Alþýðublaðið - 24.11.1967, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 24.11.1967, Qupperneq 16
GENGISFALL Og nú verður dómurinn kveðinn upp í dag þessi dómur sem allir eru búnir að bíða eftir með önd- ina í hálsinum frá því um helgi. Æf úrskurðinum verður þá ekki skotið enn á frest, svona rétt til að gleðja fólk, af því að það er svo afskapiega gaman að bíða eins og allir vita, og svo auðvitað líka ♦til að gefa fólki tækifæri til að fcaupa það, sem kann að vera eft ir í verzlunum, - ef það þá er eitt- ttvað. En öll sólarmerki benda sem- sagt til þess að í dag verði úrskurð urinn kveðinn upp, og það tilkynnt tjvort krónan okkar, sem hefur «kki verið fimmeyringsvirði um tangt skeið, eins og allir vita, nái t>ví eftirleiðis að vera einseyr- ingsvirði. Það er auðvitað ekki tiema von að fólk bíði í ofvæni eft *r- að fá- skorið úr um þetta, og þó er það í aðra röndina dálítið und- arlegt að menn skuli vera svona spenntir út af afdrifum krónu, sem ekki er meira virði en þetta. Það er ekki alltaf borin svona mikil utnhyggja fyrir því sem verðlítið cr, og ekki einu sinni fyrir hinu, sens þó kostar sitt. Annars er þetta undarlegt með blessaða krónuna okkar; hún er aUtaf að falla, en það er eins og fjað-sé alveg sama hve mikið hún fellur, aldrei nær hún botni, svo að alltaf getur hún fallið meira. 'ffins vegar er fall hennar greini- lega dálítið mishratt og þar með tjrýtur hún auðvitað eitt grund- vallarlögmál eðlisfræðinnar, en |>að - er-auðvitað ekki nema von, Ýnd að sjálfsagt stendur þetta utan við öll náttúrulögmál, eðlisfræði- lögmál meðtalin. Vonandi er krón an ein um það að geta fallið tak- *narkalaust, því að ef það væri al •gtld régla um alla hluti, þá væri alfur heimurinn botlaust hyldýpi. -ftaunar segir sérfræðingur okkar í astralfílósófí og stjörnuspeki að l»að sé heimurinn einmitt að öll- um líkindum, og þá er fall krón- ■unnar í samræmi við kosmíska eðlisfræði, þótt það kunni að brjóta í báa við þá jarðnesku. Hins vegar gleymist fólki oft í öllu gengislækkunartalinu að gengi hefur fallið á langtum fleiri nauðsynjum en peningum síðustu lár og áratugi. Heiðarleiki er til dæmis ekki í miklum metum svona yfirleitt, og meydómur er einskis virði orðinn, þótt hann þætti áður gulls ígildi. En það hæfir víst ekki að tala léttúðlega um alvarlega hluti, og því er bezt að þagna. Annars gæti gengi Baksíðunnar líka tekið að falla, og það væri engan veginn gott. r Lspa ugj AGREININGÚR HJA HLJÓMLISTARMÖNNUM Fyrirsögn í Vísi. — Finiist þér þetta ckki heldur langt gengið. Ef þú ert að hugsa um bjarta framtíð, þar sem barnabörnin hlusta á sögurnar þínar, þá er eins gott fyrir þig að lána mér bilinn í kvöid. • Af hverju skyldu hljómlistar menn líka vera öðruvísi en. aðrir listamenn? Ef það er satt sem blöðin segja að allir hafi tekið pen inga út úr bönkunum sfð. ustu dagana, þá verða bank arnir auðvitað að fara að efna tii happdrættis tll að hressá upp á fjárhaginn . ,v Ef þú hefur heyrt hann biðja leigubíl að bíða, þá ætlar hann að taka þig á sálfræðinni... Það er nú allt gott og bless að, að stúlkurnar keppi í knattspyrnu við piltana, en þa verða þær bara að passa slg að koma ekki of nálægt þeim.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.