Alþýðublaðið - 12.10.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 12.10.1967, Blaðsíða 11
( Tékkar og Danir leika hér í vetur A. Þýzkaland - Danmörk 3:2 Evrópubikarleikir í gær Austur-ÞjóSverjar stöðvuðu sig urgöngu Dana í knattspyrnu, þeir sigruðu í landsleiknum í Leipzig i gærkvöldi með 3 mörkrnn gegn 2. í leikhléi var staðan 2:1 fyrir Reynsluleikar í Mexíkó á sunnud Á sunnudaginn hefjast svo- kallaðir „Reynslu" - Olympíu- leikar í Mexíkó, þ.e.a.s. frjáls- íþróttakeppni þessara leikja. Keppnisgreinar fyrsta daginn eru m. a. 10 km. hlaup. Alls mun frjálsíþróttakeppnin vera í fimm daga. í athugun var að Þorsteinn Þorsteinsson tæki þátt í Reynsluleikjunum, en fékk ekki frí frá skóla þeim sem hann stundar nám í Banda ríkjunum og þess vegna gat ekkert orðið úr hans þátttöku. Myndin hér til hliðar er af A1 Oerter, Bandaríkjunum, en hann sigraði í kringlukasti á Olympiuleikjunum i Melbour- ne 1956, í Róm 1960 og Tokyo 1964. Slíkt er algert einsdæmi. Dani, en A.-Þjóðverjar voru mun betri í síðari hálfleik og sigruðu verðskuldað. Mörk Dana gerðu Erik Dyreborg og Tom Sönde- gaard. Beztu menn í liði Dan- merkur voru markvörðurinn Leif Nielsen, bakvörðurinn Erik Bjerre og Tom Söndegaard. Þetta var 75. landsleikur A.-Þjóð verja í knattspyrnu, þeir hafa tapað 31 leik, sigrað í 29, en 15 hefur lokið með jafntefli. Eftir þennan leik eru A.-Þjóð- verjar komnir í annað sæti í 5. riðli Evrópumótsins, hafa 5 stig í 5 leikjum, en Ungverjar sigruðu í riðlinum, hlutu 9 stig. Hollend- ingar eru þriðju með 5 stig og Danir fjórðu með 3 stig. Áhorfend ur voru 30 þúsund í Leipzig í gærkvöldi. í gærkvöldi fóru fram nokkrir leikir í Evrópubikarkeppninni. Framhald á bls. 15. Örslit í litlu Bikarkeppninni fást á sunnudaginn kemur 3 lið eftir í Bikarkeppni 2. flokks Þegar litlu Bikarkeppninni í knattspyrnu lauk í vor, voru Kefl- víkingar og Akurnesingar jafnir að stigum með 8 stig hvort lið. Auk þeirra taka Kópavogsmenn og Hafnfirðingar þátt í keppninni. í ágúst s.l. fór fram aukaleikur milli áðurnefnda aðila í Kefla- vík og þeim leik lauk með jafn- tefli 3 mörkum gegn 3. Á sunnudag leika Keflvíkingar og Akurnesingar á Akranesi ann- an aukaleik, sem hefst kl. 3. Verði jafntefli verður framlengt. í 2. aldursflokki fer fram bik arkeppni á vegum KSÍ. Sex lið taka þátt í þessari keppni, Haukar og FH úr Hafnarfirði, Breiðablik, Kópavogi, Keflavík, Selfoss og Akranes. Akurnesingar sigruðu FH, en ekki gekk eins vel að fá úr'slit í leikjum Selfyssinga, sem sigruðu í þessum flokki á íslands Framhald á bls. 15. Mörg verkefni hand- knattleiksfólks i vefur Eins og skýrt var frá í blaðinu á þriðjudag var kjörinn nýr for- xnaður Handknattleikssambands íslands, Axel Einarsson, þar sem Ásbjörn Sigurjónsson baðst und- an endurkjöri. Mikið verður að gera á næsta keppnistímabili handknattleiks- fólks, við höfum rætt um það áð- ur í blaðinu, en dagsetningar ým- issa stórviðburða hafa nú verið ákveðnar. Tvö landslið koma hingað í heimsókn og þau eru ekki af lak- ari endanum heimsmeistar, Tékk óslóvakía og silfurliðið, Dan- mörk. Tékkar leika hér tvo leiki dagana 1. - 7. desember. Danska landsliðið leikur hér 6. og 7. apríl næstkomandi. íslenzka landsliðið fer tvívegis utan, fyrst í febrúarlok og leikur við Rúmeníu dagana 28. og 29. febrúar og við Vestur-Þjóðverja 1. og 3. marz. Þá fer liðið til Spánar, en dagsetning er ekki á- kveðin. Kvenna landsliðið tekur þátt í Norðurlandamóti 17. og 19. nóv- ember og unglingamóti í Dan- mörku sömu daga. Mikið hefur verið rætt um Norðurlandamót karla á þingum undanfarið, og miklar líkur eru til þess, að úr framkvæmd verði. Yrði fyrirkomulag þá þannig, að keþpnin næði yfir fjögurra ára tímabil, eins og er milli Norður- landanna fjögurra, leikið heima og heiman. Mál þetta mun vera á lokastigi. Stjórn H. S. í. hefur skipt þannig með sér verkum. Axel Einarsson, formaður Rúnar Bjarnason, varaformaður Valgeir Ársælsson, gjaldkeri Axel Sigurðsson, bréfritari og blaðafulltrúi Einar Th. Mathiesen, fundarritari Jón Ásgeirsson, meðstjórnandi Sveinn Ragnarsson, meðstjórn- andi Stjórnin hefur skipað eftirtaldar nefndir: Landsliðsnefnd kvenna: Þórarinn Eyþórsson Jón Ásgeirsson Axel Sigurðsson Sigurður Bjarnason Birgir Björnsson Landsliðínefnd stúlkna: Þórarinn Eyþórsson Viðar Símonarson Landsliðsnefnd karla: Hannes Þ. Sigurðsson Jón Kristjánsson Hjörleifur Þórðarson Þjálfari: Birgir Björnsson Landliðsnefnd pilta Jón Kristjánsson Hjörleifur Þórðarson Karl Jóhannesson Dómaranefnd: Hannes Þ. Sigurðsson Karl Jóhannsson Valur Benediktsson Að loknum landsleik í handknattleik sl. vetur. Til vinstri er Gunn laugur Hjálmarsson, fyrirliði landsliðsins. Vonandi verður hann jafn ánægður á svipinn eftir landsleikina í vetur. 12. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ \\

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.