Alþýðublaðið - 12.10.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 12.10.1967, Blaðsíða 3
 í DAG klukkan 17 stundvíslega heldur Sigurður Benediktsson listmunauppboð í Súlnasal Hótel Sögu. Á uppboðinu verða boðin upp 54 málverk og vatnslitamyndir eftir 22 mál- ara. Á meðal þessara mynda eru 22 myndir eftir Jóhannes S. Kjarval, einni þeirra lauk listamaðurinn aðfaranótt mið vikudags, heitir sú mynd Úr Gálgahrauni. Mynd þessi er ol- íumálverk, málað á léreft, 105x 155 cm að stærð. Ein mynd á uppboðinu er eftir Jón Stefánsson, er sú mynd mjög einkennandi fyrir f Jón, en hún nefnist Sólskin við ( Sundin. Tvær myndir eru eftir 4 Gunnlaug Blöndal. Heitir önn- f ur þeirra Venus með greiðu, jj og sést hún hér að ofan. (i Tvær af myndum Kjarvals # á uppboðinu í dag voru í (' eina tíð í eign Einars skálds J, Benediktssonar. Sigurður fékk þær fyrir stuttu síðan <1 úestan fná Kyrrahaísströnd J( Bandaríkjanna og telur hann (i mjög óvíst, hvort myndir þess i1 ar hafi nokkurp tíma komið * J til íslands áður. ,i ■> -4 4i Attlee jarðsettur London (ntb-reuter) Útför Attlees lávarðar fyrrum forsætisráðherra Bretlands var gerð í Lundúnum í írær. Útförín fór fram í gamalli kirkju skammt frá heimili Áttlees í miðhluta Lundúnaborgar og tók aðeins 20 mínútur. Viðstaddir voru um 150 manns, þar á meðal Wilson forsætisráðherra. Kista Attlees var síðan flutt til Iíkbrennslu í úthverfi borgarinnar, en aska hans verð'ur lögð til hvíldar í Westminster Abbey. Harðar deilur í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar A fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær kom fram, að aðeins hefðu safnazt 112 þúsund krónur til almenningshlutafélags til útgerða á skuttogara í bænum, en fjársöfnun í því skyni fór fram í vor að forgöngu bæjarstjórnar. Þá urðu á fundinum miklar umræður undir dagskrárliðnum Fjármál bæjarins, en þær umræður snerust þó einkum um önnur efni. Meðal annars var veitzt að Alþýðublaðinu og það sagt flytja róg um Hafnarfjarðarbæ, en ástæða þeirrar ásökunar var sú, að blaðið skýrði lýlega í frétt frá ummælum sem bæjarstjóri kaupstaðarins viðhafði ný- lega á fundi með íþróttamönnum. Þá veittust bæjarfulltrúar meirihlutans einnig harkalega að verkalýðshreyfingunni í Hafnarfirði og Hermanni Guð mundssyni formanni Hlífar persónulega, en hann á ekki sæti i bæjarstjórn inni og gat því eðlilega ekki varið sig. Fundur var haldinn í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar síðast lið- inn þriðjudag og urðu umræður þar allheitar á' köflum. Fyrst voru fundargerðir bæjarráðs á dagskrá. Undir þessum dagskrárlið kom fram m.a., árangur af störfum nefndar, sem bæjarstjórn kaus til þess að undirbúa stofnun almenn- ingshlutafélags um útgerð skuttog- ara. Kom í ljós að safnazt höfðu hlutarfjárloforð að upphæð 112 þúsund króna. Árni Gunnlaugsson (óh) forseti bæjarstjórnar hafði framsögu um mál þetta og þótti árangurinn af starfi nefndarinnar ekki góður. Kvað hann þrjár meg inástæður liggja til þessa, álmenn vantrú á útgerð á íslandi í dag, skortur á þegnskap hjá Hafnfirð- ingum og síðast en ekki sízt, hvern ig minnihluti bæjarstjórnar hefði hrætt almenning í þessu máli. í Þá veittist hann að Hermanni | Guðmundssyni, formanni Verka- í mannafélagsins Hlífar fyrir að ; Iiafa gert að skilyrði fyrir virkri samvinnu verkalýðsfélagsins í ; þessu máli, að rekstur bæjarút- gerðarinnar yrði tryggður. Sagði Árni þessa afstöðu Hermanns væg ; ast sagt undarlega og lýsa mikilli | þröngsýni. Bæjarfulltrúar Aiþýðuflokksins hörmuðu, að ekki hefði tekizt bet- ur til með söfnun hlutafjárins og átöldu harðlega, að bæjarfulltrú- ar skyldu leyfa sér að ráðast á menn á bæjarstjórnarfundi, sem hefðu þar enga möguleika að bera SAS og Fl ræða um Grænlandsflugið I gær stóð fundur fulltrúa Flug félags ísiands og fulltrúa SAS um hugsanlegt íslandsflug SAS