Alþýðublaðið - 29.11.1967, Blaðsíða 9
bók, en ég er viss um, sð
einhverjir af nágrönnunum
myndu hafa áhuga á þessu“.
4. Frúin í húsinu hefur mikið
dálæti á hundum - stórum og
kröftugum hundum sem margt
fólk er hrætt við. Gamall unn-
usti hennar sem sleit trúlof'.m
þeirra fyrir mörgum árum kem
ur til borgarinnar og hringir í
hana. Hann segir, að sig langi
að líta inn og tala um gömlu
dagana. Hún býður honum til
hádegisverðar með hálfgerðri
tregðu, leggur tólið á og fer inii
í svéfnherbergið til að skipta
um föt. Þá minnist hún þess, að
unnustinn fyrrverandi er hald-
inn sjúklegum ótta við hunda,
bæði litla og stóra. Hvað gerir
hún:
a. Lokar stóra hundinn sinn
niðri í kjallara.
b. Tekur á móti vini sínum, segir
honum frá hundinum, fullviss
ar hann um, að dýrið sé ab
gerlega meinlaust og engin á-
stæða til að óttast það . og
segir, að hún hafi þennan fína
hádegismat tilbúinn á borð_
inu.
c. Gerir ekkert í málinu. Vonar
það bezta. Bíður átekta til
að sjá hvað muni verða úr
öllu saman.
5. Ung gift kona hefur með mik]
um fortölum loks fengið mann
sinn til að fara með sér út
að borða og í leikhús. Þau ætla
að hittast klukkan sex í veit-
ingahúsi. Hann kemur of seint.
Hún pantar sér vínglas. Lagleg-
ur ungur maður við næsta borð
fitjar upp á samræðum við hana
og býður hennj glas með sér.
Hvað gerir hún:
a. Segir honum kurteisislega, að
hún sé að bíða eftir eigm-
manní sínum, en þakkar hon
um fyrir.
b. Tekur boði hans, daðrar svo-
lítið við hann í léttum tón og
bíður komu manns síns með
eftirvæntingu til að sjá við-
brögð þeirra beggja.
e. Læzt ekki sjá hann. Og ef
hann gefst ekki upp, kallar
hún á þjóninn og segir: „Ég
fæ ekki frið fyrir þessum
manni“.
6. Hjón hafa verið gift í sjö ár,
og það • er brúðkaupsafmælið
þeirra í dag. Hún sendir börnin
til afa og ömmu til að gista þar
um nóttina. Hann sendir henni
tólf rauðar rósir. Hann fær sér
svolítið í staupinu áður en hann
kemur heim, en hann er ekk-
ert kenndur. Þegar hann kem-
ur heim sér hann strax, að hún
er búin að láta klippa sig. Hún
hafði hafa fallegt sítt hár. sem
hann var hrifinn . af ðg strauk
oft; nú er hún stuttklippt. Harin
veit ekki hvort honum líkar
breytingin eða ekki. Hvað gerir
hann:
a. Þykist ekki taka eftir nýju
greiðslunni.
b. Segir: „Hvað í ósköpunum
hefurðu látið gera við hárið
á þér?”
c. Segir: ,,Þú ert eitthvað
breytt- Já, það er hárið á
þér. Er þetta nýjasta tízka?
Ja, þú lítur svei mér vel út
svona“. Og hann er ástrik-
ur og hugulsamur við hana
allt kvöldið.
7. Eigandi stórverzlunar gerir
sér vonir um að taka á móti
stórri pöntun, en til að vera viss
um, að hægt sé að afgreiða
hana, verður að fara í flýti yfir
birgðirnar og skrásetja þær.
Hann talar við yfirbókarann og
segist verða að fá skýrsluna í
sinar hendur á mánudagsmorg-
un - það er föstudagur í dag.
Bókhaldarinn maldar í móinn
og segir, að það kosti vinnu fyrir
allt starfsfólkið bæði laugardag
og sunnudag, en eigandinn heimt
ar, að það verði áert. Um kvöld
ið fréttir hann, að ekki verði
neitt úr pöntuninni, svo að ó-
þarft sé að skrásetja birgðirnar.
Hvað gerir hann:
a. Hringir heim til yfirbókhald-
arans, segir honum hvernig
komið sé og býðst til að hjálpa
honum að láta hitt starfsfólk-
ið vita.
b. Gerir ekkert í málinu.
c. Ilringir í yfirbókhaldarann og
segist hafa komizt að þeirri
niðurstöðu, að það sé óþarfi
að skrásetja birgðirnar - cn
minnist ekki einu orði á pönt
unina.
8. Skólakennari hefur afburða-
námsmann meðal nemenda
4
sinna. Hann er svo skarpur, að
Framhald á blaðsíðu 15.
i selzt í V- Þýz talandi á þessu ári. Sjónvörpin eru framleidd i
rirtækjum í V- Þýzkalandi. Myndin er úr tilraunastofu þar sem
Aöalfundur
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra verður
haldinn að Sjafnargötu 14, sunnudaginn 3.
des. kl. 14.
STJÓRNIN.
LÖGTAK
Eftir kröfu Ríkisútvarpsins og að undangengn
um úrskurði dagsettum 28. nóv. 1967, verða
lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara á
kostnað gjaldenda en ábyrgð Ríkisútvarpsins,
að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Aföllnum og . ógreiddum afnotagjöldum af
sjónvörpum og hljóðvörpum 1967 og fyrr.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
29. nóv. 1967.
TILKYNNING
Nr. 15/1967.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi há-
marksverð á venjulegu smjörlíki, frá og með
28. nóv. að telja.
í heildsölu, hvert kg. kr. 35,00
í smásölu með söluskatti, hvert kg. ” 42,50
Oheimilt er þó að hækka smásöluverð á því
smjörlíki, sem keypt er af smjörlíkisgerðum
fyrir þann tíma.
Reykjavík, 27. nóv. 1967
Verðlagsstjórinn.
Plástno
ÞAKRENNUR Ou KILURFALLSPÍPUR
RYÐGAR EKKI
ÞOLSR SELTU OG SÓT,
ÞARF ALDREI Að MÁLA
MarsTradíng Company lif u
tAUGAVEG 103 —SlMI
•.JiJiuikklLÍúlUtikJLLulUlÍM 41 I Tii kiULlbutú.L.1.. i >i| ííil 1- i
29. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9