Alþýðublaðið - 07.10.1967, Page 1
Laugardagur 7. október 1967 — 48. árg. 224. tbl. — Ver5 7 kr.
Forsætisráð-
herrafundur
hefst í dag
Fundnr forsaetisráðherra Norðurlanda og forseta Norður.
landaráðs hefst í Reykjavík síðdegis í dag og stendur yfir
í dag og á morgun. Forsætisráðherrar Noregs, Danmerkur
og Finnlands áttu að koma með þotu Flugfélags íslands
í gærkvöldi, en forsætisráðherra Svíþjóðar kemur eftir
hádegið í dag.
Fundur þessi er haldinn til undirbúnings þingi Norður-
landaráðs, sem kemur saman í Osló í febrúar í vetur. Á
fundinum verða rædd þau helztu mál, sem þar verða á
dagskrá, en einnig mun Loftleiðamálið koma til umræðu á
ráðherrafundinum, ef að líkum lætur.
Lögtak gert hjá
Haf narfjarðarbæ
rum við svon
■fe Efnishyggja er höfuðeinkenni íslenzks þjóðfélags.
•fe Framhjáhald er ekki mjög aigengt í Reykjavík, en virðist vera tíð-
ara hjá verzlunarfólki en öðrum.
Flestir Reykvikingar giftast til að eignast heimili.
•jý- Reykvíkingar vilja ekki búa of nærri ættingjum sínum.
■fa Reykvískir unglingar byrja að hafa líkamlegt samneyti 15—17
ára gamlir.
-fe Peningamál valda flestum óhamingjusömum hjónaböndum í
Reykjavík.
^ Yngri kynslóðin virðist ætla að beita börn sín strangara uppeldi
en eldri kynslóðin.
Talsverður greindarmunur er á flestum reykvískum hjónum.
Flestir Reykvíkingar, konur sem karlar, telja að konur hafi of
mikil réttindi í skilnaðarmálum.
30—40% reykvlskra eiginkvenna nota ekki getnaðarvarnir.
ýV Óhóflegur drykkjuskapur, geðveiki og endurtekið framhjáhald eru
taldar einu skilyrðislausu skilnaðarorsakirnar í Reykjavík.
Iþróttamenn deila
iarstjórnina
íþróttabandalag Hafnarfjarðar hélt aukaþing í fyrrakvöld til að fjalla um
byggingarmál íþróttahússins, en bæjarráð ákvað í júlímánuði síðastliðn-
um að fresta öllum framkvæmdum við verkið á þessu ári vegna fjárskorts.
Var bæjarstjóra og bæjarstjórn boðið á fundinn og mættu þar þrír bæjar-
fulltrúar auk bæjarstjóra, en á fundinum var samþykkt tillaga, þar sem
skorað var á bæjarstjórn að leggja fjárveitingu yfirstandandi árs til bygg-
ingarinnar á biðreikning, svo að tryggt yrði að það fé yrði handbært, þeg-
ar framkvæmdir eiga að hefjast á ný næsta vor.
Það kom fram í ræðu
bæjarstjórans, Kristins Ó.
Guðmundssonar á fund-
inum, að bæjarfógetinn í
Hafnarfirði hefði nýlega
látið gera lögtak í útsvör-
um til bæjarins og renna
þau ti! hans jafnóðum og
þau koira inn, en ekki í
bæjarsjóð. Er lögtak þetta
gert samkvæmt kröfu
Tryggingarstofnunar ríkis-
ins, en skuld hæjarins við
það fyrirtæki var fyrir
nokkrum vikum Itomin
hátt á annan milljónatug
og hafði aukizt um tíu
milljónir síðan núverandi
bæj arst jórnarmeirihluti
tók við völdum.
Lagðist bæjarstjórinn hart gegn
tillögunni um að setja framlagið
til íþróttahússins á biðlista og
Frh. á 14. síðu.
Þetta eru nokkrar af þeim nið-
urstöðum sem ungur félagsfræð-
ingur hefur komizt að með rann-
sóknum og birtir í grein í nýút-
komnu tímaríti, sem gefið er út
á énsku. Niðurstöðurnar eru þó
ekki endanlegar, því að úrvinnslu
efrisins er enn ekki að fullu lok
ið, en í greininni slær hann þessu
meðal annars fram sem tilgátum,
er styðjist við frumathuganir á
þeim gögnum, sem hann hefur afl-
að sér.
í tímaritinu 65°, sem nú er að
hefja göngu sína, birtist grein eft
ir Pétur Guðjónsson, sem stund-
ar nám i samfélagsvísindum við
Harvard háskóla í Bandaríkjunum.
Grein þessi fjallar um nokkur atr-
iði í sambýlisvenjum og heimilis-
háttum Reykvíkinga, en höfund-
»--------------------------------
ur rannsakaði þessi atriði á • síðasfc
liðnu sumri. Rannsóknin var fólg-
in í því að 150 manns voru val-
in sem úrtak og tillit í því sam-
bandi tekið til aldurs, kynferðis,
hjúskaparstöðu, búsetulengdar í
Reykjavík og menntunar. Af þess.
um fengust svör frá 132, og byggj-
ast niðurstöðumar á þessum svör
um. Svörin voru veitt bæði skrif-
lega og í viðtölum, og var við-
talaaðferðin meira notuð en hin.
Svarendur veittu nokkuð mis-
jöfn svör, og segir höfundur í
greininni að ógiftar konur á fimmfc
ugsaldri hefðu sýnt mesta tregðu
við að svara, en karlar á þrítugs-
aldri verið opinskáastir. Andstætt
því sem ætla mætti var spurning
um um kynferðislíf viðkomandi
svarað mun greiðlegar en spum-
ingum um peningamál, og telur
j höfundur að þetta kunni að standa
i í sambandi við það, að flestir ís-
: lendingar svíkja undan skatti, ef
; færi gefst.
Höfundur tekur það skýrt fram,
að enn sé of snemmt að meta þær
niðurstöður, sem rannsóknin Mafi
leitt í ljós. Vissar bendingar hafi
þó komið fram, en hann leggur á
það áherzlu að þær niðurstöður,
sem þarna birtast, séu aðeins til-
gátur, er kunni að breytast við
nánari úrvinnslu efnisins. Sú úr-
vinnsla fer fram í haust með að-
stoð rafeindaheila, og telur hann
að endanlegar niðurstöður athug-
unarinnar verði birtar á næsta
| ári. Þá kveðst höfundur gera sér
vonir um, að geta frarnkvæmt svip
aða athugun utan Reykjavíkur, og
þar verði niðurstöðurnar vonandi
um sumt aðrar.
Framhald á bls. 10