Alþýðublaðið - 12.10.1967, Blaðsíða 8
Verða Bítlarnir
trúarpostular
i.
Maharishi Mahesh Yogi sem
haft hefur djúptæk áhrif á Bítl
ana með hinni ,,yfirskilvitlegu
hugleiðingu" er hann kennir
þeim. Nú eru þeir á förum til
Indlands til að halda áfram
hugleiðingariðkunum sínum
undir handleiðslu han^, en eft-
ir það hyggjast þeir stofna hug
leiðingarskóla í London fyrir
alla þá sem „þrá að finna innri
ró og heiðríkju andans“.
2.
Þetta er ein af síðustu mynd-
unum sem teknar voru af Brian
Epstein,. hinum dugmikla um-
boðsmanni Bítlánna sem ,,upp-
götvaði“ þá árið 1961 og ruddi
þeim braut til sigurs og frægð-
ar.
3.
Bítlarnir og eiginkonur þeirra
með hinum nýja fræðara sín-
um, Maharishi Mahesh, sjötíu
og tveggja ára gömlum yoga
frá Indlandi.
en eru nú orðnir auðkýfingar og
þekktir um allan heim? Þeir
hafa orðið táknmynd ungu kyn-
slóðarinnar sem leitar að innri
verðmætum og er í andstöðu við
heim eldra fólksins. Þeir leit-
uðu í listinni, og þeir leituðu í
hughvarfalyfjum eins og mari-
juana og LSD. Þeir sömdu sig
í ýmsu að siðum hippíanna, —
„börnum blómanna“. — Og nú
hafa þeir leitað á náðir ind-
versks yogafræðara og telja sig
hafa fundið svarið við öllum
sínum spurningum í hugleið-
ingariðkun.
Þegar þeir fréttu um dauða
Brians voru þeir þegar teknir
að æfa hugleiðingar undir hand-
leiðslu Maharislii Mahesh Yogi
eins og sá ágæti maður kallar
sig. Hann er sjötíu og tveggja
ára gamall Indverji sem á sér
marga áhangendur bæði í Ind-
lðndi og ýmsum Evrópulöndum.
(Meðal annars kom hann til ís-
lands fyrir nokllrum árum og
hélt þá fyrirlestur í Stjörnubíói
um ,,'yfirskilvitlega hugleiðingu“
eða „transcendental meditation“
sem hann fæst við að kenna).
Hann hefur ferðazt nokkuð um
,,FIMMTI Bítillinn er dáinn“,
sagði Paul McCartney, — einn
hinna fjögurra sem eftir lifa.
Brian Eþstein spilaði að vísu
hvorki né söng með þeim, en
ihann var umboðsmaður Bítl-
anna og bezti vinur þeirra, mað
urinn sem „uppgötvaði“ þá og
gerði þá fræga og ríka.
Enginn veit nákvæmlega hvern
ig dáuða Brians Epstein bar að
höndum, hvort það var sjálfs-
morð, slys, of margar svefnpill-
ur, hjartaslag eða ofþreyta. —
Hann var aðeins þrjátíu og
tveggja ára, margfaldur millj-
ónamæringur og orðinn stór-
veldi í dægurlagaheiminum síð-
an hann gerðist umboðsmaður
Bítlanna, Cillu Black og margra
íleiri poppstjarna. Sjálfur hafði
hann meiri áhuga á klassískri
imúsík og hlustaði fremur á
Bach en Bítlana. Hann langaði
tií að verða listamaður, gekk í
leiklistarskóla, en gerði sér ljóst
að hann hafði ekki nóga hæfi-
leika 6 því sviði. Hæfileikar
hans sem umboðsmanns voru
hins vegar óumdeilanlegir. Hai i
virtist vera skarpskyggnari en
aðrir á gott „hráefni", og hann
hafði næma tilfinningu fyrir ósk
um ungu kynslóðarinnar. Þegar
hann sá og heyrði Bítlana í
fyrsta sinn vissi hann undir eins,
að hér var komið eitthvað nýtt
og ferskt í samræmi við ólgu
nútímans og leit unga fólksins
að öðrum tjáningarformum en
áður höfðu tíðkazt.
i
En árið 1961 trúði enginn á
Bítlana nema Brian Epstein. —
Byltingin var enn fram undan,
og forstjórar stærstu plötufyrir-
tækjanna ýmist hlógu eða hristu
höfuðið, þegar Brian spilaði fyr-
ir þá segulbandsupptökur af
þessari skrítnu músík, sem hann
fullyrti, að ætti eftir að „breyta
heiminum“. Hann gafst þó ekki
upp, svo sannfærður var hann
um endanlegan sigur skjólstæð-
inga sinna.
Þeir gerðu með sér samning.
Brian átti að fá 25% af tekjum
þeirra. En það voru engar tekj-
ur til að byrja með. Hann eyddi
aleigu sinni og setti sig í stórar
skuldir fyrir þá áður en milljón-
irnar tóku að streyma inn. Og
Bítlarnir sáu aldrei eftir þeim
fjórðungi sem til Brians rann.
Þeir vissu mætavel, að án hans
hefðu þeir * aldrei rakað saman
öllum þessum auðæfum og haft
bein og óbein áhrif á líf unga
fólksins um allan heim. —
„Skemmtanaiðnaðurinn verður
aldrei samur og áður eftir komu
þelrra“, skrifaði Brian í bók
sinni um Bítlana, ,,A Cellar Full
of Noise“. „Heimurinn verður
aldrei samur og áður“.
Hann var nokkrum árum eldri
en þeir, betur menntaður og af
hærri stétt í þjóðfélaginu. Hann
skipaði þeim að snyrta sig betur,
greiða sér almennilega og ganga
vel til fara. Hann stílfærði útlit
þeirra og klæðaburð, fágaði þá
án þess að þeir misstu sérkenni
sín. Hann var óþreytandi ráð-
gjafi þeirra, verndari pg inni-
legur vinur.
Og nú er Brian Epstein dá-
inn, en CÍive, bróðir hans, lek-
inn við sem umboðsmaður Bítl-
anna. Bítlarnir eru orðnir ann-
að og meira en fjórir hæfileika-
ríkir strákar, þeir eru stórfyrir-
tæki og ein af helztu gjaldeyris-
tekjulindum Bretlands. Fyrir-
tækinu þarf að stjórna, og Bítl-
arnir hafa tröllatrú á Epstein-
fjölskyldunni og fengu Clive um
svifalaust í hendur fjármála-
stjórnina eftir að Brian var ekki
lengur „fimmti Bítillinn“.
En hvað um sálarlíf þessara'
ungu pilta, -sem voru- fátækir og
óþekktir fyrir nokkrum árumj
g 12. október 1967 —ALÞYÐUBLAÐIÐ