Alþýðublaðið - 03.01.1968, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 03.01.1968, Blaðsíða 12
 SKSttD Einfaldur eða tvöfaldur aagaaBBBBs Nú er enn eitt árið liðið í ald- anna skaut og aldrei það kemur til baka og nú er tækifærið háls- ar góðir til að endurbæta það sem illa fór á gamla árinu. Viljiði hætta að reykja, drekka eða haga ykkur illa yfirleitt er upplagt að gera |>að á áramótum. Raunar gerir ekk ert til þótt rifinn sé tappi úr svo sem eins og einni kampavínsflösku og innihaldinu skellt í andlit sér í viðurvist kunningjanna. Það er ekki nema sjálfsagður hlutur á jafn virðulegum tímamótum sem áramótum. Það má með sanni segja að áramót séu vissulega tímamót og svo sannarlega er maður á eins konar gatnamótum. En þar sem allir eru ekki í sama mótið steypt ir mótast hegðun manna á ára- mótum af skapgerðareinkennum hvers og eins. Sumir skjóta aur- unum sínum upp í loftið í líki flug elda, í þeirri von að þeir marg- faldist þar og svífi svo niður í hatt viðkomandi á nýja árinu. Aðrir eyða áramótunum í félagsskap ó- minnishegrans og vilja á þann hátt láta undir höfuð leggjast að láta hugann reika um gerðir sínar á líðandi ári. Enn aðrir sitja með hönd undir kinn og gera áætlan- ir um á hvern hátt nýja árinu væri bezt varið. Börnin safna rusli í hauga og bera eld að á áramótum. Áramót hafa skaðleg álirif á heyrn manna og kvenna. Álfar dansa á nýjárs- nótt, ryðjast óboðnir inn í hýbýli manna til fremdar sinnar fót- menntar. Það hefur oft hent á áramótum að hugur unglinga stæði til óknytta. Ástæða þess er sjálf sagt sú að þá er farið að styttast í jólaleyfin sem gefin eru í skól um. AII veglegur flokkur fólks geng ur í hjónaband á hverjum áramót- um og standa því á tímamótum í tvöföldum skilningi. Ef til vill er þetta gert til að menn og konur geti slegið tvær flugur í einu höggi og kvatt gamla árið og feitu árin í einu fylliríi, þá er og mögulegt að þetta sé gert til að auðveldara sé að halda reiðu á tölu brúðkaups ára síðar meir. Gleðilegt ár, þakka þér (inni- lega) fyrir gamla árið. Þetta segja allir á áramótum hvorf sem hug ur fylgir máli eða ei. Með það í huga óskar Bak-síðan lesendum sínum gleðilegs árs. Mamma þegar pabbi er búinn að vaska upp og riksuga má hann hann þá hjálpa mér með heimaverkefnin , uiveg sammála, hann er ekkert sérlega traustvekjandi þessj skíðakennari. Leyfist mér að biðja um fót dóttur yðar. 'Mikið' langar mig til að sjá andlitin á afkomendum okkar þegar þeir uppgötva að þetta er auglýsing fyrir þvottaduft. Mamma, þcgar pabbi er búin að vaska upp og hann þá hjálpa mér með heimaverkefnin. Fyrir tveimur árurc,, eða nán ar tUtekið í jólablaðinu 1965 birtiet hér í Faxa Iangt og fróðlegt viðtal við hinn há- aldraða sægarp og heiðurs mann Friðrik Gunnlaugsson. Alþýðublaðið. Er það ekki hálfgerður bjarnargreiði hjá læknunum þarna í Suður-Afríku að gefa nýja hjartamanninum „svart hjarta“ og gera liann þar með að kynblending. Það var eins gott, að kuldakastið kom ekki tveim dögum fyrr. Það er ekki að vita nema vínbirgðir hefðu froeið. í kuldaköstum, eins og nú er, minnist ég alltaf frosta- vctrarins mikla, þegar ég var ung og gjafvaxta. Þá var svo kalt, að það frans í næt urgögnum undir rúmnm og heimilisfóikið á mínum bæ svaf allt í einni sæng, bæði karlmenn og konur, til þess að fá hita hvort af öðru. Ó já, það fer alltaf fiðríngur um hjartaræturnar, þegar maður minnist þeirra gömlu góðu daga.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.