Alþýðublaðið - 12.10.1967, Blaðsíða 7
(
HVERNIG VERDUR BORG
FRAMTIÐARINNAR?
BYGGINGAMEISTARAR allra
alda, og sennilega allra landa,
hafa reynt að finna eftir hvaða
reglum borgir yrðu til og þró-
uðust. Hvernig lítur borg fram-
tíðarinnar út? — Vísindamenn
samtímans glíma við að finna
svar við þeirri spurningu.
Fyrir mörgum öldum reyndu
beztu hugsuðir mannkynsins að
gera sér grein fyrir því hvernig
borg myndi líta út í blámóðu
hins ókomna tíma. Árið 1516
var „Bókin gullna“ gefin út í
London. Höfundur hennar var
sir Thomas More. — Hugmynd
hans um borg framtíðarinnar
var á þessa leið: Eyja úti í reg-
inhafi. Á henni 54 borgir, allar
stórar og mikilfenglegar. Eyja
þessi var tilraun draumóra-
mannsins til þess að öðlast á-
nægjulegt næði, þar sem menn-
ingin forpokaðist samt sem áður
ekki.
Tomassa Campanella, hinn í-
talski draumsjónamaður saut-
jándu aldar lýsti annarri gerð
borgar í bók sinni „Sólarborg-
in“. Draumsjónaborg hans var
á lágri hæð er á voru sjö sam-
■miðja hringir húsaraða, hver
upp af öðrum. Fjórar götur með
gangstéttum lágu alla leið upp
á hæðina og tengdu húsahring-
ina saman í samstæða fieild. —
Campanella skýrði hvern húsa-
hring eftir reikistjörnum — að-
eins sjö reikistjörnur voru kunn
ar þá.
Allt eru þetta draumsýnir, hug
arfóstur. Hugmyndir samtíma-
manna okkar um borg framtíð-
arinnar eru nær veruleikanum.
Hinn kunni ameríski arkitekt,
Frank Lloyd 'Wright, komst að
þeirri niðurstöðu að eina ráðið
til þess að losna við að borgir
yxu í hóflausan óskapnað væri
að breyta þeim í þéttbýli rækt-
unareininga. Wright var þeirr-
ar skoðunar að í slíkum borg-
um ætti hver fjölskylda að hafa
eina ekru lands til umráða. Hvar
áttu svo íþróttavellir, vöru-
geymslur og verksmiðjur að
vera? Wright dreifði þeim inn
á milli ræktaða landsins. — í
þessum borgum yrðu engin sam
göngutæki . . . nema auðvitað
bíllinn!
Á þeim tíma var ekki vitað
um hve mjög útblástursgas bíl-
anna eitrar andrúmsloftið. Og
því hugði Wright að lausnin á
vandamálum borga væri dreif-
ing húsanna.
Hinn snjalli franski arkitekt,
Le Carbusier, hugði aftur á
móti að borgir framtíðarinnar
myndu verða tröllslegir klasar
skýjakljúfa. í slíkri borg myndi
íbúunum verða þjappað saman
í miðbænum, en út frá honum
kæmu hringir (munið eftir Cam
panella) verzlana og fáein land-
setur. Á milli þessara hringa af
húsum yrðu skógar og akrar.
Eins og sést af þessu lagði Car-
bu'sier óherzlu á að dreifa byggð
inni eins og unnt væri.
Margar skipulagstillögur hafa
séð dagsins ljós, en engin þeirra
héfur leyst meginvanda nútíma-
borgar. í fyrsta lagi hefur onað-
urinn verið einangraður frá nátt
úrunni, og óhjákvæmilegt er að
það komi fram á heilbrigði hans.
Tllraunir til að gera borgir
grænar hafa ekki borið mikinn
árangur: tré vaxa ekki eins vel
í lofti iðnaðarborgar og í skóg-
um.
í öðru lagi: hversu líkar eru
pkki allar nútímaborgir! — Við
höfum ekki ráð á því að hafna
hagkvæmni þeirri að nota staðl-
aða byggingarhætti. En því mið
ur verður þá afleiðingin sú, að
borgir verða eins líkar hver ann
arri eins og baunir í skál eða
tvíburar.
— ALÞÝÐIJBLAÐIÐ hefur að
undanförnu birt nokkrar grein
ar um nýjungar sem álitið er
að marki tímamót í framtíð-
inni. Eitt er það sem menn
eru sífellt að hugsa um: Hvern
ig verður borg framtíðarinn-
ar? Tii þess að bæta við það
sem sagt hefur verið um það
efni annað slagið í sumar er
hér birt grein úr ' rússnesku
blaði um hugmyndir þeirra Þar
eystra. Er þess að vænta að
hún þyki fróðleg viðbót.
En erfiðasta vandamálið er þó
samgöngurnar. — Samkvæmt
skýrslum hagfræðinga eyðir í-
búi stórborgar tólfta hluta ævi
sinnar í almenningsfarartækj-
um. Og það sem meira er, —
því stærri sem borgin er, því
meira vandamál er þetta atriði.
Vísindamenn heimsins hafa
komið með ýmsar tillögur um
borgir framtíðarinnar. Sovézki
arkitektinn B. Landa hefur kom-
ið með athyglisverða og nýstár-
lega hugmynd um framtíðarborg
kommúnismans.
Nútíma borg er margbrotið
kerfi samsett úr þúsundum ein-
inga. Við skipulagningu slíks
,,kerfis“ verða byggingameistar-
ar að grundvalla á einföldustu
byrjuninni — „frumu“ þessa
hrikalega vaxtar. Hver er nú
slík frumueining? Bygging, hús.
