Alþýðublaðið - 13.10.1967, Qupperneq 2
B fl Höskur af sykurlausu
B Valash innihalcla jafn»
91 1 margar hitaeiningar og
1 venjuleg gosflaska!
mmmmmi
iiiiiiiAiiIiUi
iiiiiiiiiiiiliiii
TREYSTU MÉR
■ ■ ERETE leit á átta ára
gamian son sinn, Peler, sem sat
og horfði út um klefagluggann.
— Heldurðu, að okkur líði ekki
vel í sumarleyfinu? spurði hún. -
Hann kinkaði kolli án þess að
svara og hún andvarpaði lágt.
Ef til vill yrði þetta gott sumar-
leyfi, ef til vill ekki.
— Við förum bráðum út,
sagði hún. — Sjáðu, þarna er
vatnið!
Hann kinkaði aftur kolli og
hún sagði ekki fleira. Það var
eiginlega ekkert meira að segja,
þegar hann lét svona. Hún leit
úf á hafið, sem líktist glitrandi
silfri í fjarlægð. Það yrði gott
að sleppa út úr heitri lestinni og
finna ferskt loftið leika um and-
lit sitt. Peter hefði líka gott af
sjávarloftinu, ef til vill næði hún
takmarki sínu þar — ef til vill
yrðu þau aftur vinir og hann
yrði sá sami og hann hafði ver-
ið áður en hún tók þá ákvörðun
að binda endi á hjónaband sitt.
Skyndilega fannst henni, að
hún yrði að gera enn eina tilraun
til að komast að honum.
— Peter, sagði hún með hug-
rekki þess, sem örvæntir.
— Peter, heldurðu ,að þú get-
ir ekki skoðað þetta skynsam-
lega? Veiztu, að við höfum aldrei
komizt í sumarleyfi fyrr, það
gátum við ekki meðan pabbi bjó
hjá okkur. Hann var svo eyðslu
samur.
Hann snéri sér frá gluggan-
um og hún skelfdist augnaráð
hans.
— Mér er sama um sumar-
leyfið, sagði hann. — Ég vil
lieldur hafa pabba.
Merete beit á vörina. — Þú
veizt, að við gátum það ekki
Pabbi málaði og má'laði og seldi
aldrei neitt, sagði hún. Og þess
ir vinir hans eyddu peningun
um okkar. Við verðum að lifa
Peter.
— Pabbi var listamaður, sagði
drengurinn. Það var greinilegt
að honum fannst þetta nægi-
leg útskýring á lífi þeirra.
— Jafnvel listamaður verður
að hugsa um fjölskyldu sína,
hélt hún áfram. Það er enginn,
sem getur lifað frá degi til
dags.
Ásakandi augu drengsins urðu
reiðileg, en hann sagði ekkl
meira eins og hann hefði skilið,
hve vonlaust það var að ræða
þetta við hana.
Merete leit út um gluggann.
Hvernig átti barn að skilja það,
sem gat gerzt milli fólks, sem
elskaði hvort annað? Hvernig
gat liann skilið biturleikann, sem
óx dag eftir dag? Biturleika, sem
nærðist á ótta um framtíðina og
afkomu þeirra? Hún brann af
löngun eftir að segja syni sínum
frá skorti föður hans á ábyrgð-
artilfinningu, frá öllum kvöld-
unum, sem hann hafði setið á
veitingahúsum með vinum sínum,
niðursokkinn í listamanna-
drauma, — drauma, sem aldrei
gátu rætzt. En hún vildi ekki
gera það. Drengurinn mátti eiga
blekkinguna, en kannske. gætl
hann seinna skilið, hvers vegna
hún varð að skilja við föður
hans.
Ef til vill fengi sumarleyfið,
þar sem þau væru tvö ein, hann
til að skilja. . . .
Húsið, sem hún hafði tekið á
leigu var við ströndina. Það var
ekki stórt, sumarbústaður eins
og þúsund annarra á svipuðum
stöðum. Þar voru aðeins tvö her-
bergi, en jafnvel þó að leigan
væri ekki há, hafði greiðslan
fyrir fjórtán daga dvöl gengið
nærri bankabók Merete.
Samt fannst henni, að hún
vildi heldur svelta, en komast
ekki í sumarleyfi. Veðrið var dá-
samlegt frá morgni til kvölds og
hún fann blátt áfram, hvernig
kraftar hennar og lífsþróttur juk-
ust daglega.
Peter virtist líka hafa gott af
að vera þarna jafnvel þó að hann
virtist ekki breyta viðhorfi sínu
til hennar. Ilann var enn þögull
og inniiokaður og var mestan
tímann með bók úti á svölunum
eða á ströndinni — eins og nú,
þar sem hún stóð við gluggann
og horfði á bak hans.
Framhald á 6. síðu.
••••••••••
i
San:
Sana h.f. á Ákureyri hefur nú hafið framleiðslu á gosdrykknum: „SUKKERFRI
VALASH“ frá Valash Fabriken A.S. í Danmörku. Sykurlaus gosdrykkur er
þvi loks kominn á markaðinn hérlendis.
SYKURLAUST VALASH er svalandi og bragðgóður appelsindrykkur.
SYKURLAUST VALASH hefur auk þess þann kost að í innihaldi hverrar
flösku eru einungis 2 hitaeiningar. í hverri venjulegri gosdrykkjaflösku eru
hins vegar um 100 hitaeiningar. Venjulegur gosdrykkur fitar því um 50
sinnum meira en SYKURLAUST VALASH!
Sykurmagnið í venjulegum gosdrykkjum er lika mikill skaðvaldur á tennur.
Sá skaðvaldur er auðvitað ekki i SYKURLAUSU VALASH.
Þess vegna: Slökkvið þorstann — njótið bragðsins — drekkið SYKURLAUST
VALASH og hafið ekki áhyggjur af fitu og tannskemmdum.