Alþýðublaðið - 29.11.1967, Blaðsíða 2
fí
Rússarnir koma
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Grágás ný bók, sem nefnist Rúss-
arnir koma. eftir Nathaniel Bench-
Úthesjavaka
Ungmennafélag og Kvenfélag
Njarðvíkur gangast fyrir miklu
skemmtanahaldi í félagsheimilinu
Stapa um næstu helgi í tilefni
fullveldisdagsins, og eru þessar
skemmtanir nefndar einu nafni
Útnesjavaka og er allt Suðurnesja
fólk velkomið að sækja þær.
Á föstudagskvöld kl. 8.30 sýnir
Leykfélag Reykjavíkur Indíána-
leig í Stapa, og klukkan 2 á laug-
ardag verður opnuð þar málverka
sýning. Sýnd verða verk eftir Pét
ur Friðrik. Klukkan 8.30 á laug-
ardagskvöld verður síðan kvöld-
vaka í félagsheimilinu. Þar syng-
«r Keflavíkurkvartettinn og m.a.
skemnjita þeir félagarnir Róbert og
Framhald á blaðsíðu 15.
ley í þýðingu Baldurs Hólmgeirs-
sonar. Sagan, sem bókin byggist
á hefur verið kvikmynduð og hef
ur myndin hlotið lofsamlega dóma.
Myndin verður sýnd í Tónabíói á'
næstunni.
Svo segir á bakkápu bókarinn- j
ar: Daginn, sem Rússarnir festu |
kafbát sinn á sandrifi út af Þorsk-
höfða, vofði yfir heiminum hætta
sem varla átti sinn líka frá því að
Kúbumálið var á döfinni. En það
óraði heldur ekki neinn fyrir því,
hvernig innfæddir brugðust við
hinni óvæntu heimsókn".
Aðra bók hefur Grágás sent frá
sér, en það er ástarsaga eftir Erl-
ing Poulsen og nefnist sagan:
„Fögur og framgjörn“. Baldur
Hólmgeirsson þýddi einnig þessa
bók.
Sagan fjallar um vinsælan leik-
ara, konu, ást og hatur. Segir
á bakkápu bókarinnar: „Þetta er
með skemmtilegustu sögum eins
víðlesnasta skáldsagnahöfundar
á Norðurlöndum“.
Námskeíð ffyrir
tryggingamenn
Með breyttu skipulagi og
auknu húsnæði hafa Samvinnu-
tryggingrar tekið upp skipulegt
fræðslustarf fyrir umboðsmenn
eína. Nokkrir umboðsmannafund
ir hafa verið haldnir á Undan-
förnum árum, sem aðeins hafa
fstaðið í 2-3 daga hver. Á þeim
fundum hafa jafnan verið rædd
■nargvísleg vandamál í trygging-
vm.
Nýlokið er námskeiði fyrir 14
umboðsmenn, sem stóð í 10
dága. Fluttir voru fyrirlestrar um
allar tegundir trygginga, rætt
um tjónauppgjör og önnur atriði
varðandi rekstri umboða hjá
Samvinnutryggingum. Með nám-
skeiði þessu vilja Samvinnutrygg
ingar leggja mikið kapp á, að all
ir umboðsmenn njóti fullnægj-
andj fræðslu um starf sitt, svo að
þeir geti sinnt því á sem beztan
hátt.
Fólk er mismunandi vel að sér
Framhald á 10. síðu.
Saga síðustu vikna
styrjaldarinnar
Nú eru nýjar bækur farnar að
streyma út á markaðinn, enda
hefst vertíð bókaútgefenda og bók
sala brátt. Bókaútgáfan Fífill hef-
ur nú sent frá sér þrjár nýjar bæk
ur á jólamarkaðinn. Sú bókin, sem
líklega mun mest athygli veitt er
„Síðasta orustan” eftir Cornelius
Ryan, en hann er höfundur bók-
arinnar Lengstur dagiu:, sem gef-
in hefur verið út á íslenzku.
Síðasta orustan er saga síðustu
þriggja vikna síðustu heimsstyrj-
aldarinnar, þegar augu milljóna-
tuga um allan heim beindust að
Berlín, sem var að kalla rjúkandi
rústabreiða eftir hundruð loftár-
ása. Hersveitir Rússa voru þá að-
eins 70 kílómetra frá miðbiki Ber-
Iínar. 14 dögum síðar var Hitler
dauður, og 21 degi síðar var styrj
öldinni lokið í Evrópu.
Hersteinn Pálsson þýddi bók-
ina úr ensku.
Önnur bók, sem Fífill hefur gef
ið út er: „Gildra njósnarans eft-
ir Francis Clifford. Hann er ís-
lenzum lesendum kunnur, þeim er
lesið hafa „Njósnari á yztu nöf”.
