Alþýðublaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 9
Nábúarnir Snilldar vel gerð ný, dönsk gamanmynd í sérflokki. John Price Ebbe Hode Sýnd kl 5, 7 og 9. Ný dönsk mynd, gerð eftir hinnl umdeiidu metsölubók Siv Holms „Jeg en kvinde". Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 9. BÍLAKAUP 15812 — 23900 Höfum kaupendur að flest- um tegrundnm og árgerðum af nýlegum bifreiðum. Vinsamlegast látið skrá blf- reiðina sem fyrst. BÍLAKAUP Skúlagötu 55 við Rauðará Símar 15812 - 23900. Ofnkranar, Tenglkranar, Slöngukranar, Blöndunartæki. BurstafeH bygglngavöruverzlun Eéttarhoitsvegi 3, Simi 3 88 40. VATNSSÍUR Ekki lengur húð innan i uppþvottavélunum. Ekkl lengur svart silfur. Ekki lengur óþægileg lykt og bragðefni í vatninu. — SÍA SF Lækjargötu 6b, sími 13305. Hnífjafnir Framhald af bls. 1. ingaskipið Haförninn lestar nú við Jan Mayen, sem er um miðja vegu á milli lands og síldarmið- anna. Samtals tilkynntu eftirtal- in 10 skip um afla, alls 2.780 lestirj Héðinn ÞH 320, Fífill GK 370, Kristján Valgeir NS 300, Magnús NK 260, Sæfaxi II 210, Sveinn Sveinbjörnsson NK 270, Loftur Baldvinsson EA 200, Sólrún ÍS 200, Jón Kjartansson SU 370 og Seley 280 lestir. Slíta ekki Framhald ai 1. síðu. stjórnarráðsstarfsmannanna voru neyddir til að skríða á fjórum fótum meðan Kínverjarnir tóku myndir af þeim. Loks fóru hermennirnir með Bretana í burtu. Árásin á sendiráðið hófst klukk an 22,30, þegar frestur sá, sem kínversk yfirvöld höfðu gefið Bret um til þess að láta lausa blaða- menn í Hongkong rann. út. Harold Wiison hélt fund með ráðherrum sínum í dag, en for. sætisráðherrann fór til London úr sumarleyfi sínu, þegar þessir at- burðir fréttust frá Peking. Síðar um daginn kom George Brown, utanríkisráðherra heim til Lond- on úr leyfi í Noregi. Brezki utanríkisráðh. sagði á fundi með fréttariturum í dag, að það væri ekki ætlun. Stóra- Bretlands að rjúfa stjórnmála- tengslin við Kína. Stjórnmálasér- fræðingar telja þó ekki útilokað að til þess komi, ■ að Bretar kalli heim alla stjórnarfulltrúa sína í Kína, án þess að stjómmálasam- bandið verði opinberlega rofið. Mao Framhald af bls. 1. vitnunum í orð Maos formanns, á meöan þeir voru að skjóta niður óvinina, að því er fréttastofan Nýja Kína sagði x dag. Fréttaritari Nýju Kína í Nann ing sagði fyrstur frá .því í smáat- riðum, hvemig þetta gekk fyrjr sig. Flugmennirnir voru kallaðir til starfa um hádegisbilið og stukku þá inn vélarnar. Fyrirliði flug- sveitarinnar gaf skipun með því að vitna í Mao: „Farið allir og sigrið óvininn, sem gerir árás“. Kínversku flugmennirnir, sem voru „vopnaðir hugsunum Maos“ voru ekki lengi að koma auga á bandarísku þotumar tvær. Yfir- maðurinn las þá hátt tilvitnun í orð Maos: „Heimsvaldasinnar og allir endurskoðunarsinnar eru bara pappírstígrisdýr". Fhigmenn irnir hvöttu hvern annan með orðum eins og „Lemjum þá sund ur og saman" og „Verjum menn- ingarbyltingu alþýðunnar og þjón um þjóðinni". Annar bandarísku flugmann- anna kastaði sér niður í fallhlíf, áður en flugvél hans hrapaði, — en hinn hrapaði með vél sinni. „Loftræninginn", sem komst lífs af var strax umkringdur af vopn uðum hermönnum og bændum, sem höfðu vopnazt skóflum. Dauð hræddur og titrandi eins og strá í vindi rétti hann upp hendurnar til merkis um uppgjöf, segir frétta ritari Nýju Kína, sem telur upp- gjöf flugmannsins gott dæmi um pappírstígrisdýrseðli bandarískra heimsveldissinna. Verkfal!i»~ Framhald af 3. síðu. að undanförnu og Hlíf krefst nú að teknar séu inn í kjarasamn- inga, hefur