Alþýðublaðið - 29.11.1967, Blaðsíða 4
mmm
Rltstjórl: Benedlfct Grðndal. Slmar 14900—14903. — Auglýslngaslml:
149Q6. — ABsetur: AlþýÐuhúsið vlð Hverfisgötu, Rvlk. — Prentsmiðja
Alþýðublaðslns. Siml 14905. — Askriftargjald kr. 105.00. — 1 laue>
Bölu kr. 7.00 elntakið. — Útgefandl: Alþýðuflokkurinn.
VERÐLAGSEFTIRLIT
EITT ÞEIRRA FRUMVARPA, sem ríkisstjórn-
in hefur lagt fyrir Alþingi’ í sambandi við gengisbreyt
inguna’, fjallar um breytta skipan á verðlagsnefnd.
Er þar gert ráð fyrir, að næsta ár skipi nefndina þrír
fulltrúar frá Alþýðusambandi íslands, einn frá Banda
lagi starfsmanna ríkis og bæj'a, tveir frá Vinnuveit-
endasambandi Islands, einn frá Verzlunarráði Is-
landá og lóks einn frá Sambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga.
Máli þessu hefur verið hraðað gegnum þing-
ið, þár sem ætlunin er að þessi nýskipaða verðlags-
nefnd t'aki mikilvægar ákvarðanir' um verðlagningu
á margvíslegum nauðsynjavörum. Þarf að taka þær á
kvarðanir næstu daga.
Þesisi breyting á skipan Verðlagsnefndar er til kom
in vegna óska frá Alþýðusambandi Islands. Er hug-
m'yndin sú, að verkalýðshreyfingin fái sem bezt tæki-
færi til að hafa áhrif á verðlagsmálin og gæta hags-
muna neytenda, þegar áhrif frá gengisbreytingunni
koma fram í verðbreytingum.
Verðlagsmálin eru einn þýðingarmesti þáttur
íslenzkra efnahagsvandamála. Þau hafa mikil áhrif á
kaupmátt launa og þar með afkomu almennings. Bæði
samvinnufélög og kaupmenn hafa um langt árabil
haldið fram, að álagning á ýmsum nauðsynjavörum
væri hér of lág, en reynt hefur verið að halda henni
sem rnest niðri. Á hinn bóginn er haldið fram, að
álagning á vöru, sem hefur verið losuð undan verð-
lagsákvæðum, hefði við það hækkað óeðlilega.
Vegna gengisbreytingarinnar hafa allar vörur
verið teknar undir verðlagseftirlit. Ber að vona, að
hin nýja skipan verðlagsnefndar leiði til nýrrar ár-
vekni. svo að almenningur megi treysta því, að menn
séu á verði á þessu sviði og verðhækkanir ekki meiri
en framast er nauðsjynlegt.
Verðlagseftirlit hefur lengi verið umdeilt hér
á laudi. t raun réttri hafa tveir stærstu flokkar lands-
ins, Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn, verið á
móti því. Verkalýðsílokkarnir hafa þó komið til leið-
ar, að eftirlitið var ekki afnumið, þótt margir vöru-
fiokkar hafi verið gefnir frjálsir. Nú eru væntanlega
allir s^mmála um, að vegna gengislækkunar iverði að
aö hafa sterkt verðlagseftirlit með öllum vöruflokk-
,xlm.
Áskriftarsimi |
Alþýðublaðsins |
....MMMMMMMMMMMMMMI.I„„M,MIM„,M.„M„,l„„„,|„l.MMMMMMMMMMMMMMM..
'ú 4 29. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
::::
Mí:.S
: ,w-ssj
- i
í ll§||||
.
iáiiíeiá:;
■ 3
1811
; A
Váv/. ■
.
m m
..■■
MMNMi
ÞESSI mynd cr tekin í nýrri rannsóknastofu í Bandaríkj-
unum. Og eins og allir sjá er vísindamaðurinn sem á mynd
inni sést með hjálm eins og hann sé aö vinna í lierbergi fullu
af gasi. Samt cr ekkert gas í herberginu. Hann notar bara súr
efnisgrímu af því að rannsóknastofan er súrefnislaus með
öllu, loftið gersneytt súrefni. Slíkar rannsóknir hafa þann
kost að það er unnt að rannsaka nákvæmlega ýmiss konar
Iíffræðilegan vöxt sem getur átt sér stað við lítið eða ekkert
súrefni i loftinu. Og geta má þess að til er sú kenning að
munurinn á krabbamcinsfrumu og venjulegri frumu standi
fyrst og fremst , sambandi við súrefnisskilyrðin.
Þetta er nýjasti skýjakjúfur
sem er að rísa í Chicago. Það
verður stærsti skýjakljúfur
borgarinnar yfir 300 m. á hæð,
og er í rauninni borg inni í
borginni. Þar verða skrifstof
ur sem 1600 manns Vinna og
íbúðir fyrir 6000 manns, þar
verða bílastæði, og auðvitað
flest annað sem í borg er tal
ið nauðsynlegt.
BÚIÐ er að finna upp nýja tegund af búningi, sem náta má
niöri í djúpu vatni. Hann er úr stáli að mestu leyti en veiiir
samt mögulcika á hreyfingu og starfi. Meiningin -með þessum
búningi, sem enn er á tilraunastigi þar eð notagildi lians hef
ur ekki verið fullkannað, gera mönnum kleift að starfa eðli.
Iega niðri í sjónum. og á stórum svæðum á hafsbotni. And-
rúmsloftkeríi er byggt inn í búninginn og berst að vitum kaf
arans blanda af köfnunarefni og súrefni mjög lík því sem
eðlilegt andrúmsloft er.
Þetta eru nýjar gerðir af
fallhlífum, undarlegar í lag-
inu, sem farið er að frain-
leiða í Bandarikjunum. Er
vonazt til að þær muni gefast
vel.