Alþýðublaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 5
Árbæjarkirkja
ekki endurvígð
Árbæjarkirkja verður
ekki endurvígð. Það
kemur fram í greinar-
gerð sem Herra Sigur-
björn Einarsson, biskup,
hefur sent blaðinu og
birt er hér að neðan:
Vegna umtals um Árbæjar-
kirkju vil ég taka þetta fram:
Þegar- kirkja er vígð, er hún
helguð með orði Guðs og bæn
og þar með aðgreind frá öðr-
um húsum að því leyti, að þar
má ekkert fram fara nema það,
sem lýtur að kristinni guðs-
dýrkun og miðar, beint og ó-
beint að uppbyggingu krist-
ins trúarlífs. Samkvæmt Helgi:
siðabók vorri er vígð kirkja
„heilagt Guðs hús og allt ó-
hreint og vanheilagt sé fjarri
henni”. Að vígslu lokinni af-
hendir biskup presti og söfn-
uði liúsið „til allrar kristilégrar
notkunar". Notkun 'hussins er
því endanlega á ábyrgð bisk-
ups, þótt aðrir fari með þá á-
byrgð í umboði hans.
Endurvígsla þyrfti að fara
fram, ef eitthvað það gerðist í
kirkju, sem væri þess eðlis, að
vígslan yrði að teljast úr gildi
fallin. Um slíkt eru engar regl
ur til, það er matsatriði í hverju
tilviki. En vígslan er í augum
kirkju vorrar það mikilvæg at
höfn, að gildi hennar verður
ekki hnekkt með mannlegri
gleymsku eða vangæzlu. Vígsl-
an byggist á Guðs orði og Guðs
fyrirheitum og trúfrelsi, og
þetta stendur óhaggað, þótt
vér menn bregðumst á margan
hátt.
Sú slysni sem fyrir ,kom í
Árbæjarkirkju, er að mínu á-
liti ekki þess eðlis, að það komi
til mála að endurvígja kirkj-
una. Þó að ég telji miður að
þetta skyldi koma fyrir og hefði
ekki samþykkt það, ef undir
mig hefði verið borið, tel ég
ekki, að húsið sé óhelgað orðið
af þeim sökum. Hér var um
vangát að ræða og athugunar-
leysi en ekki syndsamlegt at-
hæfi, er varpi varanlegum
skugga vanhelgunar á' þetta liús.
Atliöfnin, sem þar fór fram,
16. águst s.l. átti þar ekki heima
en gerðist þar af því, að hlut-
aðeigendur vissu ekki, hvað
þeir voru að gera.
Ég var ekki á landinu dag-
ana 7.-12/ ágúst. Ritari minn
var utan bæjar þrjá daga í
sömu viku í brýnum erindum
fyrir embættið og skrifstofu-
stúlkan var í sumarleyfi. Var
því ekki um marga daga að
ræða, sem ekki var unnt að
komast í samband við fáliðaða
skrifstofu mína. Ég hef og ver
ið vís og finnanlegur í síma í
allt sumar, þótt ég hafi verið
á miklum ferðalögum. Tel ég
rétt að taka þetta fram að gefnu
tilefni. En ég vil vona, að frek
ari skrif og umræður um þetta
mál séu óþarfar og að þessi
atburður verði til þess, að ekki
sé hætta á, að hliðstæðir at-
burðir gerist síðar. Ég vil einn
ig láta í ljós þá von mína, að
allt þetta umtal varpi ekki
skugga á hamingju hinna ungu
hjóna, sem hlut eiga að máli,
én þeim ann ég alls góðs, þótt
þau játi aðra trú en kristin
kirkja.
Sigurbjörn Einarsson.
l
hópferðin
FYRIR skömmu lagði fjölmenn-
asti ferðahópur íslendinga til út-
landa af stað með skemmtiferða-
skipinu Völkerfreundschaft. Ferða
skrifstofan Sunna hefur skipið á
leigru. Um 500 manns fer með
skipinu til Bergen, Oslo, Kaup-
mannahafnar, Amsterdam ogr
London. Komið verður aftur til
Reykjavíkur 31. ágúst.
Fréttamönnum gafst kostur á
að skoða skipið, rétt áður en það
lét úr höfn. Það er í eigu austur-
þýzku alþýðusamtakanna, en þau
keyptu það af sænsku Ameríku-
línunni, það hét áður Stockhoím.
Skipið er um 12.500 smálestir að
stærð, heimahöfn þess er Rostock,
skipverjar eru um 250, þar af
FJOLSKYLÐU OG FRAMIÍD
Stjórn Húsmæðrasambands
Norðurlanda sat á fundi í Reykja
vík dagana 21. og 22. 4gúst. Til
fundarins komu þrír fulltrúar frá
Finnlandi, þ.á.m. núverandi for-
maður Húsmæðrasambands Norð-
urlanda, frú Anita Olin, þrír full-
trúar frá Noregi, tveir frá Sví-
þjóð, einn frá Danmörku og tveir
aðStalfultrúar frá íslandi, vara-
stjórn hins íslenzka kvenfélaga-
sambands. Verkefni fundarins var
að ræða húsmæðraþing Norður-
landa, sem haldið verður í Helsing
fors að ári. Aðálmál þess þings
verður Fjölskyldan í dag, — þjóð
félag morjgundagsins.