Vinnuveitendasam- band íslands alltaf neitað að gera að kjarasamningsatriði, þar sem um tímabundið fyrirbæri sé að ræða. Úr yfirborgunum hefur verulega dregið á þessu ári. Að öðru leyti sjáum vér ekki ástæðu til að orðlengja um þetta mál að sinni, hvorki um vörn Hlífar fyrir hina erlendu verk- taka né annað, en vér ítrekum fyrri greinargerð vora, sem stend ur óhögguð. Viiuiuveitendasamband íslands". Loftleiðir Frh. af 3. síQu. heiminum að stöðugt reyndist erf iðara að varðveita alþjóðlegan frið og öryggi. Ráðherrarnir voru samm'ála um að . halda beri áfram baráttunni á vettvangi Sameinuðu þjóðanna fyrir iþví að finna varanlega lausn á deilu ísraelsmanna og Ar aba. ísraelsmenn eigi að fara með her sinn burt frá þeim land- svæðum, sem þeir hertóku í júní stríðinu og tryggja verði sjálf- stæði og friðun allra ríkja á þess um glóð||m. Grundvallarskilyrði friðar og öryggis í Austurlöndum nær væri, að flóttamannavanda- málið yrði leyst, — en það væri enn erfiðara viðfangs eftir júní- stríðið. Ráðherrarnir ræddu tástandið í Evrópu í dag og þá bar Grikk- land fljótt á góma. Þegar það er frá talið voru ráðherrarnir á- nægðir með þróun mála í Evrópu að undanförnu, þar hefðu mál þróazt í þá átt, að spennan hefði minnkað og samvinna ríkja, sem hefðu mismunandi stjórnarkerfi hefði aukizt, þrátt fyrir alvarlega árekstra og spennu annars stað- ar í heiminum. Ráðherrarnir ræddu afvopnun- armálin og töldu, að nú væru góð ar likur lá að samningar mættu takast um bann gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna. Slíkt bann, sem hlyti almenna viðurkenningu, — væri stórt skref í átt til þess að draga úr spennunni í heiminum og treysta frið og öryggi. Ráð- herrarnir töldu einnig mjög nauð synlegt að sem fyrst yrði samið um bann við tilraunum með kjam orkuvopn neðanjarðar. Á fundinum var ástandið í suð urhluta Afríku einnig tekið til um ræðu með tilliti til þeirra vanda- mála, sem vegna þess koma til á Allsherjarþinginu í haust. í þessu sambandi var lögð áherzla á gildi þess að unnið væri að því, að á vettvangi Sameinuðu þjóðanna væri leitað þess konar lausna á vandamálunum, — sem unnt væri að afla nægilegs fylgis til þess áð þær næðu fram að ganga. Viðvíkjandi hugsanlega aðild Færeyja að Norræna ráðinu varð það að samkomulagi, að danska stjórnin skyldi kalla til fulltrúa- fundar um málið til þess að und- irbua frekari meðferð þess á fundi forsætisráðherranna og for- setanefnd Norræna ráðsins í októ ber. Næsti fundur utanríkisráðherra Norðurlanda verður haldinn í Osló dagana 25.-26. apríl n. k. Noregur, Svíþjóð, Danmörk og ísland koma til með að fylgja Grikklandsmálinu eftir í Evrópu- ráðinu, sagði John Lyng, utanrík- isráðherra Noregs í viðtali við norsku fréttastofuna NTB í gær, Utanríkisráðherra Noregs sagði ennfremur, að utanríkisráðherrar Norðurlandanna hefðu ákveðið að standa saman um allar hugsanleg ar aðgerðir vegna atburðanna í Kína og fyigjast nákvæmlega og i sameiningu með framvindu mála þar. MUNIÐ H. A. B. Keflavík Keflavík Börn óskast til að bera blaðið til áskrifenda í Keflavík. Talið við afgreiðsluna. — Sími 1122. Alþýðublaðið. Alþýðublaðið óskar að ráða 2 drengi ti! sendiferða nú þegar. Skilyrði að þeir hafi reiðhjól til umráða. Uppl. hjá afgreiðslu blaðsins að Hverfisgötu 8-10. Kranamaður Vanur kranamaður ósk'ast til að stjórna braut- arkrana. Straumsvík — Sími 52485. Rýmingarsala Nokkrar vörutegundir seldar með lækkuöu verði NVAVv WAV.v. Mmm, kaui Miklatorgi — Lækjartorgi 4. 24. ágúst 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.