Alþýðublaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 11
Fjölmennasta Frh. af 5. síðu. ur starfrækt, útvarpsstjóri And- rés Björnsson. Sérstök dagskrá er gefin út fyrir hvern dag pg 'hefst hún með morgunleikfiflni. Þarna er skurðstofa, tveir læknar, enn- fremur sundlaugar, gufuhað, hár-. greiðslustofur og leiktæki ýmis- leg, kvikmyndasalir, hljómsveitir, bókasafn, setustofur með spilum og tafli — og auk þess verzlanir með tollfrjiálsum varningi. Árekstur Framhald af 3. síðu. hann beygði til hægri og skullu bílarnir saman af miklu afli. Systkini voru í Skodanum og meiddust þau bæði, svo og farþegarnir í jeppanum, þrír karlmenn, þar af einn írskur. — Sjúkrabifreiðar fluttu hina slösuffiu á slysavarðstofuna, þar sem gert var að sárum þeirra, en þau höfðu flest hlot ið höfuðmeiðsl. Bílarnir eru báðir mikið skemmdir, einkum þó Skodinn og voru þeir dregn ir af kranabílum til Beykjavík- ur um hádegisbilið. (Ljósm.: Þórir Hersveinsson). H úsmæörasamb. B'rh. af 5. síðu. að um 270.000 konur séu i Hús- mæðrasambandi Norðurlanda, en þetta eru gömul samtök, og með- alaldur félagskvenna er nokkuð hár, sagði frú Ólin. Hún sagði, að unnið væri að því að fá ungar konur til að starfa í félögunum um öll Norðurlönd. Kaupstefnan Frh. af 5. síðu. frá 40 löndum, efnavörur, snyrti- vörur og lyfjavörur frá 20 lönd- um. Um Í30 lönd sýna vefnaðar- vörur. Húsgögn og húsgagnaspón sýna framleiðendur frá 15 lönd- um, svo nokkuð sé upp talið. Tólf sósíalistaríki taka þátt í sýningunni og verður sýning Sov étríkjanna sérlega fjölbreytt í sambandi við 50 ára Ibyltingaraf- mælið. Um 20 vestræn ríki hafa sýningardeildir á haustsýningu þessari og eru stærstu aðilarnir Frakkland og Austurríki. Eins og alltaf er þátttakan mest frá Þýzka alþýðuríkinu, sem sýnir í öll- um 30 vöruflokkum sýningarinn- ar. — íslenzkir kaupsýslumenn munu að venju leggja leið sína til Leipzig um mánaðamótin. í Leip- zig mun verða heilmikið um að vera í leikhús- og hljómlistarlífi borgarinnar, daglegar óperu- og ballettsýningar, nýjustu leikhús- verk verða sýnd og Gewandhaus. symfóníuhljómsveit borgarinnar mun leika og með henni margir af þekktustu einleikurum og ein- söngvurum heims. Flugfélagið Interflug hefur dag legar þotuferðir frá Kaupmanna- höfn beint til Leipzig og hraðlest. ir fara tvisvar ó dag. Kaupstefnan í Reykjavík veit- ir allar upplýsingar um sýninguna og gefur út skírteini, sem um leið gilda fyrir vegabréfsáritun. Sameinuöu þj. Frh. úr opnu. inga frá 20 vanþróuðum lönd- um, sem eiga að kynna sér hag- kvæmar aðferðir við útflutning bæði á hráefrittm og iðnaðarvör um. Svipað námskeið var haldið í Kaupmannahöfn haustið 1965, og voru umsóknir þá svo marg- ar, að ekki var hægt að sinna þeim öllum. Þess vegna sáu for- ráðamennimir sig tilneydda að efna til annars n'ámskeiðs með nálega sama sniði og það fyrra hafði verið. Upphaflega kom tillagan um fræðslustarfsemi af þessu tagi frá Ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna um utanríkisverzlun og þróun árið 1964, sem samdi all- margar ályktanir um ráðstafan- ir til að auka útflutning vanþró- uðu landanna. Námskeiðið er er kostað af sérstöku framlagi Dana til Þróunaráætlunar S.Þ. Stjórnandi námskeiðsins verð ur forstjóri útflutningsstofnunar innar dönsku, Lauge Stetting. Nánustu samstarfsmenn hans verða Julius Bruun verzlunar- fulltrúi í utanríkisráðuneytinu og Ole Wiberg frá verzlunarhá- skólanum í Kaupmannahöfn. Þátttakendur koma frá vanþró- uðum löndum í Afríku, Asíu og rómönsku Ameríku. í flestum bera embættismenn sem vinna tilvikum er um að ræða opin- við utanríkisviðskipti eða framá menn í einkafyrirtækjum. Námskeiðið felur í sér fyrir- lestra, umræður og hópstarf, þar sem bæði verða tekin fyrir almenn efnahagsleg þróunar- vandamál í sambandi við utan- ríkisverzlun og sérstakar ráðstaf anir til að örva viðskipti. Fyrir- lesararnir koma m.a. frá Hafn- arháskóla og verzlunarháskólan- um, dönskum ríkisstofnunum og fynrtækjum og frá alþjóðastofn unum. Þátttakendur munu ennfremur heimsækja ýmsa staði í Dan- mörku og bregða sér bæði til Lundúna og Stokkhólms áður en námskeiðinu lýkur 28. október. Apartheid- ráðstefnan Fimm fulltrúar frá Norður- löndum tóku iþátt i námskeiði um apartheid, aðskilnað kyn- þátta og nýlenduveldi í Afríku, sem Sameinuðu þjóðirnar efndu til í Kitwe í Zambíu 24. júlí til 4. ágúst. Fulltrúi Dana var Ni- els Matthiasen, formaður utan- ríkismálanefndar , þjóðþingsins fulltrúi Finna var Kristian Gest rin, varaformaður utanríkismála nefndar og Richard Miiller frá útanríkisráðuneytinu, fulltrúar Svía voru Kaj Björk þingmaður og Per Wastberg rithöfundur. Alls sátu fulltrúar 26 landa ráð. stefnuna auk alþjóðastofnana o. fl. Móðir okkar GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR, Öldugötu 17, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni laugardaginn 26. ágúst kl. 10,30 f. h. Athöfninni verður útvarpað. Auður Óskarsdóttir, Bent Scheving Thorsteinsson. SAMVINN UTRYGGINGAR UM TRABANT TRABANT-umboðið lagði nokkrar spurningar fyrir Samvinnuryggingar, um tjónareynslu þeirra af Trabant-bifreiðum. — Svör Samvinnutrygginga voru: 1. Reynslan hefur sýnt að öku- menn og farþegum er ekkert hættara í plastbílum með stál grind heldur en í öðrum bif- reiðum, • Stálgrindi'n virðist bera vel af sér áföll. 2. Varáhlutaþjónusta er góð og verði varahluta mjög í hóf stillt. 3. Pfastið virðist rétta sig eftir minnihátar áföll, þar sem aðr ir bdar hefðu þurft réttingar við. 4. Kaup andinn fær tiltölulega góðan bíl fyrir lágt verð. Trabarit dé Luxe fólkshíll kr. 97.860.00 og Trabant standard fólksbíll kr. 90.000.oo. Einkaumboð: Ingvar Helgason, Ttryggvagötu 8. Símar 19655 — 18510. Söluumboð: Bílasala Guðmundar, Bergþórugötu . Sími 20070. 24. ágúst 1967 - ALÞÝÐU8LAÐI0 H I

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.