Alþýðublaðið - 09.11.1967, Blaðsíða 3
laxveiðanna við
rænland verða könnu
Emil Jónsson.
Aiþjóðahafrannsóknaráðiff hélt
hina árlegru fundi sína í Hamborg-
nýlega. Starfar þaff í nefndum.
Ein nefndin er Göngufiskanefnd-
in, sem fer meff mái, er varffa
lax, silung og ál, og mætti veiffi-
málastjóri á fundum nefndarinn-
Aðalfundur Félags
háskólamenntððra
v
kennara nýhaldinn
Aðalfundur Félags háskóla-
menntaðra kennara var haldinn
fimmtudaginn 19. okt. s.l. Fráfar-
andi formaður Erlendur Jónsson
flutti skýrslu stjórnar' Mikilvæg-
asti árangur af starfi félagsins
síðasta ár var námskeið í upp-
eldis- og kennslufræðum fyrir há-
skólamenntað fólk við kennslu-
| störf, sem ekki hafði lokið prófi
| í þeim greinum. Fjörtíu og einn
lauk prófi frá námskeiðinu og
öðlaðist þar með kennararéttindi
og þeir sem voru í lægsta launa-
flokki framhaldsskólakennara fá
nú hærri laun.
Frumkvæði að námskeiði þessu
Framhald á 15. síffu.
ar. Var m-.a. rætt um laxveiðarn
ar viff Grænland og gerð áætlun
um samstarf til þess aff kanna á
lirif Grænlandsveiffanna á lax-
veiffi í heimalöndum faxins. Er ís
land affili að' þessu samstarfi.
Á fundum Göngufiskanefndar
Alþjóðahafrannsóknarráðsins í
Hamborg í október var m.a. lagt
fram álit Samstarfsnefndar Al-
þjóðahafrannsóknarráðsins og
Fiskveiðanefndar Norðvestur At-
landshafsins um laxveiðarnar við
Grænland. Fara hér á eftir upp-
lýsingar, sem komu fram í nefndu
áliti.
Laxveiðarnar í sjó við Græn-
land hófust á þessu ári í ágúst-
mánuði og gengu vel fram tU sept
emberloka. Veiddust um 500 tonn
af laxi á þessum tíma. Var útlit
fyrir ágæta laxveiði á vertíðinni,
sem mun væntanlega enda í þess
um mánuði. Er líklegt, að heildar
oflinn verði svipaður því, sem
hann var 1964, en þá veiddust
1539 tonn af laxi í sjó við Græn
land. í fyrra varð laxveiðin 861
tonn og í hitteðfyrra 1338 tonn.
Laxveiðin í löndunum. þar sem
lax hrvgnir og elst upp í ánum,
var góð eða ágæt í sumar nema
helzt í Kanada. Á undanförnum
árum hefur veiðin í beimalöndum
um íþrótta-
hús og eldvarnir
laxins verið góð, og verður ekki
séð, að greinileg tilhneiging til
veiðirýrnunar hafi átt sér stað
fram til ársins 1966, sem afleið-
ing af laxveiðunum við Græn-
land.
Reynt er að aHa upplýsinga um
uppruna laxins, sem veiðist við
Grænland. Er það m.a. gert með
merkingu á gönguseiðum og á
laxi, er veiðist við Grænland. Á
árunum 1963 til 1965 vo urmerkt
ir rúmlega 250 þúsund göngu-
seiði og hafa um 200 þeirra kom
ið fram í Grænlandsveiðunum.
148 merktu laxanna voru frá Kan
ada, 22 frá Englandi og Wales,
22 frá Skotiandi og hinir frá Sví
þióð, írlandi og Bandaríkjunum.
Framan af yfirstandandi vertíð
hafa veiðst 4 merlctir laxar, 2
frá Bandarikjunum, einn frá
Kanada og einn fx-á Svíþjóð. í
fvrra voru merktir 213 þúsund
gönguseiði, þar af um 8500 hér
á landi og í vor 242 þúsund og þar
af um 10.500 hér á landi. Vænta
l má, að gönguseiðin. sem merkt
voru 1966 geti komið fram í veið
nnum í haust eða síðar.
Haustið 1966 voru 728 laxar
veiddir og merktir við Grænland
og veiddust þrír þeirra í sumar,
tveir í Tweedánni í Skotlandi og
einn í Miramichiánni í Kanada..
