Alþýðublaðið - 01.07.1967, Side 8
HÉR
ERU
25
RÁÐ
„MER kom ekki dúr á auga í
nótt“. Öll þekkjum við þessa
kvörtun, og fáir eru þeir sem
aldrej hafa kynnzt svefnleysi af
eigin reynslu. Það er ein af al-
gengustu meinsemdum í lífi nú-
tímamannsins og færist sífellt í
vöxt Við kvörtum um þreytu,
en við getum ekki sofið á næt-
urnar, ekki hvílzt og endur-
nærzt.
Svefnleysi getur átt margar or
sakir. Hraðinn er orðinn svo
geigvænlegur í lífi okkar, há-
vaðinn og taugaspennan, skemmt
anafíknin og samkeppnin, að
það er ekki furða þótt okkur
gangi illa að sfaka á og sofna
á kvöldin. Auk þess erum við
frámunalega kærulaus þegar
svefninn er annars vegar Við
fómum honum hiklaust ef okk-
ur langar út að skemmta okk-
ur eða sjá langa dagskrá i sjón-
varpinu, og við lesum spenn-
andj reyfara í rúminu og ætl-
urhst til þess að geta sofnað
þægilega út frá þeim, o.s.frv.
o.s.frv.
Þeir sem þjást af svefnleysi
ættu að gera sér grein fyrir
þeirri þýðingu sem fastar venj
ur hafa í sambandj við svefn.
Við þurfum að gefa okkur 'góð-
an tíma til að hátta, fara í bað
eða hvað það nú er sem við
erum vön að gera áður en við
förum í rúmið. Ef við byrjum
að búa okkur undir svefninn
á sama tíma á hverju kvköldi
eða sem oftast, verður það að
vana, að við sofnum ósjálfrátt
þegar að því kemur. Lítið á
börnin. Þeim er sagt að fara í
rúmið hvort sem þau eru syfj-
uð eða ekki, þau hátta sig, raða
fötunum sínum á stól, þvo sér,
bursta tennurnar o.s.frv. Og
þegar þau eru komin upp í rúm
og búin að slökkva ljósið, sofna
þau vært Sami tími, sama at-
burðarás — þetta vekur ósjálf-
ráð viðbrögð Sefh búa barnið
undir svefninn.
Ef þú átt erfitt með svefn
skaltu athuga efti-rfarandi heil-
ræði og prófa eitthvað af þeim
þangað til þú finnur bað sem
bezt á við þig.
1. Að lesa í rúminu. Það
getur verið ágætt. En veldu þér
'þægilega bók sem er ekki- of
spennandi. Hún þarf ekki að
vera leiðinleg, en umfram allt
skaltu lesa eitthvað sem lætur
þér líða vel, en fyllir þig ekki
af þunglyndi og svartsýni. Þú
sefur miklu betur ef hugará-
stand þitt er rólegt og náægju-
legt þegar þú sofnar
>
2. Hressileg gönguferð áð-
ur en þú ferð í rúmið. Það reyn
ist mörgum vel að anda að sér
fersku útilofti og fá góða hreyf-
ingu fyrir svefninn. Einkum er
það liollt kyrrsetufólki og þeim
sem fara lítið út á daginn.
+ 3. Ferskt loft. Ef þú villt
síður fara út að labba, geturðu
opnað svefnherbergisgluggann
þinn. Þú slekkur Ijósið, stendur
við opinn gluggann og andar
hægt frá þér gegnum nefnið (þú
þarft ekki að hugsa sérstaklega
um innöndunina; hún kemur af
sjálfu sér þegar lungun eru
orðin tóm)_
4. Heitt bað. Það er róandi
að liggja í heitu eða vel volgu
vatni og góð tilfinning að þvo
sér um allan líkamann. Hugs-
aðu þér, að þú sért jafnframt
að þvo af þér áhyggjur og erf-
iðj dagsins, og ýttu öllu slíku
frá þér þangað til á morgun.
•fc 5. Svartar hugsanir á hvít-
an pappír Skrifaðu niður það
sem þér finnst ama að eða þú
hefur áhyggjur af. Lestu það
yfir og strikaðu það svo út með
breiðum svörtum línum. Hugs-
aðu ekki meira um það í kvöld.
Þú ert búinn að strika það út
í bili, og nú geturðu sofið ró-
lega.
6. Fylitu ekki svefnherbergi
þitt af óþörfum hlutum. Um-
hverfið hefur sálfræðileg áhrif
á okkur, hvort sem við gerum
okkur það ljóst eða ekki.
Hafðu ekkert inni í svefnher-
berginu þínu nema það nauð-
synlegasta Veldu mjúka róandi
liti á veggi, loft og húsmuni.
g 1. júlí 1967
ALÞYÐUBLAÐID