Alþýðublaðið - 05.11.1967, Page 16
<$u*msa£cu}s
A5 borga mönnum fyrir a5 skrifa ekki
SNEMMA í vikunni var látið á
■þrykk út gánga að þeir þarna
úti í Osld mundu ekki sjá sér
fært að veita nein friðarverðlaun
— og undruðust fáir, eins og nú
lítur út í heiminum, því að erf-
iðlega hefði gengið að finna
nokkurn verðugan. En við nána
athugun sést að þetta er mis-
skilningur. — Það hefði átt að
skipta friðarverðlaununum milli
fjögurra manna sem allir hafa
gert mikið fyrir friðinn á árinu,
ekki kannske með því sem þeir
hafa gert.heldur fremur með
því sem þeir létu ógert. Þessir
menn eru auðvitað þeir Johnson
og Ho Shi Minh, Nasser og Esk-
hol. Þetta er alls ekki sagt þess-
um lieiðursmönnum til háðung-
ar, baksíðan segir aldrei neitt
neinum til háðungar, sízt af öllu
heimsfrægum snillingum, sem
þar að auki gætu gert manni
einhverja bölvun. En þessir menn
gerðu það fyrir friðinn á árinu
að þeim tókst ekki, þrátt f.vrir
allt, að hleypa af stað heims-
stvrjöid. Og það er sannarlega
þakkarvert. Einkum ættu þeir
menn að þakka sem sennilega
ekki b'etur en ríkiskass-
ætti áð fara að innheimta
skattá með bilhappdrætti, og
auðvttað ætti viriningurinn að
vera skattfi-jáls.
væru dauðir nú, ef allt hefði
farið í bál og brand, og þeir
væru ekki fáir.
Af þessu sést að það er í raun-
inni ekkert síður eðlilegt að meta
við menn það sem þeir gera ekki,
heldur en að vera endilega að
burðast við að elta uppi eitthvað
stórmer.kilegt sem þeir hafa
gert. Þess vegna væri ekki
svo vitlaust að breyta við og við
út af venju með bókmenntaverð-
laun Nobels líka. Því ekki við og
við að veita þau mönnum sem
hafa gert það fyrir heimsbók-
menntirnar að semja ekki ein-
hvern leirburð og láta á þrykk
út ganga. Mér er mjög til efs að
það liefði neitt lakari áhrif á
liinar fögru bókmenntir í heim-
inum heldur en að eltast við af-
reksmennina á hinu sviðinu. Ef
við t. d. lítum yfir bókaflóð
seinni parts árs á íslandi, ein-
mitt það flóð sem nú er að steyp-
ast yfir mann eins og holskefla,
þá lilýtur að vakna sú spurn-
ing hvort heimsmenningunni
væri ekki greiði gerður, ef sumu
þessu fólki væri borguð ritlaun
og rithöfundarlaun fyrir að skrifa
ekki bækur. Það er hvort sem er
viðurkennt að oft er ekki minni
snilld í því fólgin að geta haldið
sér saman en að tala, þegar
þannig stendur á.
í þessari viku gerðist það hér
heima, að menn mótmæltu unn-
vörpum efnahagsráðstöfunum
stjórnarinnar, og var meiningin
sú, að öllum finnst allt í lagi að
leggja á menn þungar byrðar,
„bara ef ég sjálfur fer sæmilega
út úr því.” Á meðan fóru fram
viðræður við ríkisstjórnina og
gekk ekkert né rak, enda er fjar
stæða að fara sér óðslega við
svona nokkuð, betra að vanda
sig, eins og maðurinn sem braut
vandlega saman vettlingana
sína, áður en hann fór út í á til
að bjarga konunni sinni sem var
að drukkna. Hefur komið til
mála að stofna til þjóðstjórnar
með öllum flokkum, en slíkar
ráðstafanir eru aðeins gei'ðar
þegar stjórnmálamenn yfirleitt
eru orðnir uggandi um sinn hag
og telja sig vera búnir að fá alla
á móti sér. En á meðan öll þessi
mótmæli fóru fram ásamt viðræð-
um mikilla manna, kom í Ijós að
þorskstofninn þolir ekki meira
veiðiálag, síld veiðist varla upp
í samninga, vont er að selja vör-
ur þær sem landsmenn eiga, og
hætta er á enn meiri samdrætti
í iðnaðinum, eftir því sem press-
an segir. Þetta eru að vísu dálít-
ið slæmar fréttir, en það er samt
ástæðulaust að vera svartsýnn,
því að sjónvarpið er komið til
140 þúsund manna á landinu, og
þar með má segja að 70% þjóð-
arinnar geti horft á Dýrlinginn
á föstudögum, og til hvers betra
er þá hægt að ætlast? — mér er
spurn.
^ Alltaf fleira sem dregur frá, síminnkandi hrifning
SLÆMIÁRFERÐI
Slæmt er árfcrðið, ógnarlegt kal í túnum
og illærisnefndin til fundar við Ingólf riðin,
í dauðans skelfingu dettur nytin úr kúnum,
og dagur Belgíusiglinga á enda liðinn.
Síldin er þrjózk og þorskurinn hleypir brúnum
og þykist upp úr því vaxinn að ganga á miðin.
I Smjörfjallsbrekkunni mæti ég morgunfrúnum
með makarínið, þenkjandi um nýja siðinn.
Á Alþingi sveitist sextíu manna flokkur
og sér ekki fram úr áð berjast fyrir okkur.
Orðabók háðskólans
ÞJÚÐSTJÓRN: Þegar allir stjórnmálaflokkarnir eru saman á mótl
þjóðinni.
MENNTUN: Það sem er eftir í huga þér þegar þú er búinn aff
gleyma öllu sem þú hefur lært.
HUGREKKl: Að þora að vera hræddur.
Sá spaki segir...
Konur segjast helzt vilja hinn
sterka þögla karlmann. Ég skil
það vel. Hann grípur sjaldnast
fram í fyrir þeim.