á næst unni. Blaðmönnum var í gær boð ið til fundar með fulltrúum SAS í fundarhléi, sem varð síðari hluta dags í gær. Christian R. Hunderup aðalsölu stjóri SAS sagði á þessum fundi, að SAS hefði mikinn áhuga á að taka upp Íslandsílug með tilliti til áframhaldandi flugs tú Græn- lands. Þess skal getið að SAS hef ur lendingarieyfi á íslandi í sama lilutfalli og íslenzk flugfélög hafa á Norðurlöndum að Finnlandi und- anteknu, sem ekki er aðili að SAS samsteypunni. Hingað til hefur SAS ekki haldið uppi neinu reglu- legu flugi til íslands, en Ijóst er, að þeir geta hafið íslandsflug, livenær sem er, enda munu lend ingarleyfi hérlendis ekki verða ■ SAS neinn Þrándur í Götu. Hunderup sagði, að tækju SAS upp íslandsflug, mundu þeir nota DC 8 vélar, sem væru sambæri- legar við þotu Flugfélags íslands, sem notuð væri á flugleið- Kefla- vík-Kaupmannahöfn. Hann sagði, að það væri vilji stjórnar SAS, að kæmi til þessa hugsanlega ís- landsflugs SAS, yrði það gert í fullri samvinnu við Flugfélag ís- lands. Samvinna þessara tveggja flugfélaga hafi ætíð verið góð og svo yrði áfram, jafnvel þó að eng in niðurstaða fengist á þessum fundi. Hunderup, sem var aðallega í fyrirsvari þeirra SAS-manna, sagði að enn hafi stjórn SAS ekki tekið neinar fullnaþarákvarðanir um ís- landsflug, enda væri það erfitt á Bridgespilarar Tvímenningskeppni hefst n.k. laugardag 14. október kl. 2 e. h. (stundvísíega) í Ingólfskaffi, gengið inn frá Ingólfsstræti. Stjórnandi: Guómundur Kr. Sigurðsson. ÖLLUM HEIMIL ÞÁTTTAKA. Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur. þessu stigi málsins. Hins vegar hefðu SAS menn i hyggju að auka að töluverðum mun hótelkost á Grænlandi og hefði flug til íslands afgerandi áhrif á fólksflutninga Framhald á bls. 10 Lömb föst í ræsi í gær fundust tvö lömb, sem voru föst í vegaræsi uppi á Öxna dalsheiöi. Maður, sem var á ferð í bíl sínum um heiðina, vcitti at- hygli kindajarmi, en sá þó enga kindina. Fór maðurinn því að gæta betur að, sá hann þá, að glitti í lamshöfuð út úr vegarræs inu. Ræsið var hálffullt af vatni og aur, þar eð frárennslishalla vantaði. Fleiri bílar komu þarna að. Ein hver ferðalangur hafði skóflu meðferðis og var nú grafið frá Iambinu. Við gröfinn kom í Ijós, að annað lamb var einnig í ræs- inu. Bæðí lömbin voru enn lif- andi, en þau voru hörmuleg út- lits af langvarandi sulti, enda virtust þau hafa verið all leigi föst í ræsinu. hönd fyrir höfuð sér, eða skýra sinn málstað. Þá rifjuðu þeir upp hver voru viðbrögð núverandi bæj arstjórnarmeirihluta gagnvart bæj arútgerðinni, er hann tók við stjórn bæjarins, þ.e. uppsagnir verkafólks og tilraunir til þess að selja togarann Maí. Hefði það geng ið svo langf, að meira að segja bæjarstjórn hefði leyft sér að gera gagntilboð til hugsanlegra kaupenda að Maí, án þess að hafa til þess nokkur umboð frá bæjar stjórn. Hins vegar hefði meiri- hluti bæjarstjórnar heykzt á söl- unni vegna þess hve vel Maí hefði aflað á þessu tímabili. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks ins sögðu, að árangur þessarar hlutafjársöfnunar gæfi góða hug- mynd um, hvern hug bæjarbúar bæru til bæjarútgei’ðarinnar og sögðu það stærsta mál þessarar bæjarstjórnar. hvort rekstrinum yrði haldið álram. Þá tók og Stef- án Jónsson bæjarfulltrúi (s) und- ir orð Áma Gunnlaugssonar um Hermann Guðmundsson. Brynjólfur Þorbjarn'arson, bæj- arfulltrúi óháðra, sagði að umrædd hlutafjársöfnun gæfi ekki rétta mynd af hug bæjarbúa til bjæar- útgerðar og vitnaði í því sambandi til þess, sem haft hefði verið eftir Hermanni Guðmundssyni um þessi mál. Þriðji liðurinn á dagskrá bæjar stjórnar bar heitið „Fjárhagsmál Hafnarfjarðar”. Var hann kominn þar að beiðni bæjarstjóra og hafði hann framsögu um málið. Framhald á bls. 10. 12. október 1967 - ALÞYÐUBLAÐI9 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.