Alþýðublaðið - 12.10.1967, Qupperneq 16
MÖNNUM léttir nú þegar al-
þingi er komið saman. Það er
eitthvað svo notalegt að vita af
spekingunum, sem þjóðin hefur
af ábyrgðartilfinningu valið
sjálfri sér til forsjár, saman
komnum í hinum gamla og virðu
lega liúsi sem ný og merkileg
hurð liefur verið sett fyrir. Þeir
eiga eftir að sitja þar í vetur
>með sveitta skallana og upp-
hugsa ibjargráð út úr öllum
vanda af slíkri atorku að maður
getur heyrt braka í gráu heila
sellinum alla leið niður í Austur
stræti þrátt fyrir bílaumferðina.
Og engum dettur annað í hug
en slík atorka beri árangur.
Það er sannarlega mikil gifta
að við skulum eiga þessa 60 vitru
menn sem þar að auki geta komið
saman í húsi með svo merkilega
hurð. Ef hurðin væri ekki svona
merkileg væri minni ástæða til
að húast við góðum niðurstöðum.
Hurðir eru líklega það sem
skiptir máli í tilverunni. Til hvers
er hús sem hefur enga hurð?
Hvernig væri t.d. himnaríki ef
(þar væri engin hurð? Þá yrði
Lykla-Pétur atvinnulaus og hver
og einn gæti gengið þarna út og
inn rétt eins og í hverja aðra krá
eða krambúð. Ef ekki væri hurð
fyrir himnaríki minnti það á allt
aðra vistarveru. Og auðvitað verð
ur þinghús fremur að minna á
Ihið efra heldur en hið neðra, eig
inlega á það að vera einhvers
konar vasaútgáfa af því.
Um þetta er sú saga úr Vest-
mannaeyjum að kaupmaður einn
vildi ekki fá sér nýja hurð fyrir
búð sína þó að hún væri litlu betri
en hesthúshurð. Færði hann fram
það sínu máli til stuðnings að
hann liefði tekið eftir því að ef
skipt var um hurð hjá fyrii'tækj-
um þá færi það á hausinn fljót-
iega. Nefndi hann mörg dæmi þar
um. Væri betur að þetta sannaðist
ekki á alþingi.
Og auðvitað getur þetta, ef vel
er að gáð, ekki sannazt á alþingi
og þjóðinni. Eftir því sem okkur
er sagt höfum við verið á hausn
um alveg sleitulaust síðan þetta
orðatiltæki var fyrst búið til, ann
ar helmingurinn af þingmönnum
tekur að sér að segja okkur frá
þeirri staðreynd, en hinn tekur
að sér að íbjarga okkur. Þannig.
skipta spekingarnir með sér verk
um.
Þinghúshurð er fyrst og fremst
symból, eins og fortjald fyrir hinu
allra helgasta hjá Gyðingum. Og
f.vrir bragðið gerir ekkert til þótt
hún leki. Symból hvorki leka né
ekki leka. Þau bara minna heimsk
jarðarbörn á æðri veruleika. í
þessu tilfelli er það spurningin
um ,,að vera eða vera ekki“ þing
inaður, þetta hvoru megin við
iiiina merkilegu hurð þú átt að
vera, livort !þú ert innanhurðar-
maður eða utanhurðarmaður. Að
minnsta kosti skiptir engu máli
þó að hún leki inn. Hitt væri nátt
úrlega verra ef hún læki út, en
um það hefur engin kvartað.
En það er eitt með hurðir sem
hetra er að gjalda Vctrhug við.
Sumir hafa mikla ótrú á að skipta
um hurðir, segja að gifta hússins
fari eftir hurðinni. Gott hús eigi
aö liafa sína gömlu hurð, annars
geti verið að það hætti að vera
gott liús.
—• Hérna eru nefdroparnir þínir, elskan.
S1,GLFIRÐIN GAR ÁFRÝJ-
UÐU OG FALLBARÁTTAN
t 2. DEILD ENN Á RAUÐU
LJÓSI.
Tíminn.
Skyldi það hafa verið til að
minna þingmenn á nýju hurð
ina fyrir alþingishúsinu,, að
presturinn sem messaði við
þingsetninguna lagði út af
dyrum, sem standa opnar?
Kallinn er orðinn svo sköll-
óttur, að maður getur næst-
um því séð hann hugsa.
Það er ekki vert að spá neitt
um framtíðina. Við vitum
ekki einu sinni, hvort það
verður nokkur framtíð.