Á því grundvallast starf skipu-
lagsmanna, cg það hefur leitt
af sér fyrrnefnt vandamál.
Landa ásetti sér áð finna aðra
frumeiningu borgar. Hann taldi
slíka frumeiningu vera sam-
stæðu er hefði að geyma allt
sem maður þarfnast. Með því að
byggja nýja borg úr slíkum sam
stæðum losnar arkitektinn við
hin fornu vandamál.
Hugsum okkur dal og eftir
honum bugðast á. Á öðrum bakk
anum skógur svo langt sem aug-
að eygir, en á hinum bakkanum
borg. Óvenjuleg borg: ein bygg-
ing. En þvílík bygging: Skýja-
kljúfur! Risi! Hún teygir sig
nokkra km og fylgir bugðum ár-
innar. Slík bygging myndi renna
saman við landslagið og mynda
\ samræmda heild úr sköpunar-
verkum náttúrunnar og manns-
ins.
Arkitektinn leysir vandann
þannig: öll húsin yrðu byggð eft-
ir hugsaðri línu, hvert ofan á
öðru og mynduðu þannig gífur-
legan garð. Vitanlega dettur
engum í hug að hlaða húsum
hverju ofan á annað, hugmynd-
in er að mynda úr þeim sam-
fellda heild. — Hvað hyggst arki'
tektinn vinna með þessu?
í slíkri borg yrðu engar göt-
ur. Réttara væri að segja að-
eins ein — eftir endilangri bygg
ingunni. Af þeim sökum væri
alveg komizt hjá þéttu neti mal-
bikaðra gatna, en án slíkra
gatna getum við ekki hagsað
okkur borg. betta yrði stórfeng-
legur sparnaður!
Annað, í þessari nýju borg
yrðu engir garðar og engu þyrfti
að eyða til ræktunar og viðhalds
þeirra.
Og nú nnint þú vafalaust
spyrja: Hvað um atvinnu- og
iðnaðárfyrirtæki í slíkri borg?
Þau mynduðu sams konar garð,
jafnhliða fyrrnefndri byggingu.
Og á milli þeirra yrði svo kom-
ið fyrir „tilheyrandi“ bbygging-
um, sem engin nútímaborg get-
ur verið án, vilji hún bera nafn
með rentu: visinda- og uppeldis-
stofnanir, leikhús, kvikmynda-
hús, íþróttastöðvar. Þeim mætti
koma fyrir að vild því nóg væri
landrýmið.
Og hvað væri um vandamál
nútímaborgar? Vandam'ál ein-
hæfninnar, þar sem byggingar
eru eins líkar og tvíburar. Hver
ný borg yrði frábrugðin eldri
borgum, því íbúðabygginguna
(og iðnaðarbygginguna líka) má
hvort sem vill byggja lárétt á-
fram eða lóðrétt upp, þær gætu
myndað hring eða hálfmána. í
slíkri borg gætu íbúarnir. verið
á tveimur hæðum, og neðri hæð-
in verið hjalli eða flöt fyrir efri
hæðina, og mætti koma þar fyr-
ir blómum eða leikvöllum.
Samgönguvandamálið. Engir
bílar yrðu í hinni nýju borgar-
gerð. Eina samgöngutækið yrði
lyfta. Ekki gerðin sem allir hafa
vanizt, slík lyfta myndi fremur
líkjast neðanjarðarbraut með á-
kveðinni stjórn. í anddyri íbúð-
ar þinnar gætir þú stutt á hnapp,
og eftir fáein augnablik væri lyft
an komin að dyrum þínum. Um
leið og þú stigir inn í hana mynd
ir þú velja númer íbúðar vinar
þíns, vinnustaðar eða vörubúð-
ar.
Arkitektinn telur það myndi
vera heppilegast að sííkar lyftur,
er gengju ýmist í lóðrétta eða
lárétta stefnu, tækju tvo eða
þrjá menn. Lóðrétt gætu lyftur
þessar farið með 15 km hraða
Framhiad é 15. síðu.
Flugfreyjur
f*:
Loftleiðir hf. œlla frá og me% desemher n. h.
aö ráfia allmargar nýjar flugfreyjur til starfa.
í sambandi vi& vœntanlegar umsóknir skal
eftirfarandi tekiö fram;
Umso'kjendui' séu ekki yngri en z() ára eiVa \erAi
20 ára fvrir 1. jnnúur n. k. kimsækjendur liafi
góða alniemia menntun, gott vakl á ensku og ein-
hverju Norðurlandanrálanna —- og lielzt að auki a
þýzku oji/ccNa fröusku*
Uinsu’k jendur séu 162—172 em á hæð og svari lik-
ainsþyngd til liæðar.
Umsa-kjendur séu reiðuhúnir að sækja kvöldnám-
skeið í nóvemher n. k. (.3—4 vikur) og ganga undir
híefnispróf að jn í loknu.
Á umsóknareyðulilöðum sé þess greinilega getið,
livort viðkomandi sæki unt starfið til lengri eða
skemmri tíma,
Umsóknareyðuhlöð fást í skrifstofum félagsins Vest-
urgötu 2 og Reykjavíkurflugvelli, svo og hjá um-
boðsmönnum félagsins úl tun land og skulu uin-
sóknir liafa horizt ráðningardeild félagsins, Reykja-
víkurflugvelli fyrir 23. oklóbcr n. k.
12. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7