Ásgeir Ingólfsson þýddi „Gildru
njósnarans”, bókin er prentuð í
Prentsmiðjunni Odda.
Bókmenntagagnrýnandi The Sun
day Times segir um „Gildru njósn
arans”: „Frábærilega vel sögð
saga... bók í sérflokki”.
Þriðja bókin, sem Fífill hefur
nú gefið út er: „Sumar á sjúkra-
húsi” eftir Lucilla Andrews. Fjall
ar sagan um unga stúlku, sem ger-
ist sjálfboðaliði í Rauðakross-deild
brezka hersins. Auðvitað kemur
ástin til skjalanna áður en lýkur.
ÓPERUSÝNING
' ÓPERAN Ástardrykkurinn eft i
) ir Donizetti, sem nú er sýnd,
f í Tijarnarbæ hefur hlotiff mjög i
> góða dóma enda hefur aðsókn,
| aff sýningunum verið mikil. í1 j
óperunni koma fram xn. a.: i
Hanna Bjarnadóttir, Kristinn
Hallsson, Magnús Jónsson, J
Jón Sigurbjörnss., Eygló Vikt- *
orsdóttir svo og kór, en un»f
30 manns taka þátt í sýning-,
dunni. Þegur hafa á fimmta
()hundrað manns gerst áskrif-
jjendur að sýningum Óperunn-
ar en tekið er á móti nýjum
\ ásfcriftum j Tjarnarbæ all»
daga frá kl. 5 — 7, sími 15171.
Næsta sýning, sú fjórða, verð
ur í Tjamarbæ í kvöld kl. 21,
en ekki verður hægt að sýna
ifleiri en þrjár sýningar enn
'Jfyrir jól.
} Myndin
J J óperunni.
I
sýnir liópatriði úr
SRjandi, talið frá vinstri: Geirmundur Jónsson, S luðÁ-Urók/j', JÓHasl Gestsson, Grundarfirði. Sig-
urður Gunnarsson, Ilafnarfirði, Þorgeir Hjörleifs on, ísafirði og Sveinn Guðmundsson, Akranesi.
Standandi, talið frá vinstri. Hreinn Bergsveinsson fulltrúi í Söludeild, Magnús Ingólfsson, Egils-
stöðum, Ingvar Sigurbjörnsson, Reykjavík, Þórir Gunnarsson, Keflavík, Svavar Jóhannsson, Patreks
firði. Sigmundur Björnsson, Akureyri, Karl J. Eiriks, Selfossi, Þormóður Jónsson, Húsavík og Björn
Vílmundarson deildarstjóri Söludeildar. Á myndina vantar Jón Einarsson, Borgarnesi og Óskar Krist-
jánsson, Reykjavík.
Félagsheimili
vígt á Mýrum
FÉLAGSHEIMILI Álftaneshrepps
og Hraunhrepps, sem reist er í
landi Arnarstapa á Mýrum var
vígt 5. nóvember s. 1. Samkpman
liófst með helgistund. Sungið var
Vor Gurð er borg á bjargi traust,
sr. Ámi Pálsson í Söðulsísolti las
riíningargrein og sr. Leó Júlíus-
sop, prófastur á Borg prédika^i-
Á . eftir var sungið ísland ögrum
skorið.
Þá var samkoman sett af for-
manni undirbúningsnefndar. Frið
geiri Friðjónssyni, Sveinsstöðum,
en þar næst var flutt byggingar-
saga hússins, og gerði það Bjarni
Valtýr Guðjónsson, Svarfhóli. Þá
var kunngert nafn hússins, Lyng-
brekka, og kom það fram í niður-
lagi vígsluljóðs, sem Ingibjörg
Friðgeirsdótlir, liúsfreyja á Hofs-
stöðum flutti.
Þar næst voru ávörp fulltrúa
hinna fjögurra byggingaraðila er
að húsinu standa, en þeir eru:
Hreppsfélag Álftaneshrepps og
Hraunhrepps og ungmennafélög-
in Björn Hitdælakappi og Egiil
Skallagrímsson.
Að loknum þessum fyrsta þætti
athafnarinnar, 'hinni eiginlegu
vígslu, hófst kaffidrykkja. Undir
borðum voru margar ræður flutt-
ar, sögð fram kvæði, sem ort
höfðu verið í tilefni dagsins, les-
in heillaskeyti, er borizt höfðu_
flutt gamanefni, sungíð og af-
hentar f.iölmargar gjafir til liúss-
ins. Að lokinni kaffidrýkkju hófst
dansskemmtun vígslugesta, sem
Framliald á 10. síðu.
2 29. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