Alþýðublaðið - 08.10.1967, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 08.10.1967, Blaðsíða 16
ejítétA£A6í&G£ AÐ SKJÓTÁ Á TUNGLIÐ Það_bar helzt til jtíöinda', að' upp komu margir ný komu margir nýir hverir á Eeykja nesi. Fylgdu þeim miklir land skjálftar svo sumir ihugðu að eldgos væri í að- sigi. Urðu margir harla glaðir og hópuðust suður á Eeykjanes, því eldgos á íslandi þýðir land- vinninga núorðið, eins og þegar Surtsey stækkaði landhelgina. Héldu víst sumir að þarna væru að byrja eldsumbrot sem teygja niundu úr Reykjanesinu alla leið til Grænlands þannig að við fengjum ástæðu til að blása rj'k- ið af ritum Jóns Dúasonar og taka Grænland af Dönum í (þakklætisskyni fyrir að iþeir Ihafa ákveðið að skila okkur handritunum. Aðrir glöddust af allt annarri ástæðu. Það voru einkum kommar og þeirra nótar, því' að þeir trúðu að með þessu ætlaði Fjallkonan í eigin per- sónu að svæla Ameríkana burt af Keflavíkurvellinum. Enn aðr ir gerðust trúaðir upp á gamla inóðinn, lásu bænir og fonnæltu SKOPMYND VIKUNNAR skrattanúm, þar eð hverir og eldsumbrot minna á nærveru hans á íslandi (en bæði hann og jólasveinninn eru frá Islandi, segja útlendingar). Óttuðust þeir að hann sjálfur ætlaði að fara að gera hér nokkurn usla til viðbótar við aflabrest og gras leysi og annað hallæri sem alltaf verður rétt eftir alþingiskosn- ingar. Ýmislegt merkilegt gerðist úti í heimi. Þar á meðal hefur ut- anríkisráðherra Breta lýst því yfir að ef menn vilji halda lífi verði þeir að drekka spiritus. Væri gaman að heyra skoðanir góðtemplarareglunnar á þvi. Ekki er um það getið að hann hafi minnzt á flangs í kvenfólk á almannafæri, en ekkert bend ir til þess að hann sé á móti því. Þetta virðist vera frjálslynd ur ráðherra. Þjófnaður var framin í Kópa- vogi og hefur þjófurinn líklega verið heilsutæpur og ekki haft efni á að leita sér lækninga. Ég sé ekki betur en það sé þýðingarlaust að gefa góð ráð. Þeir sem þurfa þeirra mest með eru einmitt þeir sem engin ráð vilja þiggja. Valdi hann sér í því tilefni apó- tek til að stela úr. Megnið af því isem hann hafði lá brott með sér var pillur (þannig að hann hef- ur ekki verið í vandræðum með að gefa mönnum pillur eftir það), en eitthvað hefur hann ver ið í vafa um hvað að honum am- aði, því að hann stal bæði örv- andi pillum og róandi. Má vera að hann hafi fyrst ætlað að prófa örvandi pillurnar, en hvolfa svo þeim róandi í sig á eftir til að halda sér í skefj- um. Svipað dæmi en ekki þó hliðstætt var þegar íkrabbamein ið fór í berklana í sjúklingi nokkrum í frægri sögu og varð hann alheill. í þessari viku voru liðin tíu ár síðan geimöld hófst, en geim- öld er í því fólgin að dyngja eins miklu af járnarusli út í geiminn og hægt er. Hafa stór- veldin keppzt um að gera það og þykir enginn maður með mönnum sem ekki hefur a.m k. sent eitt skeyti út fyrir aðdrátt arsvið jarðarinnar. Nota stór- veldin þetta sem eins konar í- þróttakeppni og hefur líka orð- ið gagn af, því að annars væru þau vafalaust farin að skjóta hvert á annað. Er til stórra bóta fyrir friðinn í heiminum að sem flestir taki að skjóta á tunglið í staðinn fyrir aðra menn. Mætti þeir í Kína gjarnan reyna þetta líka, því að þeir eru nú sem óð- ast að skjóta hver á annan. Eins mætti benda Nígeríumönnum á þessa lausn á þeirra innanlands deilum. r\lillLJi|i|^r lU'n'Tíhl ^'iI' xzs nmzo ■\ ) i mn. 'Jil'M! f-’. ♦ V' / u, »y—-ú,| Kærri og færri trúa því að Johnson forseti vinni Vi etnam-friðin með sprengjuárásum. ingu niður þegar ég varað dást að’ vangasvipnum á forstjóranum. — Já, en getur ekki verið að þetta sé vara augabliks tilfinning. Forstjórinn verður að fyrirgdfa að mér varð á að fella aðra setn. DEILA: Tveir menn sem báSir vilja haía síðasta orðið. KURTEISI: Eitthvað sem enginn tekur eftir nema þegar það vantar. FRÆÐSLA: Þetta sem gerist þegar urmull fræðiatriða flyzt úr minnis- bók kennarans yfir í blýant nemandans og þaðan niður á spássíurnar á bókinni hans og fer þó í gegnum heila- búið á hvorugum. AÐALSMAÐUR: Venjulegur maður sem hefur þjón sem hefur fágaðri framkomu en aðalsmaðurinn. STJÓRNMÁLAVIZKA: Ákvörðun um að gera það sem ómögulegt er að komast hjá þegar það er komið í Ijás að það verður ekki umflúið. Stí spaki segir... Það er alkunna hvers vegna guð skapaði konuna seinast. Hann vildi hafa frið meðan hann væri að skapa karlmann inn. Þeir eru orðnir fáir sem veðja á minn hest,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.