Frú Anita Olin sagði við blaða
menn í gær, að konurnar litu svo
á að fjölskyldan væri mikilvæg i
þjóðfélaginu og á.því riði að halda
henni saman. Hinu mætti ekki
gleyma, að framtíðin mundi hafa
í för með sér miklar breytingar
á högum manna. Þáð væri ærið
verkefni að ræða, hvernig bregð-
ast skyldi við breyttum aðstæðum,
hvernig fjölskyldulífið gæti þró-
azt við þær. Hvað getum við kennt
börnum okkar fýrir framtíðina og
hvernig verður samstarf heimilis
og skóla, þegar tímar líða? Búizt
er við, að um 500 þátttakendur
mæti til þessa Helsingfors þings,
Ennfremur hefur verið ákveðið
að Húsmæðrasamband Norðurland
a gefi út sögu sambandsins, og
hefur verið ákveðið, að hún komi
út árið 1969, en þá' á sambandið
50 ára afmæli. Juliane Solbraa-
Bay, fyrrverandi ritstjóri hús-
mæðrablaðsins nörska, ætlar að
r.ita söguna, en fengizt tiefur fjár
styrkur til þessa úr norræna
menningarmálasjóðnum. Talið er,
Framhald á 11. síðu.
annast 102 eingöngu þjónustu við
farþega. — Ganghraði þess er á
skemmtisiglingu 18 sjóm. en há-
markshraði 21 Vá sjóm.
Skipið hélt héðan sem leið ligg
ur til Bergen, en þaðan innan-
skerja fil Oslo, en á þeirri leið
mun Andrés Björnsson, háskóla-
kennari flytja fyrirlestur um
iieimabyggðir íslenzku landnáms-
mannanna í útvarp, sem, starf-
rækt er um borð. Farið verður í
ferð um nágrenni Oslo. Þá er far
ið til Kaupmannahafnar og legið
við Löngulínu, farið yfir til Sví-
þjóðar, síðan um Kílarskurð til
Hollands, aðsetur haft í Amster-
dam og lagzt við bryggju langt
inni í borg, skammt frá aðaltorg-
inu. — Þaðan er svo haldið til
London og síðan heimleiðis. Far-
ið verður í ökuferðir um nágrenni
þeirra borga, sem heimsóttar
verða og í London njóta farþegar
m. a. leiðsagnar fararstjóranna í
Oxford Street, aðalverzlunargötu
borgarinnar.
Margt verður gert farþcgum til
skemmtunar um borð, landskunn-
ir skemmtikraftar eru meðal far-
arstjóra, svo sem Gunnar Eyjólfs-
son, sem er aðalfararstjóri, Bessi
Bjarnason, Emiiía Jónasdóttir,
Alli Rúts, Jón Gunnlaugsson, Karl
Einarsson. — Mun þetta fólk sjá
um skemmtisyrpu um borð. Þá
verður gefið út blað, ritstjórar,,
verða Þorbjörn Guðmundsson og
Tómas Karlsson. Útvarpsstöð verð
Framhald á 11. síðu,
Sovézkur
námsstyrkur : ■
SOVÉZK stjórnvöld bjóða fram
styrk handa íslendingi til háskóla
náms i Sovétríkjunum námsárið'
1967—68. Nemur styrkurinn 90;
rúblum á mánuði til styrkþega,
sem ekki hefur lokið háskólaprófi,
en 150 rúblum á mánuði, ef um
er að ræða framhaldsnám áð
loknu háskólaprófi. Auk þess mup
styrkþegi fá ókeypis húsnæði á
stúdentagarði.
Umsóknum um styrk þennan
skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Sjórnarráðsþúsinu við
Lækjartorg, fyrir 25. ágúst n. k.1
og fylgi staðfest afrit prófskír-
teina ásamt meðmælum. Umsókn-
areyðublöð fást í menntamálaráðu
neytinu.
Menntamálaráðuneytið,
8. ágúst 1967.
(slenzk sýningar
deild í Leipzig
HAUSTSÝNING Kaupstefnunnar
í Leipzig verður dagana 3, —10.
sept. n. k. — Eins og venjulega
er haustsýningin aðallega fyrir
neyzluvörur og verða sýningar-
deildir frá meira en 50 löndum í
öllunt heimsálfum.
Matvörur verða sýndar þarna
frá 40 þjóðlöndum, þar á meðal
sýnir Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna afurðir sínar í aðalsýningar-
byggingu fyrir matvörur. Að þessu
sinni sýna yfir 6000 framleiðend-
ur frá meira en 50 löndum. Sýn-
ingin nær yfir meira en 130 þýs.
fermetra svæði. Gert er ráð fyf-
ir að um 20.000 kaupsýslumenn
fná 75 löndum sæki sýnipguna .4
haust.
Þarna verða til sýnis matvörur
Framhald á 11. sfðu.
24. ágúst 1967. - ALÞÝÐU6LAÐIÐ §