Jónsson, Kirkjuvegi 35.
Seyðisfjörður: Sigurður H. Sigurðsson, Túngötu 7.
Siglufjörður: Jóhann Möller, Laugavegi 25.
Stokkseyri: Helgi Sigurðsson, Bræðravog.
Stykkishólmur: Ásgeir Ágústsson.
Súgandafjörður: Eyjólfur Bjarnason .
Vestm.eyjar: Hjörleifur Hallgríms. c/o verzl. Bláfell.
Þingeyri: Steinþór Benjamínsson.
Þórshöfn: Jón Árnason.
Önimdarfjörður: Sr. Lárus Þ. Guðmundsson.
Leikhús
Frh. af. 7. síðu.
ræðu Kölska bregður fyrir end-
uróm úr Gullna hliðinu; þar
hillir aftur undir hina paród-
isku aðferð sem höfundur missti
annars sjónar af í upphafi. Meira
verður ekki úr því, en bein skop
færsla tiltekins efniviðar hefði
eflaust reynzt höfundi/höfund-
um hagkvæmari en viðleitni að
frumsemja sjálfir; tilteknar fyr-
irmyndir hefðu allténd lagt þeim
efni upp í hendurnar að vinna
úr. Þetta virðist' tónskáldinu
hafa verið miklu ljósara: tón-
listin í leiknum kveður við af til-
brigðum og skrumskælingum
kunnuglegra stefja. Einnig leik-
stjóranum með köflum: sum
beztu atriðin í leiknum eru revíu-
skop um tiltekin" kunnugleg fyr-
irbæri: mótmælafundur AA-
manna til dæmis og þjóðhát'íðin
f lokin. Eða þá hin kostulega
útför kölska.
Oddur Björnsson hefur fengið
liðsauka við leiksmíðina, Kristj-
áns Árnasonar sem hefur ort
söngvísurnar í leiknum. Slíkt er
vitaskuld neyðarúrræði, en ekki
virðist hafa á bjátað samstarf
þeirra; vísur Kristjáns skera sig
ekki úr texta Odds. Þær eru ortar
með snoturri hagmælsku á köfl
um, þó Kristján hafi að vísu
ekki óbrigðult brageyra; hins
vegar er með köflum mjög erf-
itt' eða ógerningur að greina
textann í flutningi sem sumpart
kann að stafa af áherzlubrengl-
un tónlistarinnar. Hér hefur
samstarf tónskálds og höfundar
brugðizt: leiktexti, kveðinn, sung-
inn eða mæltur fram, er gagns-
lítill, ef hann verður ekki skil-
inn.
Fjölmargir koma við Horna-
kóralinn fleiri en hér verði tald-
ir, blaðamenn og AA-menn sem
mynda eins konar kór í leikn
um, flugferðafulltrúar, áhalda-
menn og sjógörl og enn fleiri
þegnar þjóðfélagsins. Úr þessum
hópi get ég ekki stillt mig að
nefna Jóhönnu af Akranesi Brí-
etar Héðinsdóttur og Einbjörn-
Tvíbjörn-Þríbjörn Flosa Ólafs-
sonar, hvort tveggja útfarnar
skopgervingar. Þau koma bæði
fyrir í seinni hluta leiksins þeg-
ar hann hefur snúizt upp í rev-
íu af kunnuglegu tagi með ým-
is konar léttu gríni um samtíð-
ina; sá hlutinn er fjölbreytilegri
og fjörugri en hinn fyrri þótt'
hann feli að sönnu í sér uppgjöf
höfundanna fyrir sínum upp-
runalega efnivið. Þannig er mest
gaman að hafa af sýningunni:
sem röð eða kerfi meira eða
minna sjálfstæðra atriða í revíu-
stíl. Og líf sitt' fær hún af alúð
og vandvirkni leikendanna sem
oft gera sér furðu mikið úr litlu
efni; sviðsetningin sjálf virðist
mér hugkvæmnislega og fallega
unnin, einkum sum fjölmenn-
ustu og fjörlegustu atriðin. Að
þessu leyti minnir sýning Horna-
kóralsins meira en lítið á For-
setaefni Guðmundar Steinsson-
ar fyrir no.kkrum árum — sem
að vísu var enn fátæklegra og
fábreyttara verk. En bæði þessi
verk vitna um það að viðreisn
inniendrar leikhúslistar, hvaða
isma eða asma sem menn aðhyll-
ast, útheimtir eitt' umfram allt:
dugandi innlend leikrit. — Ó.J.
Frímerki
Frh. af 5. síðu.
þetta og átti að tákna skepnu,
sem sagt' er frá í opinberunar-
bókinni. Borgarbúum þótti slæmt
að missa jafn frægt skrímsli og
þetta, en Linné hélt áfram ferð
sinni. — (Framhald næst').
Fornleifar
Frh. af 5. síðu.
um eftir að hún lióf gröftinn var
hún búin að finna neðri hluta
styttu af gyðjunni Fortuna. Þvi
miður gat frúin ekki verið lengi
að störfum, en þeir bíða þarna
enn og vona, að hún komi o£
finni hinn helminginn.
Tilkynning
Athygli skal vakin á því, að næturhólf bank-
ans hefur verið endurnýjað og flutt. Það er
nú staðsett vinstra megin við andyri bankans
við Lækjartorg.
Þeir viðskiptamenn bankans, er aðgang hafa að
næturhólfinu eru beðnir að snúa sér til aðal-
féhirðis, til þess að fá afhenta lykla að hinu
nýja hólfi.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS.
Tilboö óskast
í nokkrar fólksbifreiðar og Volkswagen sendi
ferðabifreiðar er verða sýndar að Grensásv. 9,
miðvikudaginn 14. júní kl. 1—3. Tilboðin
verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
10 13. júní 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