Búið var að mei-kja 104 laxa við
Grænland í lok septembermánað
ar.
Fregnir af vaxandi laxveiði í
sjó úti fyrir norsku ströndinni
hafa vakið mikla athygli. Á und
anförnum árum hefur lax verið
veiddur þar lítilsháttar í lagnét, *
en nú hafa Danir tekið upp lax ;
veiðar á 'ínu á þessum slóðum.
í fyrra voru 6 eða 7 danskir bát
ar við þessar veiðar, en í vor
voru yfir 20 danskir bátar við
laxveiðar auk nokkurra sænskra, ’
færeyskra og norskra báta. Er tal
ið líkiegt, að heildar veiðimagn
þessara báta í ár hafi verið 100
Framhald á 14. síffu.
Bæjai'stjórnarfundur var hald-
inn í Hafnarfirði síðastliðinn
þriðjudág. Urðu umræður allheit
ar undir dagskrárliðnum ,,-Fundar
gerðir bæjarráðs”. Fyrir fundin-
um lá tillaga frá meirihluta bæj
arráðs, þeim Árna Gunnlaugssyni
(Óh) og Stefáni ónssyni (S), þess
efnis, að íþróttanefnd skyldi vei-ða
bæjarráð til ráðuneytis um bygg
ingu iþróttahúss. Orsakir þessar-
ar tillögu voru tilmæli frá auka-
fundi Í.B.H. um að skipuð yrði
sérstök byggingarnefnd íþi-ótta-
hússins. Bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins lögðu til, að íþróttanefnd
bæjarins yrði jafnframt bygginga
nefnd hússins. Urðu um' þetta
nokkrar umræður og tillaga Al-
þýðuflokksins síðan felld, en til-
laga meirihluta bæjarráðs sam-
þykkt.
Þá urðu umræður um bi-una-
varnir bæjarins, en um þær hafði
bæjarráð fjallað í þeim fundar-
gerðum, er fyrir lágu. Vitað er að
áðbúnaði öllum og aðstöðu slökkvi
liðsins er mjög ábótavant. Hafði
slökkviliðsstjóri fai-ið fx-am á ýms
ar fjárveitingar til þess að bæta
úr þessu, þegar fjárhagsáætlun
fyrir 1967 var saminn. en ekki var
oi-ðið við óskum hans. Einnig var
vitað, að engin æfing hafði verið
haldin hjá slökkviliðinu nú í nokk
ur ár, en hins vegar voru útköll
á þessu ári orðin 50. í fæstum
þeirra mun hafa verið um meiri
háttar eld að ræða, heldur smá
íkveikjur og sinubruna. Höi’ður
Zóphaníusson (A), hafði látið bóka
í bæj^rráði að hann mæltist ein
dregið til þess að slökkviliðið hefði
a.m.k. eina æfingu á ári. í fram-
Frainliald á 15. síðu.
BRIDGEFÉLAGAR
Spilum brigde í Ingólfs-
kaffi n.k. laukardag kl. 2 stund
víslega. Stjórnandi verður Guð
mundur Kr. Sigurðsson.
Athugið, að gengið er inn
í brigdesalinn frá Ingólfs-
stræti.
Öllum brigdeunnendum er
heimil þáttaka.
Alþýðuflokksfélag Reykjavík
Alþýðuflokkskonur Rvík
i
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík mun halda Bazar sunnu-:
daginn 3. desember n.k. i
Þess er farið á leit við félagskonur kvenfélagsins og velunnara :
þess, að þær styrki félagið með gjöfum til Bazarsins og taki þátt:
í undirbúningsstörfum.
Fyrsti starfsfundur fer fram á skrifstofu Alþýðuflokksins í kvöld;
(fimmtudag) kl. 20,30.
Eru félagskonur hvattar til að mæta og taka virkan þátt í undir-:
búningi. STJÓRNIN.
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 13. nóvember n.k. verffur haldinn fundur í
Alþýðuflokksféiagi Hafnarfjarðar.
Fundarefni: Dýrtíðarráðstafanir rikisstjórnarinnar.
Fruminælendur Emil Jónsson ráðlierra formaður Alþýffu-
flokksins og Jón Armann Héðinsson alþm.
Fundarstaffur: Alþýffuhúsiff í Hafnarfirffi.
Fólk er hvatt til að fjölmenna á fundinn.
Jón Árm. Héðinsson.
Jón B. Ilannibaldsson.
9. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3