Alþýðublaðið - 12.07.1967, Síða 9

Alþýðublaðið - 12.07.1967, Síða 9
anna ó hálsinn, óæðri apar lineig.ja sig fyrir háttsettari eða sterkari öpum. Jane komst að raun um, að simpansarnir voru „hirðingjar", ferðuðust um í smáhópum og bjuggu sér til rúm uppi í trjánum á hverju kvöldi. Hún horfði á apa- börnin leika sér í boltaleik með harðskurnaávexti henda þeim á milli sín, sparka þeim og grípa þá. Ennfremur drógu þau á eftir sér greinar og berjaklasa líkt og sleða, og blómum, spýtum og steinum gátu þau leikið sér að klukkutímum saman, En þó fannst henni mest til um þegar hún gerði eina sína merk- ustu uppgötvun — að simpansarn- ir byggju til frumstæð verkfæri og notuðu þau til veiða o.fl. Það var nánast byltingarkennd vitn- eskja, því að til þessa hafði það einmitt verið talið greina mann- inn frá dýrunum, að hann gæti bú ið sér til verkfæri og hagnýtt þau í ákveðnum tilgangi. Og hún sá apana gera það. Þeir settust við hvítmauraþúfurnar með langa stöngla í höndunum og stungu þeim á kaf inn í moldar- hrúguna, biðu síðan átekta og drógu þá loks út fulla af gómsæt- um maurum sem höfðu bitið sig fasta við endann. Jane fylgdist með Davíð meðan hann var að búa sér til „veiðistöng‘“. Hann valdi sér langt og breitt blað af sverðgrasi, reif varlega utan af því þangað til stöngullinn var einn eftir og stakk honum síðan inn um eina holuna eða göngin sem lágu inn í mitt maurabúið. Þegar stöngullinn var farinn að bogna bjó hann sér til annan. Svo tók hann granna vínviðar- grein og reif af henni blöðin, beit af öðrum endanum á henni og notaði hana á sama hátt. Þannig sátu aparnir oft tvo klukkutíma í senn og ,,dorguðu‘“, Hvítmaurar voru meðal þeirra eftirlætisrétta, og þeir töldu ekki eftir sér fyrirhöfnina. Stundum bjuggu þeir fyrst til „veiðisteng- urnar“ og báru þær síðan með sér í leit að mauraþúfum, jafnvel allt að eins kílómetra vegalengd. „Svampbollar“ voru önnur verkfæri eða búsáhöld sem simp- ansarnir bjuggu sér til. Þá tóku þeir fulla lúku sína af laufblöð- um, hnoðuðu þau dálitla stund milli handanna og tuggðu þau síð Jane í frumskóginum. Davíð grá- skeggur teygir sig niður úr trénu til að heilsa henni með lianda- bandi. an þangað til þau voru orðin að eins konar heimatilbúnum svampi. Svo difu þeir honum ofan í vatn sem safnaðzt hafði fyrir í holu tré eða annars staðar þar sem þeir komu ekki vörunum að, létu hann drekka í sig vatnið og sugu hann síðan. Þessu héldu þeir láfram þangað til ekki var dropi eftir af vatninu. Jane lifði ekki neinu letilífi. Hún fór á fætur klukkan hálfsex á hverjum morgni og var oft önn um kafin allan daginn fram til miðnættis. Hún þurfti að elta ap- ana stað úr stað, fylgjast með lifnaðarháttum þeirra, taka af þeim myndir, skrifa hjá sér at- hugasemdir og vinna úr þeim. Þetta voru vísindalegar rannsókn- ir, og hún tók starf sitt mjög al varlega. Iiættum var nóg af í frumskóginum, og stundum slapp 0 -----f--------------------— :rar vísindakonu í myrkviðum Mið-Afríku Æ fingabúningar NÝKOMNIR Fótbolfapumpur Fótboltar - Handboltar TILKYNNING frá Sölunefnd varnarliðseigna. Skrifstofur vorar og afgreiðsla að Grensásvegi 9 verða lokaðar vegna sumarleyfa frá 17. júlí til 14. ágúst. SÖLUNEFND VARNARLXÐSEIGNA. — ALÞYÐUBLAÐIÐ $ 12; julí 1967

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.