Alþýðublaðið - 05.11.1967, Blaðsíða 10
10
Sunnudags AiþýSublað — 5. nóvember 1967
Köfum opnað Höfum opnað LAUGAVEGUR 96 - Höfum opnað Höfum opnað
Höfum opnað nýja skó- verzlun í nýjum og glæsilegum húsakynnum SKÖVERZLUN /bufoiíxs&tevt Mikið og fallegt úrval af: KVENSKQM, KARLMANNA- SKÓM OG BARNASKÓM
☆ GJÖRIÐ SVO VEL OG LlTIÐ INN *
Eftirmáli
Framhald úr opnu.
framdráttar er áreiðanlega at-
hugunarverð. Nútíma-íjölmiðlun,
útvarp og sjónvarp ásamt dagblöð-
imí gætu áreiðanlega unnið bók-
menntum þarflegra kynningar-
starf en þau gera nú; útvarpið
stuðlar beinlínis að vítahring
jólásölunnar með bókakynningu
sinni á' sunnudögum á haustin þar
sem lesið er í belg og biðu úr
nýjum bókum, — en aðra árstíma
er nýrra bókmennta varla getið
nema í fréttum. Sjónvarpið er ó-
reyndur miðill á þessu sviði eins
og öðrum. Og dagblöðin eru einn-
ig innan hringsins að langmestu
leyti, fjalla ekki að marki um
bókmenntir nema að haustinu
meðan nýjar bækur eru að koma
út. Fjölbreyttari útgáfuhættir
munu að vísu ekki komast á fyrir
framtak neins einstaks aðila held-
ur einungis með samstarfi þeirra
allra í senn, bókagerðarmanna,
útgefenda og bóksala og annarra
sem _ við bækur fást, en þangað
til mun bókamarkaður víslega
verða þröngur á íslandi og ó-
tryggur hagur þeirra sem við bók-
menntir fá'st á einn hátt eða ann-
an. Og til að vítaliringurinn rofni
endanlega þarf enn meira að koma
til: gagnger hugarfarsbreyting
gagnvart bókmenntum sem mundi
fela það í sér að menn hættu að
líta á bækur sem munað, tækju
þeim í staðinn sem daglegri, sjálf-
sagðri neyzluvöru. — Ó. J. .
(Viðtal við Arnbjörn Kristins-
son birtist 8/10, Ragnar Jónsson
15/10, Gils Guðmundsson 22/10
og Baldvin Tryggvason 29/10).
Ofsóknir
Framhald af 7. síðu.
var vitanlega fullkomlega á-
stæðulaust. En til að bæta nokk-
uð fyrir þetta frumhlaup, var
Fjáreigendafélaginu boðið upp á
það, að þeir skyldu flytja bæki-
stöð sína nokkuð austur fyrir
Elliðaár og setja sig niður á svo-
nefndri Hólmsheiði. Þetta kost-
aði að vísu gríðarlega fyrirhöfn
og hafði mikinn kostnað í för
með sér. En við því var ekkert
að gera. Félagið ætlaði að hlýða
þessari skipan yfirvaldanna. En
er til kom, var félaginu bannað
þetta líka. Var talin ástæðan sú,
fyrir vatnsból höfuðborgarinnar.
að hætta gæti af þessu stafað
Vitanlega er það alveg órann-
sakað má'l, hvort þetta hefur
við nokkur rök að styðjast. En
það sem yfirvöldunum bar að
gjöra, þegar svo var komið, —
liggur auðvitað í augum uppi:
Það átti að sjálfsögðu að vísa fé-
laginu á annan hentugan stað
fyrir bækistöð sína. En ekki er
kunnugt, að það hafi verið gjört.
Hvað á þá Fjáreigendafélagið
að gera? — Fjáreigandi.
markaðar svipmyndir úr eigin
sáiariífi eins og það horfir við í
spegil nátúru og árstíða, og þó
að höfundinum liggi þar sjaldn-
ast hátt rómur, má fullyrða, að
þeir, sem á annað borð leggja
eyrun að rödd þessara Ijóða, muni
oftar en einu sinni leita á vit
þeirra. f
Ný Ijóðabók eftir Jóhann Hjálmarsson
KOMIN er út ný ljóðabók eftir
Jóhann Hjálmarsson, hin sjötta í
röðinni og nefnist hún NÝ LAUF,
NÝTT MYRKUR. Hefur hún að
geyma 36 Ijóð og er gefin út af
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar I samvinnu við Almenna
bókafélagið, en svo hefur einnig
verið um tvö síðustu kvæðasöfn
höfundarins.
Jóhann Hjálmarsson er borinn
og barnfæddur Reykvíkingur.
Hann hneigðist ungur að skáld-
skap og fyrstu ljóðabók sína,
Aungul í tímann, sendi hann frá
sér aðeins 17 ára gamall. Næstu
bók sína, Undarlega fiska, gaf
hann út tveimur árum seinna, og
vöktu bæði þessi ljóðasöfn athygli
meðal bókmenntamanna. Þótti þá
strax sýnt, að þar væri á uppsigl-
ingu markverður höfundur, sem
líklegur væri til að fara sinna
eigin gerða og hafa ljóð hans,
einkum í hinum síðustu bókum
hans, staðið tvímælalaust við þau
fyrirheit.
Nýtt lauf, nýtt myrkur, leiðir
þó kannski allra skýrast í ljós þá
eðliskosti, sem einkennt hafa ljóð
hins unga höfundar í æ ríkara
mæli, en það er skáldlegt innsæi,
listræn hófstilling og vandvirkni.
Hann er hvorki baráttuskáld í
venjulegri merkingu né uppnæm-
ur að hætti hinna reiðu ungu
skálda, en hann er því næmari
á þau viðfangsefni, sem vita að
innstu hræringum mannshugans.
Þannig eru mörg kvæðanna af-
Nýtt lauf, nýtt myrkur er 60
bls. að stærð og vandlega úr garði
gerð. Prentsmiðja Hafnarfjarðar
hefur annazt prentun og bókband,
en kápuna gerði Eyborg Guð-
mundsdóttir listmálari.
ENGIN SÍLD
Eigi var veiðiveður á síldarmið-
unum fyrri sólarhring og voru
flest síldveiðiskipin í landvari.
Einungis tvö skip tilkynntu um
afla, samtals 40 lestir:
Siglfirðingur SI. 20 lestir og Ás-
geir RE. 20 lestir.
AUGLÝSIÐ ~
í Alþýðublaðinu
VETURINN ER GENGINN Í GARÐ
og nú er kominn tími til að hugsa um vetrarkápuna — og þá er um að gera að vanda valið.
— En í Guðrúnarbúð á Klapparstígnum fáið þér áreiðanlega eitthvað við yðar hæfi, enda
koma vikulega sendingar frá beztu tízkuhúsum í Bretlandi, Hollandi og Sviss. — Ullarkápur,
kuldafóðraðar terylenekápur og vetrardragtir.
NÝJUNG: Fyrir ungu kynslóðina ullarítápur ófaldaðar
að neðan og geta ungu stúlkurnar sjálfar ráðið síddinni.
Breytingar gerðar á staðnum af æfðum saumakonum
yður að kostnaðarlausu.
Vönduð vara er ávallt ódýrust